leita

ELDRI PISTLAR

06. maí | Gátan mikla (BJ)
Ég var að stíga úr sturtunni, fálmaði eftir handklæði og strauk framan úr mér. Það var móða á speglinum og enginn hafði nýlega skrifað á hann nein leyndarmál eins og gerist í bíómyndunum. Þegar ég beygði mig til þess að þurrka tærnar sá ég stauk í ruslafötunni. Hún var

Núna ætlar alþingi að setja lög sem eru beinlínis brot á EES-samningi. Það ætlar að framlengja gjaldeyrishöftin um fjögur ár eða til ársins 2015. Þessi ákvörðun kom svo sem ekki á óvart; hún lá í loftinu. Það verður að teljast merkilegt að alþingi Íslendinga setur sérstök lög

Eftir fyrstu frétt RÚV síðastliðinn sunnudag um að Páll Magnússon tæki ekki við sem forstjóri Bankasýslu hefur þjóðin beðið eftir því á hverjum morgni hvort ekki kæmi út opinber yfirlýsing um að Páll væri hættur við að taka við starfinu. Svo hefur ekki verið, hann hefur frekar styrkst í


PISTLAR

14/06/2004 | 00:00

Þú birtist mér í draumi (BJ)

Margir telja að mikið sé að marka drauma og suma dreymir fyrir daglátum. Í gamla daga gátu draumar Guðrúnar Ósvífursdóttur sagt fyrir um alla ævi hennar. Frændi minn einn fær vitjun frá Agli Skalla-Grímssyni þegar mikið gengur á í þjóðlífinu og Egill fer þá jafnan með vísu um ástandið. Ég hef ekki verið berdreyminn en um daginn fékk ég sérstæð skilaboð frá mömmu heitinni. Þau byrja svona: „Margar konur tortryggja feður ... “

Marga dreymir sérstæða drauma og sumir skrifa þá niður strax að morgni og þá getur verið fróðlegt að fá að líta inn í þennan ósjálfráða hugarheim manna. Ég man eftir því að kona sagði frá því að þegar hún var ófrísk hefði hana dreymt að á fæðingardeildinni hefði hún óvart fengið rangt barn til baka, barn sem seinna kom í ljós að var ávöxtur ástafunda Kennedys Bandaríkjaforseta og Marilyn Monroe. Það skipti ekki öllu í því sambandi að Kennedy og Monroe voru löngu dáin þegar þessi kona átti von á sínu barni og barn þeirra því væntanlega stálpað.

Mig hefur reyndar líka dreymt Kennedy, ekki John F. heldur Edward bróður hans. Þetta var nokkrum árum eftir að Edward skildi við fyrri konu sína. Hann var þá á ferð í Reykjavík, einn og yfirgefinn á Þorláksmessu. Ég ók framhjá honum á Hverfisgötunni og vorkenndi honum að vera svona langt frá fjölskyldunni um jólin. Ég var viss um að ég gæti einhvern veginn talað mína fjölskyldu til að bæta við einum diski á aðfangadagskvöld. Það var ekki runnið upp þegar draumurinn rofnaði.

Einu sinni dreymdi mig líka að ég væri að ræða við Ólaf Ísleifsson hagfræðing. Við erum reyndar gamlir skólabræður en sitjum ekki að spjalli frá degi til dags. Í okkar samræðum lætur Ólafur hins vegar út úr sér slíkt spakmæli að höfundur Hávamála hefði verið fullsæmdur af. Ég vakna við þetta og hugsa með mér að þetta verði ég að skrifa hjá mér. Ég hafði ekki haft rænu á að hafa skriffæri við rúmið og varð því að bregða á það ráð að hafa orðskviðinn yfir nokkrum sinnum til þess að reyna að festa mér hann í minni. Er ekki að orðlengja það að ég steinsofnaði aftur og þegar ég vaknaði mundi ég drauminn allan nema það sem máli skipti, lokasetningu Ólafs. Og þar við situr enn þann dag í dag.

Þessir draumar eru sannir en ég er ekki viss um að frændi minn sé alltaf sofandi þegar Egill Skalla-Grímsson heimsækir hann með vísur á vör. Nær er mér að halda að það séu dagdraumar. Að minnsta kosti er hann minnisbetri en ég þegar kemur að því að koma boðskapnum til skila. Kannski Egill fari oft með hverja vísu fyrir hann.

En um daginn birtist mamma heitin mér í draumi. Ekki man ég tildrög þess, en hún vill færa mér skilaboð. Svo sérkennilega vildi til að á nákvæmlega sama tíma og hún er að mæla sín boð hringir vekjaraklukkan, ég vakna og mæli sjálfur boðin af munni fram. Þessi boð man ég, ólíkt hinum sem fyrr er frá sagt og þau eru svohljóðandi: „Margar konur tortryggja feður forfeðra sinna vegna afkomutrega.“ Þegar hún byrjaði hélt ég, að hún ætlaði að segja mér að konur tortryggðu feður barna sinna, hvort sem það var vegna þess að þeir væru tortryggilegir eða að þeir væru feður barnanna. En henni lá sem sé hvorugt á hjarta heldur vék að feðrum forfeðranna (sem mér finnst nú reyndar of í lagt). Og hvað er afkomutregi? Er það treg eða lök afkoma, en sorg yfir afkomunni? Ætlaði hún að tala um afkomendur og mismælti sig? En það finnst mér ólíklegt, því að þá hefði hún átt að tala um syni afkomendanna til þess að jafnvægi væri í setningunni.

Nei, það er sama hvernig ég velti þessu fyrir mér,  ég fæ engan botn í þessi skilaboð. Ég held að það sé ólíklegt að ný Íslendingasaga verði byggð á þessum draumi. En því má ekki gleyma að Guðrún Ósvífursdóttir skildi heldur ekki sinn draum og varð að fá draumspakan mann til þess að ráða hann. En ég þekki engan slíkan svo ég viti. Líklegast finnst mér að farið sé að slá út í fyrir mömmu þarna hinum megin, ekki getur það verið ég. Mikið vildi ég óska þess að hún hefði sagt mér eitthvað auðskildara, fyrst hún var að koma til mín á annað borð.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is