
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Stríðsfrétt Moggans á forsíðu undir yfirskriftinni Jóhanna beitti þrýstingi er í sjálfu sér ekki ný frétt. Jóhanna hefur alltaf beitt þrýstingi. Hún er fræg fyrir að hafa í hótunum við þá sem hún vinnur með fái hún ekki sínu framgengt. Hún hótaði Jóni Baldvin Hannibalssyni á sínum tíma og stóð við það; klauf Alþýðuflokkinn og stofnaði Þjóðvaka. Jón Baldvin sagði síðar um þann klofning að ekkert böl væri verra en heimilsböl.
Yfirleitt nennir enginn að vinna með fólki sem stillir alltaf öðrum upp við vegg. Vinstri grænum líður hins vegar vel við vegginn með sín sviknu kosningaloforð.
Svo hnípnir eru Vinstri grænir að Hjörleifur Guttormsson boðar það í blaðagrein í Morgunblaðinu að við blasi að flokkurinn klofni formlega.
En hvers konar þrýstingi beitti Jóhanna í þetta skiptið, að sögn Morgunblaðsins?
Jú, hún hringdi í Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, og bað hann um að vera jákvæðan gagnvart því ef Alþingi ákærði hann fyrir Landsdómi fyrir vanrækslu í starfi í aðdraganda hrunsins. Hann gæti þá borið af þér sakirnar og komið betur út úr þessu; hreinsað nafn sitt og ábyrgð á bankahruninu.
Í fréttinni segir að Björgvin hafi ekki tekið þessu vel og „lagt allt annað mat á stöðuna“.
Skrítið.
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem fjallað er um Glitnishelgina frægu sést vel að forystumenn Samfylkingar héldu Björgvini algerlega utan við málið þótt viðskiptamálin og bankarnir væru á hans könnu.
Alþingi skipaði snemma á árinu sérstaka þingmannanefnd undir formennsku Atla Gíslasonar til að fara ofan í grunninn á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Rannsóknarnefndin komst síðar að því að þrír ráðherrar hefðu sýnt vanrækslu í aðdraganda hrunsins. Þeir Geir H. Haarde, Árni M. Mathiesen, Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Samkvæmt fréttum Morgunblaðsins hefur fjórði ráðherrann bæst við að mati þingmannanefndar Atla Gíslasonar. Það er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingar.
Blaðið segir að tilkynnt verði um helgina að allar líkur séu á því að nefndin leggi til að Landsdómur verði kallaður saman til að fjalla um hugsanlega ábyrgð þessara fjögurra ráðherra.
Það eru stórtíðindi því ekkert hefur heyrst frá nefndinni og finnst mörgum sem miklar umræður og opinskáar þurfi að fara fram á Alþingi áður en ráðherrar eru dregnir fyrir Landsdóm. Þær umræður hafa ekki farið fram.
Samfylkingin er sögð nötra vegna þessa máls. Össur sé á taugum því hann var oddiviti flokksins þegar Ingibjörg var í veikindaleyfi. Allir vita að Össur vissi sitt lítið af hverju síðustu vikurnar fyrir hrun.
Jóhanna sjálf spilar dæmið alltaf þannig að hún hafi ekki vitað neitt um það sem rætt var um efnahagsmál innan stjórnarinnar síðasta árið fyrir hrun.
Allra síst hvarflar að henni að hún geti á einhvern hátt verið ábyrg sem ráðherra.
Raunar hefur Samfylkingunni tekist það áróðursbragð að vera stikkfrí varðandi hrunið; að hrunið hafi verið Sjálfstæðisflokknum einum flokka að kenna - þótt Samfylkingin hafi verið í stjórn frá vorinu 2007.
Það er líka til fullt af fólki sem trúir Samfylkingu og Vinstri grænum að heimskreppan og fjármálakreppan sem skók alla fjármálamarkaði heims haustið 2008 sé Íslendingum að kenna. Ergó; þar með Sjálfstæðisflokknum einum að kenna.
Ingibjörg Sólrún hefur sagt það óþolandi að við Íslendingar komum alltaf fram erlendis með þá sjálfsmynd að við séum sakborningar í bankahruninu og fjármálakreppu heimsins.
Í lögum um ráðherraábyrgð segir: „Hafi ráðherra bakað almenningi eða einstaklingi fjártjón með framkvæmd eða vanrækslu, sem refsiverð er eftir þessum lögum, skal og þegar þess er krafist jafnframt hegningunni dæma hann til að greiða skaðabætur, en um skaðabótaskyldu hans fer eftir almennum reglum.“
Hverjir verða dregnir fyrir Landsdóm? Það er athyglisvert að Atli Gíslason sagði á Rás 2 áður en skýrsla rannsóknarnefndarinnar kom út að ákærur væru ekki höfuðmálið að sínu viti heldur ætti nefndin fyrst og fremst að draga ályktanir af því hvað mætti betur fara og gera þá hugsanlega lagabreytingar í kjölfarið.
Það verður fróðlegt að sjá að hvaða niðurstöðu þingmannanefndin kemst um vini sína og fyrrverandi samstarfsmenn.
Sagt er að þingheimur standi á öndinni út af málinu. Hvernig verður tekið á Ingibjörgu Sólrúnu? Tekur Björgvin ákærunni fagnandi og brosandi út að eyrum eftir að hafa talað við Jóhönnu?
Þingmannanefndin hafði komist að þeirri niðurstöðu að þrír fyrrverandi seðlabankastjórar og fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlistins hefðu gerst sekir um vanrækslu, líkt og rannsóknarnefnd Alþings komst að.
Settur ríkissaksóknari sá hins vegar ekkert tilefni til að efna til sakamálarannrsóknar á hendur fjórmenningunum. „Ef þetta er niðurstaðan þá er þessu málið lokið,“ sagði Atli Gíslason eftir að sú niðurstaða lá fyrir.
Rannsóknarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að orsakir hrunsins væru fyrst og fremst að finna í örum vexti bankanna sem urðu tífalt stærri en hagkerfið. Vinnubrögð stærstu eigenda bankanna og stjórnenda þeirra þóttu ámælisverð - sem og gegndarlaus útlán bankanna til eigenda sinna.
Það verður fróðlegt að sjá hvaða niðurstaða verður kynnt vegna Landsdómsins. Þrír, fjórir eða fimm ráðherrar? Eða bara tveir; Geir og Ingibjörg Sólrún?
Hvað með Össur? Var hann þarna einhvers staðar nálægt eða var hann þá þegar orðinn óbreyttur ráðherra á dekki.
Hvað með Jóhönnu sjálfa sem telur sig eflaust hafa verið duglegan, virtan og virkan ráðherra í stjórn Geirs. Ráðherra sem beitti þrýstingi fyrir sínum málaflokki.
Það skyldi þó aldrei vera að nefndin komist að þeirri niðurstöðu að ráðherrar Samfylkingar beri sína ábyrgð á hruninu. Það eru talsverð tíðindi.
Ætli Steingrímur J. viti af þessu?
Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is
NÝLEGIR PISTLAR