leita

ELDRI PISTLAR

28. október | Smávægileg mistök (BJ)
Það er margt sérstakt í gangi þessa dagana. Í stað þess að fjalla um það skal hér vikið að sérstæðu atviki fyrir um 70 árum. Þekktur maður hér í bæ Guðbrandur Jónsson þótti nokkuð fljótfær og eitt sinn urðu honum á eftirminnileg mistök. Auglýst hafði verið að í útvarpinu yrði

Fyrir skömmu ákvað Fjármálaeftirlitið að víkja frá stjórn Eftirlaunasjóðs Kópavogs og framkvæmdastjóra. Jafnframt var málefnum sjóðsins vísað til sérstaks saksóknara. Þetta er alvarleg aðgerð og hefur þegar leitt til þess að Gunnar Birgisson hefur ákveðið að fara í frí frá bæjarstjórn meðan á rannsókn málsins stendur. Málið er sérstakt

Þá eru búin tvö prófkjör um helgina. Mér gekk ágætilega í báðum. Í Reykjavík spáði ég rétt, á Norðvesturlandi komst minn maður í 2. sætið. Ég þuldi fyrir þá sem heyra vildu hvernig ég hélt að tólf efstu sætin myndu fara hjá Sjálfstæðismönnum. Ég gerði tvær villur. Ég hélt


PISTLAR

28/06/2009 | 23:55

Hvað gera Ómar og Flosi? (BJ)

Fyrir skömmu ákvað Fjármálaeftirlitið að víkja frá stjórn Eftirlaunasjóðs Kópavogs og framkvæmdastjóra. Jafnframt var málefnum sjóðsins vísað til sérstaks saksóknara. Þetta er alvarleg aðgerð og hefur þegar leitt til þess að Gunnar Birgisson hefur ákveðið að fara í frí frá bæjarstjórn meðan á rannsókn málsins stendur. Málið er sérstakt og erfitt að átta sig á því hvaða alvarlegu afbrot voru framin. Þó virðist ljóst að stjórn sjóðsins braut reglur um fjárfestingar. Tilgangurinn sýnist hafa verið sá að reyna að bjarga eignum sjóðsins. Miðað við það eru viðbrögð Fjármálaeftirlitsins býsna harkaleg. Miklu alvarlegra hefði verið ef stjórnin hefði látið eignirnar rýrna.

Viðbrögð félaga Gunnars í sjóðstjórninni vekja þó mikla eftirtekt. Hvað vissu þeir og hvað samþykktu þeir? Ef þeir höfðu sömu upplýsingar og Gunnar er eðlilegt að gera til þeirra sömu kröfur og til hans, að þeir víki meðan að á rannsókn stendur.

Rekjum gang málsins stuttlega:

Eftir að stjórn sjóðsins var vikið frá sendi hún frá sér yfirlýsingu. Þar sagði meðal annars: „Í efnahagsumrótinu á umliðnum vetri tók stjórn LSK yfirvegaða og upplýsta ákvörðun um, að besta leiðin til að verja hagsmuni sjóðfélaga væri að ávaxta laust fé sjóðsins til skamms tíma hjá Kópavogsbæ, þótt það væri ekki í fullu samræmi við heimildir, enda ber Kópavogsbær fulla ábyrgð á öllum skuldbindingum sjóðsins umfram eignir.“ Undir þessa yfirlýsingu skrifa meðal annarra Gunnar I Birgisson, Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, og Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylkingar, sem allir sátu í stjórn Lífeyrissjóðs Kópavogs.

Í yfirlýsingu frá Flosa Eiríkssyni sem hann sendi nokkrum dögum síðar sagði að þessi yfirlýsing hafi byggst á upplýsingum sem við nánari skoðun hafi ekki reynst réttar.

Í fundargerð stjórnar frá 10. október 2008 stendur: „Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs samþykkir að heimila forstöðumanni að lána Kópavogsbæ allt að 1 milljarð ísl. kr. Um nánara fyrirkomulag og kjör verði samið sérstaklega, en þau skulu taka mið af markaðsaðstæðum. Stjórn sjóðsins skal vera upplýst um einstakar aðgerðir.“

Í viðtölum eftir að stjórnin var sett af viðurkenndi Flosi að stjórnin hefði farið á svig við reglur til þess að tryggja ávöxtun sjóðsins.

Hann sagði hins vegar í sérstakri yfirlýsingu 21. júní: „Við nánari skoðun mína á margvíslegum gögnum, sem ég hef undir höndum sem stjórnarmaður og hef einnig aflað mér sérstaklega, lítur út fyrir að gögn hafi verið matreidd sérstaklega fyrir stjórn sjóðsins en aðrar upplýsingar hafi síðan verið kynntar í lögbundnum skýrslum til FME. Afborganir og útborganir á lánum til bæjarins virðast hafa verið tímasettar sérstaklega til að villa um fyrir eða blekkja FME, án vitneskju almennra stjórnarmanna.“

Þetta hljómar ekki vel fyrir framkvæmdastjóra sjóðsins. Gefið var  í skyn að Gunnar Birgisson hefði vitað meira um málið en aðrir stjórnarmenn og jafnvel unnið að því að blekkja þá. Ómar var sár á visir.is þann 21.6.

