leita

ELDRI PISTLAR

Nú detta bæklingarnir vegna kosninganna inn um lúguna einn af öðrum. Á forsíðunni á einum eru Vinstri græn eru eins og klessa saman í hóp. Vinstra megin á myndinni er skuggalegur náungi sem liggur ofan á lítilli stelpu sem reynir að komast undan. Mér fannst eins og hann væri

Willy Brandt var þekktur maður á árunum milli 1955 og 1975 og auðvitað lengur. Hann var borgarstjóri í Vestur-Berlín og var þekktur á þeim árum fyrir að láta ekki kommana vaða yfir sig. Seinna varð hann boðberi þess að Vesturveldin ættu að stuðla að friðsamlegri sambúð við Austur-Evrópu því

14. apríl | Minningabrot (BJ)
Að undanförnu hafa óvenjumargir þekktir Íslendingar látist. Ég ætla að rifja upp kynni af þremur þeirra. Jón S. Guðmundsson íslenskukennari kenndi mér tvö ár í Menntaskólanum í Reykjavík. Hann kenndi lengur en nokkur annar við Menntaskólann og betur en flestir. Þegar allt er talið mun Jón hafa


PISTLAR

12/03/2008 | 10:30

Stutt ævi (BJ)

Í gær heyrði ég nokkrar ævisögur í útvarpinu.  Vettvangur ævisagna í útvarpi hefur helst verið RÚV eða Útvarp Saga þar sem Sigurður G. Tómasson les Dægradvöl Benedikts Gröndals. Þessar sögur voru hins vegar á BBC sem heyra má hér á landi. Það sem einkenndi þessar ævisögur var að þær voru sex orð hver (eða styttri).

Mörgum Íslendingnum myndi veitast erfitt að afgreiða ævina í svo stuttu máli. Steingrímur Hermannsson þurfti þrjú löng bindi (færð í letur af Degi B. Eggertssyni, sem er einkar lagið að tala í löngu máli). Gunnar Gunnarsson skrifaði fimm sjálfsævisögulegar bækur og Sigurður A. Magnússon sex minnir mig. Þeir voru enn ungir menn þegar verkunum lauk og ekki búnir að gera neitt af því sem þeir eru þekktir fyrir.

Auðvitað er ekki um beina ævisögu að ræða í sex orðum. Fremur setningu sem lýsir einstaklingnum X og ævi hans svo vel að menn geta kinkað kolli og sagt: Þetta á vel við um X. Þáttastjórnandi BBC las sögur héðan og þaðan úr heiminum.

Einn sagði: Hef klúðrað fleiri tækifærum en flestir fá. (eitt orð bættist við í þýðingu).

Kona sagði: Hef alltaf búið í húsum annarra. (hálf drungalegt og sorglegt kannski).

Svo kom: Hef lifað skemmtilegu lífi. Hvað næst?

Mér velti fyrir mér íslenskum hliðstæðum. Guðrún Ósvífursdóttir sagði: Þeim var ég verst sem ég unni mest. (átta orð reyndar en hnitmiðað þó).

Bergmál í Íslandsklukku Halldórs Laxness eru orð Snæfríðar Íslandssólar: Heldur þann versta en þann næstbesta.

Ég sé það á Netinu að þetta er orðinn útbreiddur leikur. Einhver vitnar í Frank Sinatra sem söng þetta þó bara: I did it my way. (Dæmið er samt ágætt vegna þess að allir tengja það við Frank).

Í gamla daga á Saturday Night live byrjaði Chevi Chase fréttaþétt sinn á orðunum: „I’m Chevi Chase and you’re not.“ (Spurning um hvernig orðin eru talin).

Þetta er góð æfing þeim sem vilja lýsa sjálfum sér í knöppu máli. Júlíus Sesar hefur eflaust vinninginn: Veni, vidi, vici.Ég kom, sá og sigraði.

Hver er mín ævisaga?

Hver veit nema rætist úr honum?

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is