leita

ELDRI PISTLAR

Frekja Jóhönnu skýtur upp kollinum á hverjum degi. Ásmundur Einar Daðason lýsti því í ræðustól á Alþingi hvernig Jóhanna tók þingmenn Vinstri grænna á teppið og hótaði þeim ef þeir greiddu ekki atkvæði í tengslum við ESB umsóknina eins og hún vildi. Ásmundur upplýsir einnig að hún hafi hótað

18. febrúar | Í þungum þönkum (BJ)
Af einhverjum ástæðum hafa aukakíló verið mér ofarlega í huga undanfarna viku. Ég veit ekki hvers vegna, kannski vegna þess að ég sá að þyngsti maður heims hafði misst 237 kíló. Mér fannst það fullmikið, þangað til að ég sá myndina af honum eftir tapið. Hann lítur út eins

Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði og einn af föstum álitsgjöfum í Frjálsri verslun, telur að með fjárfestingar- áætlun ríkisstjórnar- innar fyrir árin 2012 til 2015 sé í rauninni verið að lofa upp í ermina á næsu ríkisstjórn. Erfitt sé að skoða áætlunina sem annað en ódýrt kosningaloforð. Ég birti


PISTLAR

18/07/2005 | 00:00

Skiptar skoðanir (BJ)

Í pistli síðasta mánudag var vikið að efasemdum þeirra Þorvalds Gylfasonar og Pálma Haraldssonar um að ákærurnar í Baugsmálinu væru á rökum reistar. Pálmi segir: „Ég hef bæði gert fjölda samninga við Jón Ásgeir og með honum. Ég get staðfest og lagt drengskap minn að veði fyrir því að Jón Ásgeir hefur aldrei svikið, hann hefur aldrei sagt ósatt, hann hefur aldrei farið á bak við neinn, hann hefur fremur verið of örlátur við viðskiptamenn sína og samfélagið að mínu mati en hitt.“ Í máli annars fyrrverandi viðskiptafélaga Jóns Ásgeirs kveður við annan tón.

Ekki er að efa að greinaskrif þeirra Þorvalds og Pálma hafa vegið þungt í mati þeirra sem lítið vita um málið, sem á við um allan almenning og reyndar þjóðina alla utan kannski tuttugu manns sem næst ákærunum og þeim ákærðu standa. Pálmi skrifaði líka: „Fyrir mér er ekki vafi á því að Jón Ásgeir hefur á umliðnum árum gert meira fyrir íslenskt samfélag en aðrir samtíðarmenn hans og þótt aftar í söguna væri farið. Ég læt það þó liggja á milli hluta að reyna að finna honum verðugan stað í sögu merkra Íslendinga á liðinni öld og þessari, en í mínum huga er það fullljóst að þar mun sagan skipa honum í fremstu röð. Jón Ásgeir var og er alfa og omega þeirrar útrásar og uppbyggingar sem einkennt hefur íslenskt viðskiptalíf á umliðnum árum. Hann hefur verið leiðandi í útrás íslenskra fyrirtækja sem hefur haft gríðarleg áhrif á lífskjör og sjálfstraust okkar litlu þjóðar. Um það get ég sjálfur vottað. Án Jóns Ásgeirs og frumkvöðlastarfs hans, hefði ég aldrei lagt af stað til annarra landa í leit að viðskiptatækifærum. Án Jóns Ásgeirs væri því fjórða stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu ekki í eigu Íslendinga í dag. Á fáum árum hafa Íslendingar orðið gjaldgengir í alþjóðlegum viðskiptum og er það einkum og sér í lagi Jóni Ásgeiri að þakka.“

Vissulega er erfitt að trúa því að ákærurnar geti verið alvarlegar þegar maður les slíkan vitnisburð eftir virtan mann úr atvinnulífinu, ekki síst þegar einn virtasti prófessor landsins lætur líka í ljós efasemdir um hvað liggi að baki ákærunum.

