leita

ELDRI PISTLAR

03. maí | Afsökun (JGH)
Nýlega tók ég út pistil af þessu vefsvæði, heimur.is, sem ég skrifaði hinn 25. maí í fyrra eftir að sérstakur saksóknari kærði tvo lögreglumenn, sem unnið höfðu á vegum embættisins, til ríkissaksóknara vegna meints brots á þagnarsyldu. Linnulaus umræða og stórfelldur fréttaflutningur helstu fréttastofa landsins af málinu var tilefni

Davíð Oddsson sagði þegar hann hvarf úr pólitík fyrir einu ári að hann væri kominn í „skoðana- bindindi“. Hann hefur staðið við það – þar til um síðustu helgi að hann gaf kost á sér í viðtal í Kastljósi. Davíð mætti þar sem

John Grant gaf út bestu plötu ársins árið 2010. Ég leitaði að henni í búðum en enginn vissi hver John Grant var. Platan heitir Queen of Denmark , en Danir höfðu heldur aldrei heyrt hana nefnda. Ég var að ræða þetta við kunningja minn í sumar og hann sagði


PISTLAR

01/06/2009 | 20:20

Svo lengi lærir (BJ)

Ég lærði margt um helgina. Þessum lærdómi ætla ég að deila með lesendum. Á föstudagskvöld fór ég í afmæli. Mjög skemmtilegt afmæli þar sem veitingar og skemmtiatriði voru til mikillar fyrirmyndar. Gestirnir ekki af lakara taginu eins og sést á því að við vorum þarna hjónin bæði. Og engir ráðherrar. Fyrir afmælisbarnið voru fluttar nokkrar ræður og ég tók þá vanhugsuðu ákvörðun að segja nokkur orð. Í þeim varð mér á að víkja að starfsmönnum Reiknistofu bankanna með góðlátlegum hætti að ég hélt. Minntist aðeins á að kór starfsmanna hefðu sungið jólalag í maí (með smellnum texta um afmælisbarnið), en þau höfðu treyst því að enginn tæki eftir þessu.

Síðan er búið að loka heimabankanum mínum og greiðslukortin virka ekki lengur.

Lærdómur númer eitt: Don’t mess around with Reiknistofa bankanna.

Af því að vel var veitt í veislunni vaknaði ég árla daginn eftir og þurfti á hressingu að halda. Auk þess að fá mér hressandi kóka kóla ákvað ég að hollt og gott væri að fá mér appelsínu. Ég skar hana í fjögur stykki. Appelsínan var greinilega ný, þétt og góð. En af fyrsta bitanum var óbragð. Ég beit aftur en það lagaðist ekkert. Samt var hún ekki eins og appelsínan sem ég fékk mér í London um daginn, hálf úldin. Ég beit í næsta stykki og ekki tók betra við. Þetta kallaði á nákvæma rannsókn og niðurstaðan leiddi til eftirfarandi:

Lærdómur númer tvö: Ekki skera appelsínu með hnífnum sem var í lauknum síðast.

Eftir hádegið hitti ég son minn og segi honum frá afmælinu. Eftir að hafa sagt honum frá öllum skemmtilegu ræðunum lét ég þess getið að ég hefði sagt nokkur orð. Hann spurði hvernig því hefði verið tekið og ég lét vel af því. Þá sagði hann: „Það þarf svo lítið til.“

Lærdómur númer þrjú: Hætta að tala við börnin.

Við fórum á tónleika með Deborah Voigt  á sunnudagskvöld. Hún er heimsfrægur sópransöngvari og tók um 30 einsöngslög, myndarleg kona og vel alin. Við sátum aftarlega og á næsta bekk fyrir aftan sat kona sem hafði miklar skoðanir á öllu. Fólkið sem kom of seint var „óttalegar druslur“. Við komum snemma þannig að við sluppum við komment af því tagi. En á meðan á söngnum stóð hóstaði hún stöðugt og saug upp í nefið. Einkum í veikum köflum þegar söngkonan lagði sig fram um tilfinningaríka túlkun. Henni batnaði í hléi og þá kom heldur enginn of seint.

Í uppklappinu sagði söngkonan nokkra brandara sem eflaust hafa verið góðir því að fólkið á fremstu bekkjum hló dátt.

Lærdómur númer fjögur: Ekki kaupa ódýru sætin í Háskólabíói.

Á mánudagsmorgni gengum við á Esju. Vorum innan við 55 mínútur upp að steini þrátt fyrir að ganga mjög hægt (Vigdís var miklu fljótari og mætti hún þó og spjallaði við Steingrím Sigfússon sem var á niðurleið. Ég varð ekkert var við hann, líklega hefur hann vikið langt til hægri þegar ég nálgaðist). Samt varð varla þverfótað í fjallinu fyrir fólki sem labbaði (ólíkt okkur sem gengum) á fjallið.

Lærdómur númer fimm: Óska eftir því að Esjunni verði lokað fyrir almennri umferð fyrir hádegi.

En af því að þetta er stuttur pistill og heldur innihaldsrýr set ég hér hlekk á smásögu sem ég var að skrifa um helgina og er undir áhrifum af smásagnasafni sem ég las úti í London.

Benedikt Jóhannesson

PS. Til þeirra sem létu glepjast af smásögunni:

Lærdómur númer sex: Ekki eyða tíma í smásögur Benedikts.

Heimasíðan mín


 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is