leita

ELDRI PISTLAR

Ný vinstri stjórn boðar almennileg vettlingatök. Hún er það besta sem gat komið fyrir sjálfstæðis- menn. Það kemur samt á óvart að Vinstri grænir falli enn og aftur í gildruna. Í þetta skiptið láta þeir Samfylkinguna negla sig svo um munar með myndun nýrrar vinstri stjórnar rétt fyrir kosningar

17. júní | Þetta helst (BJ)
Mér fannst gaman að því að sjá í Mogganum fyrirsögnina „Benedikt var maður kvöldsins.“ Ég geymdi mér að lesa fréttina. Það er næstum jafngaman að sjá þetta og að heyra upptalningu á hátíðahöldunum á 17. júní um land allt. Það jafnast þó ekkert á við það fréttaefni nema ef

Það er alþekkt að vinátta manna stoppar ekki við flokkslínur. Þekktir menn í stjórnmálum eru þar engin undantekning. Lengi hefur verið talað um að Alfreð Þorsteinsson og Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson væru svo nánir að tala mætti um Vilfreð. Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins í R-listanum sögðu oft þegar þeim var borið á


PISTLAR

19/10/2009 | 09:14

Bréfin frá forsetanum (BJ)

Að undanförnu hafa nokkrir fjölmiðlar býsnast yfir því að Ólafur Ragnar hafi skrifað nokkur bréf fyrir vini sína og vilji svo ekki birta þau. Hvers konar dónaskapur og tilætlunarsemi er þetta? Enginn heiðvirður maður vill að bréf séu gerð opinber. Þess vegna er það sem kratarnir Jóhanna og Jens Stoltenberg skiptast á tölvupósti. Tölvupóstur er eins og póstkort, ef maður vill að allir viti eitthvað setur maður það í tölvupóst. Ólafur er hins vegar heiðvirður maður sem ber ekki sínar tilfinningar til annarra þjóðarleiðtoga á torg. Þess vegna verða bréfin hans ekki birt fyrr en eftir 30 ár.

Ólafur sjálfur upplýsti í samtali við Bylgjuna að honum væri alveg sama þó að þessi bréf yrðu birt. Hann væri fyrst og fremst að vernda þá sem fengu bréfin. Þessi skýring er auðvitað alveg skotheld. Manni vöknar um augu vegna kærleika Ólafs. Annað eins man maður ekki síðan Richard Nixon neitaði að birta skjöl úr Hvíta Húsinu, ekki vegna þess að hann hefði neitt að fela, öðru nær, þvert á móti yrði hann að vernda „forseta framtíðarinnar“ gegn ágangi þings og rannsóknaraðila.

Ólafur Ragnar og Nixon eru óeigingjarnir menn sem hugsa fyrst og fremst um aðra. Þess vegna verður Fréttablaðið að bíða í 30 ár eftir bréfunum frá honum.

Lesendur þessa pistils þurfa ekki að bíða jafnlengi. Ég flíka því ekki mikið, en Ólafur ber yfirleitt öll meiriháttar mál undir mig. Ef hann er ekki alveg viss um hvernig eigi að orða hlutina sendir hann á mig tölvupóst, eða jafnvel sms, og biður mig að hjálpa sér. Datt einhverjum í hug að línan „You ain’t seen nothing yet!“ væri frá Óla?

Á tölvupóstum er ekki nema 30 sekúndna friðhelgi og þess vegna birti ég þá hér. Sá fyrsti er nokkurra ára gamall.

„Blessaður gamli!

Þakka þér fyrir síðast. Ég er sammála þér um að einkaþota Jóns Ásgeirs er miklu flottari en þotan hans Hannesar (ég er að vísu að tala um gömlu þotuna hjá Mr. Smáras. Dorrit segir mér að sú nýja sé miklu flottari). Hugsaðu þér í gamla daga þegar maður þurfti að fara með almennu flugi. Ojojoj.