Í Blaðinu 14.7. 2005 kvað við nokkuð annan tón frá fyrrum viðskiptafélaga Jóns Ásgeirs, Einari Viðarssyni. Lítum á hvað þar segir: „Einar segir að frá fyrstu tíð hafi mikil leynd hvílt yfir eignarhaldi Baugsforstjórans [á Nýbrauði] og hafi Jón Gerald Sullenberger leppað eignarhlutinn fyrir hann, sem nam 20%. Hugmyndin hafi hins vegar alfarið verið Jóns Ásgeirs. „Hann hafði samband við mig þar sem ég var [starfandi hjá Mylllunni] og spurði hvort ég hefði áhuga á að fara út í svona brauðgerð og bað mig um að áætla hvað við gætum boðið brauðið á miðað við tilteknar forsendur.“ Þar var tilgreint magn og verð til Aðfanga, sem miðaðist við að Nýbrauð gerði ekkert annað en að baka og pakka inn brauði. Baugur myndi annast dreifinguna, söluna og allt annað.

Ráðagerðirnar breyttust hins vegar þegar í ljós kom að Baugur var samningsbundinn Myllunni hálfu ári lengur en Jón Ásgeir hafi talið og bakarí Nýbrauðs stóð tilbúið og verkefnalaust.

Til þess að þrauka fram í apríl vantaði auðvitað rekstrarfé, en Jón Ásgeir vildi ekki skrifa upp á lán en sagði við mig: „Treystu mér, skrifaðu bara upp á þetta, þetta verður allt komið í topplag 1. apríl. Engar áhyggjur.“

Það stóðst síðan ekki, því aðstæður voru breyttar í apríl. Myllan gerði mun betra tilboð en áður og forsendur Nýbrauðs voru því verulega breyttar. „Við fengur skilaboð um að við yrðum að jafna það verð  í okkar tilboði, greiða markaðsstyrk og standa í dreifingunni sjálfir, þannig að það var í raun búið að kippa fótunum undan verksmiðjunni áður en hún byrjaði,“ segir Einar.

„Það stóðst ekkert af því sem hann hafði lofað, magnið sem Bónus átti að fá reyndist miklu minna, í staðinn fyrir að kaupa brauðið tók Bónus það í umboðssölu og við þurftum að bera það sem ekki seldist. Það var dauðadæmt,“ segir Einar og er ómyrkur í máli um fyrrum viðskiptafélaga sinn.
„Jón Ásgeir fór einfaldlega illa með okkur hina. Við vorum að gera þetta fyrir hann, hann var ekki að gera þetta fyrir okkur. Það stóðst ekkert af því sem hann sagði og allt féll á okkur.“

Einar segir að þeir hefðu e.t.v. átt að gera sér grein fyrir því að þessi aðkoma Jóns Ásgeirs hafi verið vafasöm, pukrið með eignarhaldið hafi bent til þess og menn hafi gert sér grein fyrir að hann væri a.m.k. á gráu svæði samkeppnislega.

„En auðvitað kviknar áhugi þegar svona stór maður í viðskiptalífinu hefur samband við mann og vill fara í business með manni. Ég hélt bara að þessi maður myndi ekki svíkja mann svona. Þegar síðan allt stefndi í óefni fyrir hans mistök og tilverknað vildi Jón Ásgeir ekki einu sinni svara mér hvað þá meir. Þetta var svikamylla frá A-Ö.“

Hér endar greinin í Blaðinu. Kíkjum aftur í grein Pálma: „Nú hefur það gerst að þessi sómi landsins er sestur á sakamannabekk. Ekki veit ég hvort það eigi rætur að rekja í pólitík, öfund, vanþekkingu á því hvað sé debet og hvað sé kredit í reikningshaldi og hvað þá flóknari atriðum reikningshalds eða misskilningi kerfiskarla á eðli viðskipta. Ég leyfi mér hins vegar að fullyrða að ástæða þess getur ekki verið óheiðarlegt atferli Jóns Ásgeirs. ... Jón Ásgeir er ekki þeirrar manngerðar að ætla sjálfum sér allt og skilja ekkert eftir. Slíkir menn stunda ekki auðgunarbrot eða annars konar refsiverða háttsemi.“

Í grein Pálma kom fram að þeim Jóni Ásgeiri hefði sinnast svo að Pálmi skildi Jón eftir vegalausan í veiðhúsi í Húnavatnssýslu. Ekki hafði þetta varanleg áhrif á vináttu þeirra því að ég hef sannfrétt að þeir fara enn saman að veiða, þó hvor á sínum bíl.

Benedikt Jóhannesson

Fleiri pistlar

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is