leita

ELDRI PISTLAR

Ég hef ekki verið í aðdáendaklúbbi Ögmundar Jónassonar í pólitík en ég ætla þó að hæla honum í þetta skiptið – þótt erfitt sé að munda pennann eftir að stjórnin tilkynnti að hún ætlaði að hækka skatta ríkissjóðs um 72 milljarða – og það í miðri kreppu. Ögmundur er

03. maí | Afsökun (JGH)
Nýlega tók ég út pistil af þessu vefsvæði, heimur.is, sem ég skrifaði hinn 25. maí í fyrra eftir að sérstakur saksóknari kærði tvo lögreglumenn, sem unnið höfðu á vegum embættisins, til ríkissaksóknara vegna meints brots á þagnarsyldu. Linnulaus umræða og stórfelldur fréttaflutningur helstu fréttastofa landsins af málinu var tilefni

Gunnar Páll Pálsson átti aldrei raunhæfan kost á að verða endurkjörinn formaður VR. Það lá allan tímann í loftinu. Formaður sem hefur tæpar 1,8 milljónir á mánuði, ekur á fínum bíl frá félaginu og situr í stjórn glæsilegs banka er ekki beinlínis trúverðugur verkalýðsforingi. Það getur vel verið að


PISTLAR

06/06/2008 | 16:28

Baugsmálið: Sex ára sneypuför (JGH)

Baugsmálið er á enda runnið eftir sex ára drama; Hæstiréttur Íslands hefur slegið hamrinum í borðið, komist að niðurstöðu. Er málinu lokið? Ég held að svo sé. Eftir dóm Hæstaréttar er enginn sigurvegari í málinu; allra síst Baugur sem átti víst að vernda í þessu ótrúlega máli. Það hafa allir skaðast sem blönduðust í Baugsmálið, hver á sinn hátt. Þjóðin er innst inni fegin að búið sé að setja punktinn. En umræða næstu daga verður hvort einhverjir eigi að axla ábyrgð, hvort topparnir í lögreglunni segi af sér. Dómur alþýðunnar tekur núna við af dómi Hæstaréttar og hún vill blóð. Mér heyrist þegar farið að tala um að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra eigi að segja af sér.

Dómur Hæstaréttar er auðvitað hneisa og háðung fyrir ákæruvaldið. Breytir þar engu þótt dómstólar hafi gert skýrari kröfu en áður um framsetingu á ákærum. Það vann málið illa, rak málið illa og kunni svo í ofanálag ekki að gefa út ákærur. Í ljós kom að það var ekki innstæða fyrir ásökunum ákæruvaldsins. Það felst í því mikil ábyrgð að ákæra fólk. Það vald er vandmeðfarið og því á ekki að beita nema meiri líkur séu á því en minni að mál vinnist. Séu líkur á því að mál séu fyrnd á ákæruvaldið ekki að byrja á einhverju brambolti. Vinningur er svo sem ekki gefinn fyrirfram; það þarf að ákæra til að fá niðurstöðu og til þessu eru dómstólar að dæma. Annars þyrfti enga dómstóla, bara ákæruvald. En þvílík sex ára sneypuför; hún er mikil háðungin.

Baugsmálið er sérstakt vegna þess að Baugur var að fara gegn stjórnendum sínum þrátt fyrir að enginn hluthafi í Baugi kvartaði, kærði eða taldi sig hafa verið hlunnfarinn. En ákæruvaldið var á annarri skoðun og tók almenningshlutafélagið Baug, sem skráð var á Verðbréfaþingi Íslands, frá október 1998 til 2001, upp á sína arma og barðist fyrir hönd félagsins gegn stjórnendum þess og stærstu hluthöfum; Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og fjölskyldu. Það hélt því fram að Baugur hefði orðið fyrir tjóni vegna stjórnarhátta Jóns Ásgeirs og fjölskyldunnar og að vinnubrögð þeirra brytu í bága við lög. Jón Ásgeir hélt því fram frá fyrsta degi að öll viðskipti Gaums, eignarhaldsfélags fjölskyldunnar, og Baugs hefðu verið með þeim hætti að Baugur hefði alltaf hagnast; engu hefði verið stolið og enginn almennur hluthafi orðið fyrir tjóni af hans völdum.

