
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Forseti Íslands hefur frá degi til dags ekki brýnum skyldum að gegna. Upplýst hefur verið að á liðnu ári var hann 101 dag í burtu og á yfirstandandi ári hefur hann verið langdvölum erlendis, mest í einkaerindum. Það er athyglisvert að prívatmaðurinn Ólafur virðist vera samkvæmisljón og lætur sig ekki vanta í veislur með Michael Caine og Steve Martin sem hann kemst væntanlega í sem eiginmaður Doritar. Þegar hann á hins vegar að mæta sem forseti Íslands er hann víðs fjarri, hvort sem um er að ræða heimastjórnarafmælið eða brúðkaup Danaprinsins.
Það var á árum áður haft á orði um veislur í Washington að þær væru sérstaklega hallærislegar ef þekktasti gesturinn væri sendiherra Íslands. Ekki hefur heyrst að þessi skoðun hafi verið færð upp á forsetaembættið en óhætt er að fullyrða að veislurnar sem Ólafur sótti vestanhafs hafa ekki verið neitt slor. Þar voru jú raunverulega frægir menn, sjálfur Steve Martin og einhverja rámar eflaust enn í Michael Caine (mig minnir að hann sé breski leikarinn frá sjöunda áratugnum, en við Steve hittumst í Kaupmannahöfn fyrir nokkrum árum og hann lifir enn á minningum frá þeim fundi).
Það hefur loðað við margan frægan manninn að vera að heiman á afmælisdaginn. Ólafur hefur ekki viljað taka sénsinn á því að blómvendir kæmust ekki í vatn og skundaði því heim til þess að geta persónulega tekið við gjöfum og skeytum. Mér finnst það hugulsamt af Ólafi að velja afmælisdaginn sinn sem einn af þeim fáu dögum sem hann er heima. Fjarskipti eru mjög erfið til Mexíkó þar sem hann dvaldi síðast. Þaðan næst til dæmis hvorki símasamband til ríkisstjórnar Íslands eða forseta þingsins og með herkjum að hægt er að koma boðum til DV. Heyrst hefur að forsetinn áformi á næsta ári að taka námskeið í notkun Netsins þannig að hann geti kynnt sér mælendaskrá í þingmálum á vefsíðu Alþingis.
Danir munu nú í sárum vegna fjarveru forsetans í brúðkaupinu mikla. En þeir geta sjálfum sér um kennt. Forseti Íslands mætir ekki í veislur þar sem honum er ekki ætlað neitt hlutverk.
NÝLEGIR PISTLAR