
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Pistlinum hefur borist bréf. Með birtingu þess hér á Netinu er þessu máli lokið. Ég stend að sjálfsögðu við dagbókarfærslu mína en hún fjallaði um allt annan Davíð, Matthías og Jón Baldvin en um er talað í bréfinu.
Komdu sæll, Benedikt.
Dagbækur þínar eru um þessar mundir töluvert í umræðunni og greinilega hafa margir orðið til þess að lesa þær. Til vitnis um það er að mér hafa borist fregnir úr fleiri en einni átt um að þar sé að finna um mig umfjöllun í færslum ársins 2008. Ég fór því að forvitnast og fann skrif um mig á nokkrum stöðum. Mér er sama þó að um mig og mín verk falli dómar og hirði yfirleitt ekki um að svara þeim. En á einum stað í þessum færslum er spunnin upp um mig slík lygaþvæla að ég get ekki annað en beðið þig að taka hana af netinu og helst strika yfir hana í dagbókinni. Ég vil síður að hún verði heimfærð upp á mig einhvern tíma seinna.
Sagan gengur út á að þú hafir hitt mig á Austurvelli.
Síðan segir í dagbókarfærslunni: „.Hann spurði mig hvort Matthías væri endanlega búinn að tapa glórunni. „Helvítis karlinn birtir allt sem maður segir við hann. En meðan maður þurfti á honum að halda birti hann ekki múkk. Ekki eitt einasta orð. Jón Baldvin mátti hins vegar ekki ropa án þess að um það kæmi heilsíðugrein í Moggann.“
Síðan fylgir frásögn af því að ég hafi sýnt þér trúnaðarupplýsingar úr bankakerfinu, en slíkt læt ég mér í léttu rúmi liggja.
Um þetta er í stuttu máli það að segja að ég hef aldrei komið á Austurvöll, aldrei hitt þig, aldrei svo ég muni talað um nokkurn Matthías, aðeins einu sinni kallað hann helvítis karlinn, en ekki við þetta tækifæri, aldrei þekkt neinn Jón Baldvin, aldrei kvartað undan heilsíðugreinum um hann í Mogganum (enda voru greinarnar um hann aldrei minna en opna) aldrei fengið mér pulsu og kók með þér af fúsum og frjálsum vilja en það er önnur saga.
Þú gerir þetta fyrir mig.
Kær kveðja.
Davíð
Hér að neðan hef ég strikað yfir færsluna.
Laugardagur 16. ágúst. Hitti Davíð á Austurvelli. Hann spurði mig hvort Matthías væri endanlega búinn að tapa glórunni. „Helvítis karlinn birtir allt sem maður segir við hann. En meðan maður þurfti á honum að halda birti hann ekki múkk. Ekki eitt einasta orð. Jón Baldvin mátti hins vegar ekki ropa án þess að um það kæmi heilsíðugrein í Moggann.“
Svo sýndi hann mér yfirlit um skuldir nokkurra fjölmiðlamanna. Það var allt með miklum ólíkindum. Mér sýndist þetta vera eins og Bjöggi og Kjartan höfðu áður sýnt mér, svo langt sem það náði.
Fékk mér pulsu og kók á Bæjarins bestu. Langbestu pulsur bæjarins. Leyndarmálið er það að þeir setja súputeninga í pottinn. Kókið er hins vegar vont. Uppskriftin er svolítið moj og ekki eins grípandi og hún var þegar þeir buðu upp á kókaín.
Átti fund með Jóni Ásgeiri og Pálma um kvöldið. Kláruðum Northern travel dílinn og ég samþykkti að Almar kæmi aftur inn í Sterling. Skellti mér svo á B5 og hitti nokkra vini og keyrði svo heim klukkan tvö.
NÝLEGIR PISTLAR