Eftir það sem á undan er gengið og hversu hátt ákæruvaldið reiddi til höggs, 40 ákæruliðir, þá eru eftirtekjurnar rýrar. Hæstiréttur dæmir Jón Ásgeir fyrir að hafa vitað af tilurð útgefins reiknings Jóns Geralds í Bandaríkjunum á Baug –  og mátt vita að að hann væri rangur. Einn ákæruliður. Rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að þetta bryti í bága við bókhaldslög og dæmdi hann í þriggja mánða skilorðsbundið fangelsi. Það er sama refsing og Jón Ásgeir fékk í Héraðsdóm Reykjavíkur – en þó fyrir annað brot.

Ég orðaði það svo á morgunvakt Rásar 1 að enginn væri sigurvegari í þessu máli og að allir hefðu skaðast. En ég bætti því við að ef ég ætti að nefna einhverja sem kæmust næst því að vera sigurvegarar væri hugsanlega hægt að nefna Jón Ásgeir Jóhannesson og Davíð Oddsson. Jón Ásgeir fyrir að vera „nánast sýknaður“ – þótt það hugtak sé ekki til og Jón Ásgeir sé örugglega ekki ánægður með að vera ekki sýknaður að fullu. Í dómsmálum er engin 3%-regla, ekkert „nánast“. En þetta með Davíð, er það ekki svolítið langsótt? Jú, það er það. Hvernig má það vera að hann komist nálægt því að teljast sigurvegari? Vegna þess að Jón Ásgeir hélt því fram frá upphafi að þetta væri pólitískt mál, runnið undan rifjum Davíðs Oddssonar. Þetta væri eitt stórt samsæri Davíðs, lögreglunnar og ákæruvaldsins. Davíð svaraði þeim ásökunum á þá leið að fyrir þá sem tryðu öllu illu upp á stjórnmálaforingja, jafnvel glæpsamlegt einelti, eins og Jón Ásgeir héldi fram, þá væri eins gott að hér væri til sjáfstætt dómsvald sem hreinsaði menn undan meintu einelti stjórnmálaforingja. Núna hefur hið sjálfstæða dómsvald talað, það er varnaglinn sem hægt er að treysta á.

Baugsmálið er umfangsmesta dómsmál í sögu íslensks viðskiptalífs. Þau sem næst koma eru Hafskipsmálið og kaffibaunamálið hjá SÍS. Baugsmálið er drama. Þess vegna hefur það fengið svo mikla umfjöllun. Frægasta fjölskylda viðskiptalífsins ákærð; Tvö í fjölskyldunni strax sýknuð; Tveir endurskoðendur ákærðir og strax sýknaðir; Nokkur áramótaskaup um Baugsfeðga og snekkjuna; Innrás lögreglunnar í Baug í ágúst 2002 einmitt þegar viðkvæmir samningar við breska viðskiptajöfurinn Philip Green voru á lokastigi, en ekkert varð úr þeim fyrir vikið; Því skyndilega haldið fram að málið sé of stórt fyrir íslenska réttakerfið; Forsætisráðherra varpar fram bombu um að Baugsmenn hafi reynt að múta sér – án þess að hann hafi neitt í höndunum til að sanna það; Frægasti ritstjóri landsins, ritstjóri Morgunblaðsins, blandast óvænt inn í atburðarásina; Skipt er um saksóknara í miðjum klíðum; Skaðleg umfjöllun fyrir Baug erlendis þar sem hann sækir helst fram; Rætt um að rótin sé hefnd Jóns Geralds, fyrrum félaga Baugsmanna, allt vegna snekkju á Flórída; Almannatenglar blandast inn í málið og mynd myndanna varð til; þegar hinir sex ákærðu gengu fylktu liði í hús Héraðsdóms Reykjavíkur; Eftir þriggja ára vinnu kemur í ljós að ákæruvaldið kann ekki að skrifa ákærur og lýsa glæpnum í málinu; Málinu vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í heilu lagi. Það er af mörgu að taka.

