leita

ELDRI PISTLAR

Álftanes er komið í þrot. Þetta nes með fjölskrúðugu fuglalífi og góðum ströndum er strand; pikkfast. Ég spái því að það verði sameinað Garðabæ en áður þarf að sökkva drjúgum skuldum. Hafnarfjörður hefur ekki efni á Álftanesi. Hann er sjálfur of veikburða. Ekki einu sinni hinn litskrúðugi bóndi á

11. maí | Ekkert svar (BJ)
Dálknum hafa borist tvö tölvubréf eftir að pistillinn Stalín marskálkur bjargar heiminum birtist. Þetta bréf barst 10. maí: „Sæll Benedikt. Merkileg grein hjá þér þar sem þú kallar okkur fréttamenn hjá RÚV nystama sakleysingja sovésku áróðursvélarinnar og fleira slíkt gamallt og gott. Þakka þér

Það er sameiginlegt öllum skattalækkunartillögum stjórnmálaflokkanna fyrir kosningarnar að í þeim felst rökvilla. Sumir eigi ekki að greiða skatta. En skatturinn er einmitt aðgöngumiði okkar að þjóðfélaginu og þess vegna jafngildir skattleysi sumra ákveðinni fyrirlitningu samfélagsins á þeim. Hvers vegna skyldur tekjulitlir ekki greiða skatta eins og aðrir? Þeir nýta


PISTLAR

14/10/2007 | 23:03

Illt er að eiga framsóknarmann að einkavin (BJ)

Það er alþekkt að vinátta manna stoppar ekki við flokkslínur. Þekktir menn í stjórnmálum eru þar engin undantekning. Lengi hefur verið talað um að Alfreð Þorsteinsson og Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson væru svo nánir að tala mætti um Vilfreð. Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins í R-listanum sögðu oft þegar þeim var borið á brýn lélegt siðferði að hafa Alfreð innan dyra að ekki væri Villi hótinu betri enda væru þeir alltaf sammála. Þeir munu oft hafa ráðið ráðum sínum saman innan og utan funda.

Ekki fara sérstakar sögur af vináttu Vilhjálms og Björns Inga en enginn hafði af því spurnir að þeir væru mjög ósammála. Mig minnir að sagt hafi verið að áður en REI málið kom upp hafi þeir sagt að þeim hefði aldrei orðið sundurorða.

Dagur B. Eggertsson byrjaði feril sinn á því að skrifa ævisögu Steingríms Hermannssonar. Hann heillaðist svo af Steingrími að sagan varð þrjú þykk bindi. Hann hefur líka tileinkað sér stjórnmálastíl Steingríms því að hann segir aldrei neina skoðun sína á málum en fabúlerar út í eitt. Líklega er vandfundinn sá stjórnmálamaður hér á landi sem talar meira um jafnlítið og Dagur.

Hann vakti athygli í kosningabaráttunni í fyrra þegar hann lagði til að smíðuð yrði einbreið brú yfir Elliðavog. Aðrar tilögur frá honum man enginn.

Ekki veit ég hvort það er vegna þess að Dagur skilur ekki um hvað REI málið fjallar að hann lýsti því yfir að með nýja meirihlutanum væri verið að standa vörð um eignarrétt almennings á auðlindum. Þvert á móti er einmitt verið að færa einkaaðilum auðlindir með þessu félagi.

Það er ekki vegna einkaaðilanna sem flestir sjálfstæðismenn eru á móti REI. Þvert á móti er það þátttaka borgarinnar í verkefnum um heim allan sem er gagnrýniverð. Einkaaðilar mega hætta sínu fé eins og þeir vilja, en það á ekki að setja almannafé í slíkt. Borgarfulltrúar eru kosnir til þess að sjá um málefni borgarinnar. Ekki til þess að kaupa eða reisa orkuver á Indónesíu eða Kaliforníu.

Steinunn Valdís fyrrum borgarstjóri heldur að arðsemi fyrirtækja fari eftir því hver á þau. Hún spurði hvort menn héldu virkilega að Bjarni Ármannsson og Hannes Smárason ætluðu sér að tapa á fjárfestingunum. Auðvitað ætla þeir það ekki og eru snjallir, en Bjarni keypti deCode á genginu 16 og Hannes hefur tapað milljörðum á amerísku flugfélagi. Þeim hefur oftast gengið vel en eru ekki alvitrir.

En það er von að Steinunn Valdís nefni þetta. Það er nefnilega engin önnur forsenda sem borgarbúar hafa séð fyrir fyrirtækinu. Enginn óháður aðili kom að mati á því og borgarfulltrúar sem sátu í stjórn Orkuveitunnar skildu ekki hvað þeir voru að samþykkja. Það lá líka svo mikið á.

Vilhjálmur hefur örugglega átt á dauða sínum von fremur en að Alfreð vinur hans stæði fyrir svikráðum gegn honum. Öðrum borgarbúum kom framkoma Alfreðs ekki á óvart.

Svandís Svavarsdóttir er eini borgarfulltrúinn sem heldur haus í málinu enn. Reyndar er það ósanngjarnt að segja þetta því að borgarfulltrúarnir sex frá Sjálfstæðisflokknum þorðu að láta prinsippin ráða, þó að ekki hafi þau áttað sig á innri manni Björns Inga fyrirfram. Það er útilokað að Svandís geti haldið sínu striki og Dagur og Björn Ingi líka. Þá kemur í ljós hvort vinnur, staðfestan eða sérhagsmunirnir.

Það er hætt við að nýi meirihlutinn verði líflegur. Gunnar Thoroddsen fékk að kynnast því þegar Albert Guðmundsson og Eggert Haukdal stóðu að vantrausti á hann eftir að hafa stutt hann til stjórnarmyndunar að sumum mönnum er aldrei treystandi. Ekki einu sinni í svikunum.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is