Ég er að setja saman punkta í bréf til Billa. Jón Á. þarf að fá hann til þess að tala í fjórar mínútur. Here goes:

Kæri Bill!

Jón Ásgeir, einn af mínum bestu stuðningsmönnum,  ætlar að vera með fund í Tívolí í Kaupmannahöfn (þú þekkir Kaupmannahöfn, þar er Erótíska safnið). Myndir þú ekki segja nokkur orð við liðið? Hann borgar vel, það er ekki málið. Þetta er svona á léttu nótunum. Grín og glens með siðferðilegum boðskap. Mér dettur í hug að eftirfarandi myndi fara vel íþetta lið:

1. Hvernig maður kemst í hassvímu án þess að anda að sér.
2. Þjálfun lærlinga. Sjáið um hana persónulega.
3. Að verða frægur án þess að gera neitt.

Hafðu ekki áhyggju af því hvað þú segir þarna, þetta fólk er engar teprur (hvernig segir maður tepra á ensku?).

Þinn aldavinur,

Óli Raggi (mér finnst rétt að skrifa þetta svona fyrst ég kalla hann Bill en ekki William)

PS: Ég er náunginn sem stakk upp á því við þig að gera teiknimynd um Snorra Þorfinnsson, fyrsta hvíta manninn sem fæddist í Bandaríkjunum. Þú hlýtur að muna það. Við töluðum saman í 10 mínútur, tvöfalt lengur en var fyrirfram ákveðið. Ég er með flottan lokk (bara ef þú ert ekki alveg viss hver ég er).

PPS: Næst þegar þið Hill komið, ekki heimsækja Davíð líka. Það er ekkert skemmtilegt.“

Síðastliðið haust kom þessi póstur til mín frá Ólafi:

„Hæ,

gaman var á sýningunni um Ladda sextugan. Ég get aldrei hætt að hlæja að bröndurunum hans. Sérstaklega Elsu Lund. Hún er sko fyndin.

Stjórnin er búin að klúðra öllu. Ég ætla að skrifa bréf til fjármálaráðherra Bretlands til þess að fá hann til að afnema neyðarlögin. Ég skrifaði það á ensku:

„Oh, Darling!

Please believe me. I'll never do you no harm. Believe me when I tell you I'll never do you no harm.

Oh Darling, if you leave me I'll never make it alone. Believe me when I beg you don't ever leave me alone. When you told me, you didn't need me anymore, well you know I nearly broke down and cried. When you told me you didn't need me anymore, well you know I nearly fell down and died.

Oh Darling, if you leave me. I'll never make it alone. Believe me when I tell you I'll never do you no harm.

Yours Sincerely, etc.“

Finnst þér ég nokkuð of persónulegur? Ég verð náttúrlega að láta manninn vita að við höfum ekki ætlað að gera honum neitt og Íslendingar geti ekki án hans og Browns verið.“

Síðasti tölvupósturinn sem ég birti í þetta sinn er líka frá október 2008.

„Blessaður gaur,

nú þarf ég að skrifa bréf til International House of Pancakes. Nú er ég reiður. Veistu hvað þeir gerðu þessir dónar? Hvað á ég að gera? Hvernig geta menn gert þetta?

Þeir birtu þessa frétt:

„Saturday, October 18, 2008

Icelandic Prime Minister Geir Haarde With A Frozen Pancake On His Head



An oil portrait of the Prime Minister of Iceland Geir Haarde with a frozen pancake on his head.

Thanks to Icelandic news site
MBL.is for their story on my President Olafur Ragnar Grimmson painting.

International House Of Pancakes



A miniature 4 by 6 inch oil painting of Icelandic President Olafur Ragnar Grimmson with a frozen pancake on his head. One of a series of four International Pancakes posted for auction. Other subjects include Canadian Prime Minister Stephen Harper, German Chacellor Angela Merkel, and French President Nicholas Sarkozy.“

 

 

 

Maður skilur að forsetanum hafi sárnað.

 

Benedikt Jóhannesson

 

www.heimur.is/benedikt

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is