
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Það var fróðlegt að sjá tvo hryðjuverkamenn í sjónvarpinu um helgina. Arafat er ekki lengur talinn hryðjuverkamaður heldur forseti, en nú hefur herjað á hann sjúkdómur sem menn átta sig ekki strax á. Hann horfði ráðleysislegur út í loftið á myndum og sendi fólki fingurkossa. Bin Laden sendi enga fingurkossa en messaði yfir mönnum hvernig þeir ættu að forðast reiði hans og veifaði framan í okkur fingrinum.
Ef Bin Laden hefur ætlað að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum þá hlýtur hann að vera stuðningsmaður Bush. Það er langlíklegast að ef ávarp hans hefur einhver áhrif þá styrki það forsetann sem einbeittan leiðtoga gegn hryðjuverkamönnum. Hann reynir að koma fram sem mannlegur hugsuður sem skýrir ofbeldisverk sín með innrás Ísraels í Líbanon árið 1982. Jafnframt reyndi hann að láta líta svo út sem hann væri húmoristi sem hæddist að Bush fyrir að hafa verið að lesa fyrir börn meðan flugvélarnar klesstu á tvíburaturnana. Í ljós kom að Bin Laden er hvorugt. En óneitanlega gerir hann lítið úr leyniþjónustu Bandaríkjanna með því að koma ávarpi í heimssjónvarpið. Fréttaskýrendur undruðust það mjög að hann fylgdist með heimsviðburðum. Hvernig má annað vera? Það er aumur afkimi sem ekki hefur einhvern aðgang að Netinu sem færir heimsbyggðinni allri sömu fréttir nánast um leið og þær gerast. Það er hættulegt að halda að maður sem gat skipulagt árásirnar 11. september og 11. mars á Spáni sé einhver blábjáni sem stundi bænastagl í afskekktum helli. Hann kann að vera brjálaður en hann er ekki vitlaus.
Með Arafat er ekki gott að segja. Sumir samstarfsmanna hans segja að hann sé farinn að tapa þræðinum andlega. Myndirnar af honum bentu til þess að hann væri ekki vel með á nótunum. Hann er orðinn gamall maður og þess að vænta að aðrir taki við. En hann hefur áratugum saman gætt þess að enginn ógnaði valdi hans. Þess vegna er enginn arftaki sem blasir við og þeir sem honum koma næstir virðast ekki vera sérlega hæfileikaríkir. Þetta minnir á Stalín og fleiri einræðisherra sem gæta þess að losa sig við alla sem gætu ógnað þeim.
Í Danmörku er nú sýnd dönsk mynd sem heitir Kóngakapall. Í henni verður stjórnmálaforingi fyrir slysi en flokksbræður hans láta halda honum á lífi til þess að gæta þess að réttur maður taki við. Þessa sögu var hægt að gera ótrúlega spennandi. Kannski feta íslenskir rithöfundar í fótspor danskra kollega sinna. Það er lyginni líkast hvað hægt er að gera lygina líklega.
NÝLEGIR PISTLAR