Aðspurður hvort hann sé sár út í Gunnar vegna framgöngunnar í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar er svar Ómars stutt og einfalt: „Já.“

Flosi er líka miður sín og undrast á visir.is hve kaldrifjaður Gunnar hafi verið:

„Hann hefur ekki játað neinar yfirsjónir af sinni hálfu," segir Flosi Eiríksson.

„Hann verður bara að eiga þetta við sína samvisku.“ segir Flosi og segist aðspurður sárna að vera með gögn á borði um að hann hafi verið blekktur af manni sem hann treysti til verka í sjóðnum.

Í Morgunblaðinu birtist grein þann 27. júní sem varpar nýju ljósi á málið. Þar kemur fram að framkvæmdastjóri sjóðsins hafi haldið stjórnarmönnum upplýstum.

„Þegar FME óskaði eftir greinargerð 15. janúar 2009, „eigi síðar en í lok dags“, um hvort fjárfestingar sjóðsins samræmdust lögum og hvort búið væri að ganga frá endurgreiðslu á láni sem sjóðurinn veitti Kópavogsbæ, þá sendi Sigrún [framkvæmdastjóri] tölvupóst á stjórnarmenn með orðunum:

„Þessir blessuðu eftirlitsmenn láta mig bara ekki í friði. Við hefðum betur sleppt því að heimsækja þá og upplýsa um stöðu mála.“

Ómar Stefánsson og Flosi Eiríksson, stjórnarmaður og bæjarfulltrúi Samfylkingar, svöruðu innan klukkutíma og vildu mótmæla tímafrestinum sem FME hafði gefið. Flosi lagði til að Sigrún gerði drög að svari, „sendi á stjórnarmenn til yfirlestrar og síðan sendi hún það fyrir okkar hönd“.

Sigrún sendi síðan drög að greinargerð rúmum klukkutíma síðar og í tölvupóstinn skrifaði hún stuttar „vangaveltur“ í fjórum liðum, þar sem stóð við fjórða tölulið: „Ég er pínulítið hrædd við að þeir birtist óvænt og heimti að skoða bókhaldið. Það er allt rétt sem kemur fram í bréfinu nema að þann 6. janúar lánuðum við bænum aftur 330 milljónir. Heildarskuld bæjarins er því 580 milljónir.“

Það var liður í gagnrýni Flosa og Ómars, að:

„Afborganir og útborganir á lánum til bæjarins virðast hafa verið tímasettar sérstaklega til að villa um fyrir eða blekkja FME, án vitneskju almennra stjórnarmanna.“

Af fundargerðum frá stjórnarfundum má hinsvegar ráða að þeir voru upplýstir um það á hverjum stjórnarfundi hvenær afborganir og útborganir á lánum til bæjarins fóru fram. Sá háttur var jafnan hafður á að lánin voru veitt til mánaðar í senn, eins og fram kemur í greinargerð sem stjórn LSK sendi Fjármálaeftirlitinu 15. janúar. Flosi Eiríksson kom að því að semja þá greinargerð og sendi í tölvupósti: „Mér líst vel á þetta í meginatriðum, krassaði aðeins í...“

Spurðir hvort þeir hygðust sitja áfram eftir að Gunnar Birgisson hætti sem bæjarstjóri og fór í leyfi sem bæjarfulltrúi sagði Ómar Stefánsson málið í eðlilegum farvegi og Flosi að hann sæi ekki ástæðu til að segja af sér „af því að Gunnar Birgisson [hafi] beitt mig blekkingum.“

Í ljósi alls þessa er það umhugsunarefni að Flosi og Ómar sögðu við sunnudagsmoggann að þeir þyrftu að kynna sér gögnin betur áður en þeir gætu svarað. Auðvitað er alls ekki víst að þeir hafi fengið öll gögn. Hins vegar virðist ljóst að þeir hafi verið upplýstir um hvernig var staðið að málum gagnvart eftirlitinu og það er alls ekki ljóst að Gunnar Birgisson hafi beitt þá blekkingum. Þvert á móti virðast þeir hafa vitað um og samþykkt alla málsmeðferð, jafnvel „krassað aðeins í“ greinargerð um málið. Í ljósi þessa er rétt að það sama gildi um þá og Gunnar Birgisson í málinu. Ef það var eðlilegt að hann hætti meðan á rannsókn stendur hlýtur það að gilda um alla stjórnarmenn sem eru bæjarfulltrúar.

Hin vegar virðist sameiginlegt markmið allra hafa verið að bjarga verðmætum og það er öfugsnúið samfélag sem refsar mönnum fyrir það á þessum síðustu og verstu tímum.

Að lokum þetta:

Þegar Morgunblaðið birti frétt sína áttu flestir lesendur von á því að aðrir fjölmiðlar fylgdu henni eftir því að bæði Bylgjan og RÚV höfðu verið dugleg við fréttaflutning af þætti Gunnars Birgissonar í málinu. Ekki var orð um málið í þessum miðlum allan laugardaginn. Því miður féllu fréttamenn þessara miðla á prófinu þennan dag.

Benedikt Jóhannesson

www.heimur.is/benedikt


 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is