Eftir að Baugur var tekinn af markaði árið 2001 er augljóst að þeir hluthafar, sem eftir voru, töpuðu miklu fé árið 2002 á að samningurinn við Philip Green um Arcadia fór út um þúfur. Baugur hagnaðist að vísu um 20 milljarða á þeim viðskiptum en fór á mis við um 60 til 80 milljarða króna gróða að mati forráðamanna Baugs. Það er erfiður biti að kyngja þegar Baugsmálið hefur verið til lykta leitt í Hæstarétti.

Ákærurnar í Baugsmálinu flokkuðust í upphafi í ellefu kafla eftir tegund brota og voru í 40 liðum. Málskjöl voru 20 þúsund blaðsíður. Ákært var fyrir fjárdrátt og umboðssvik vegna ólögmætra lánveitinga að upphæð 1,3 milljarða króna og fyrir rangfærslur í bókhaldi sem hljóðuðu upp á hátt í 1,4 milljarða, auk fleiri meintra brota sem sneru að lögum um hlutafélag, bókhald, tolla og skatta. Flestar ákærurnar sneru að Jóni Ásgeiri og Tryggva Jónssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs. Ákærurnar snerust m.a. um: Að fjárfestingar Gaums og Fjárfars hefðu verið fjármagnaðar af Baugi; Að forsvarsmenn Baugs hafi lánað um 847 milljónir af fé Baugs til sjálfra sín og fjölskyldufyrirtækja, m.a. til Gaums og Fjárfars, oft án skuldaviðurkenninga, trygginga eða samninga um endurgreiðslur; Að Baugur hafi greitt 34 reikninga vegna skemmtibáts í annarra eigu; Að Baugur hafi greitt persónulegar úttektir óviðkomandi félaginu.

Hér er auðvitað svo hátt til höggs reitt að það tekur engu tali að ekki skuli hafa verið til innstæða fyrir þessu hjá ákæruvaldinu. Það er líka enn fáránlegra, eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, að Hæstiréttur telji ýmsar af lánveitingum Baugs til ráðandi hluthafa eða félaga í þeirra eigu hafa verið ólögmætar, þótt hann telji að þau myndu ekki varða meiri refsingu en sektum og séu því fyrnd. Takið eftir; fyrnd eftir allt bramboltið. Bíðið aðeins við, gekk ekki málið í augum viðskiptalífsins í stórum dráttum út á þessi lánamál Baugs til Gaums og Fjárfars, hvort þau væru lögleg eða ekki? Hæstiréttur hefur núna talað, ákærðum í hag.

Baugsmálið er sagt hafa kostað skattgreiðendur hátt í 1 milljarð. Kannski eru peningar aukaatriði þegar kemur að dómsmálum og það eigi því ekki að tala á þessum nótum; annað hvort eru mál mál og kosta skal því til sem þarf. En er málið búið? Ég ætla að halda því fram. Ég held að engir toppar í löggunni verði látnir fjúka. Að vísu hefur Jón Ásgeir skotið málinu til Evrópudómstólsins, kannski tekur sá dómstóll það upp. Kannski fer Baugsfjölskyldan í mál við ríkið og vinnur það. Nú, þá borgar þjóðin reikninginn og einhver umræða verður um það. Það er svolítið mikið kannski í þessu.

Sex ára drama er lokið...og þó...ég gleymdi því víst að Jóhannes í Bónus boðaði einhvern tíma bíómynd um þetta mál, þannig að...well, dramað er ef til vill rétt að byrja.

Jón G. Hauksson

jgh@heimur.is


 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is