leita

ELDRI PISTLAR

18. nóvember | Tíu bestu staðirnir (BJ)
Listar eru vinsælir meðal blaðamanna. Hverjir eru tíu bestu söngvarar sögunnar, 100 vinsælustu plöturnar, langorðustu þingmennirnir, skemmtilegustu auðmennirnir. Síðasti listinn yrði kannski stuttur núna. Og þó. Steingrímur J. ætlar að ná þremur milljörðum í stóreignaskatti af þeim sem enn eiga peninga. Það er rétt að refsa þeim fyrir mistök

Ég sat skemmtilega ráðstefnu í Háskóla Íslands þar sem rætt var um samband akademíunnar og atvinnulífsins. „Samband platheima og raunheima,“ eins og Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, nefndi þetta samband fyrir framan fræðasamfélagið og bætti því við að þetta væri meira sagt í gríni en alvöru. Þetta

Málarinn Gauguin var um tíma félagi málarans heimsfræga Vincents Van Goghs í borginni Alres í Frakklandi. Hann varð sem kunnugt er vitskertur, skar af sér eyrað og fyrirfór sér á endanum. Gauguin segir frá síðustu dögum sínum á svæðinu í bókinni Berorðar skýrslur Gauguins sem mér áskotnaðist fyrir skömmu. Kíkjum


PISTLAR

19/02/2010 | 19:55

Lán Sólons furðulegasta lánið (JGH)

Nýlega var sagt frá því að Arion banki hefði höfðað mál gegn Björgólfi Thor vegna persónulegra ábyrgða sem hann og faðir hans tókust á hendur þegar Samson fékk lán hjá Búnaðarbankanum vorið 2003 til að kaupa Landsbankann. Þetta var lán upp á 3,4 milljarða sem var um fjórðungur af kaupverði bankans sem var rúmir 12 milljarðar og þótti nokkuð væn upphæð. Þetta lán stendur núna í 6 milljörðum króna með dráttarvöxtum. En það spyrja sig allir að því sama; hvernig stóð á því að þetta lán lak ekki út og hvernig gat það samrýmst lánareglum Búnaðarbankans á þessum tíma?

Ég held að þetta lán til Björgólfsfeðga sé furðulegasta lánið af mörgum stórfurðulegum lánum síðasta áratuginn. Eftir hrunið kom t.d. í ljós að eigendur bankanna – valdablokkirnar – lánuðu sjálfum sér út og suður og fóru með bankana sem sína eigin. En þetta lán Búnaðarbankans stendur samt einhvern veginn út úr. Þar var ríkisbanki að lána athafnamönnum fyrir kaupum á öðrum ríkisbanka.

Björgólfsfeðgar hafa ekki greitt af þessu láni. Það held ég að standi í flestum. Hvernig má það vera að eftir að þeir breyttu Landsbankanum í glannalegan Icesave-banka og greiddu sjálfum sér tugi milljarða í arð út úr bankanum og státuðu sig af að vera á lista Forbes yfir ríkustu menn í heimi skyldu þeir ekki greiða þetta lán í Búnaðarbankanum?

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði að ef eitthvað lán yrði aldrei gefið eftir þá væri það þetta lán. Björgólfur Thor bauðst fyrir nokkrum mánuðum til að greiða helminginn af láninu, um 3 milljarða, (væntanlega sinn helming að hans mati) og að málið yrði dautt. Því var hafnað. Ekki veit ég hvort það sé sniðug taktík, stundum er best að taka svona tilboðum til að fá eitthvað greitt yfirhöfuð. En í þessu tilviki er þetta spurning um stolt, það er eflaust ekki hægt að kyngja afslætti af þessu láni eftir það sem á undan er gengið.

Ég er raunar enn að furða mig á því hvernig Búnaðarbankinn, sem þá var ríkisbanki, gat lánað svona háa fjárhæð til Björgólfsfeðga og Magnúar Þorsteinssonar án þess að það læki út. Þetta var best geymda leyndarmálið fyrir og eftir útrás. En fyrr má nú fyrr vera.

Sólon R. Sigurðsson, bankastjóri Búnaðarbankans, sem veitti lánið sagði nýlega í sjónvarpsviðtali að hann hefði orðið undrandi þegar Halldór Jón Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, hefði haft samband við sig um þetta lán. Ég hélt að þessir menn væru að koma með fullt af dollurum til landsins, svo mikið magn, að það hálfa væri nóg, sagði Sólon.

Svo er að skilja að þetta lán hafi verið einhvers konar kaup kaups því Landsbankinn væri tilbúinn að lána S-hópnum til kaupa á Búnaðarbankanum. En var þetta lán í samræmi við lánareglur Búnaðarbankans á þessum tíma? Hverjar voru lánareglurnar? Þurfti ekki að bera lán af þessari stærðargráðu undir sérstaka lánanefnd og stjórn bankans - jafnvel fjármálaráðherra? Það er óskiljanlegt að þetta lán skyldi ekki leka út. Þetta voru ekki 300 milljónir sem þóttu góð summa á þessum tíma, þetta voru 3 milljarðar.

Sólon var ekki einn um að halda að félagarnir þrír væru með fullar hendur fjár eftir að hafa selt bjórverksmiðjuna Bravo í Pétursborg til Heineken fyrir metfé; á gengi þess tíma um 40 milljarðar króna ef ég man þetta rétt. Einhvern afslátt þurftu þeir að gefa af umsömdu söluverði þegar upp var staðið.

Þegar þeir Samsonar keyptu Landsbankann voru þeir mjög harðir á sínu og fengu afslátt af umsömdu kaupverði. Þeir seigluðust og voru þrjóskir, fundu klásúlur til að lækka kaupverðið. Þeir voru sagðir snjallir samningamenn á þeim tíma.

Þegar lán Búnaðarbankans var veitt til þeirra gerði Sólon þá kröfu að feðgarnir tækjust á hendur persónulega ábyrgð samfara láninu. Lánið var formlega afgreitt 23. apríl 2003 og höfðu Björgólfsfeðgar þá ekki fengið lyklavöldin að Landsbankanum og var bankinn því enn að formi til ríkisbanki - þótt ákveðið hefði verið að selja þeim bankann.

Þegar málshöfðunin gegn Björgólfi Thor var borin undir talsmann hans svaraði hann að Björgólfi Thor væri ekki kunnugt um hana enda hefði hann litið svo á að hann væri enn í samningaviðræðum við Arion banka.

Venjulegt fólk fer á taugum ef það getur ekki greitt tíu þúsund krónur í bankanum sínum um mánaðamót en sex milljarðar eru einhvern veginn öðru vísi. Skrítið; er verið að höfða mál gegn mér út af sex milljörðum? Ég hélt að ég væri enn að semja um þetta.

En Sólon á setninguna: Ég hélt að þeir væru að koma með svo mikið af dollurum til landsins að það hálfa væri nóg.

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is