leita

ELDRI PISTLAR

Miklar sviptingar eru í fylgi flokkanna, samkvæmt nýjum könnunum. Sjálfstæðis- flokkur er í sókn á meðan Samfylking og Vinstri grænir dala. Fylgi við stjórnina minnkar dag frá degi og augljós þreytumerki eru á henni. Lifir hún fram á haust? Það fer ekki á milli mála að stjórnin

Ég ætla að spá því að 25% fyrirtækja geti ekki greitt út laun um næstu mánaðamót. Ég ætla líka að hrósa Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að gagnrýna ofurlaun nýrra bankastjóra ríkisbankanna. Það, að Finnur Sveinbjörnsson, nýr bankastjóri Kaupþings, skyldi segjast með stollti vera með tæpar 2 milljónir á mánuði er

16. ágúst | Verð ég með? (BJ)
Stundum spyr fólk mig hvort ég ætli að skrifa pistil um eitthvað sem það segir eða gerir í návist minni. Líklega óttast flestir þetta. Að minnsta kosti finnst mér fólk almennt tala miklu greindarlegar við mig núna en mig minnir að það hafi gert áður en ég byrjaði að


PISTLAR

07/01/2011 | 16:04

Allt fjölmiðlum að kenna (JGH)

jong_nyÖgmundur Jónasson innanríkis- ráðherra sagði í Kastljósi að fjölmiðlar væru að magna upp átök innan stjórnarinnar og þeir töluðu öll mál upp í deilur. Þegar Sigmar spurði hvort átökin innan Vinstri grænna væru þá fjölmiðlum að kenna svaraði Ögmundur að fjölmiðlar hefðu ekki lært af hruninu og hræddust málefnalegar umræður. Þeir skautuðu grunnt yfir mál. Hann sagði að stjórnin kæmi sterk inn í nýtt ár en fjölmiðlar blésu upp ágreining á stjórnarheimilinu og skildu ekki að það væri eðlilegur hlutur að tekist væri á um málefni.

Ekki veit ég hvers vegna Ögmundur valdi að ræða ágreininginn innan Vinstri grænna og stjórnarinnar með þessum hætti. Það dylst engum að flokkurinn er að klofna varðandi stuðning við ríkisstjórnina.

Ögmundur Jónasson, Steingrímur J., Álfheiður Ingadóttir og gömlu brýnin í Vinstri grænum vilja allt í einu ekki að fjölmiðlar ræði um sundrungu innan ríkisstjórnar og getuleysi hennar.

Í undanfara búsáhaldarbyltingarinnar þótti þeim hins vegar eðlilegt að fjölmiðlar fjölluðu um slík mál. Hörður Torfason hefur meira að segja gefið í skyn að búsáhaldarbyltingunni hafi verið stýrt af Vinstri grænum.

Ég spái því að það verði kosningar á þessu ári. Ástæðan er andstaða Vinstri grænna við aðildarumsóknina að Evrópusambandinu og niðurskurðurinn á fjárlögum og velferðarkerfinu. Hinn sterki kjarni í Vinstri grænum sættir sig ekki við þetta. Steingrímur J. verður undir – einungis spurning um tíma.

Á þingflokksfundi Vinstri grænna í fyrradag lét Steingrímur J. órólegu deildina heyra það og skammaðist yfir því að flokksmenn ræddu ágreiningsmálin innan flokksins í fjölmiðlum.

Hvernig dettur nokkrum í hug að hægt sé að takast á um stórmál í pukri og halda að ekkert berist út til fjölmiðla og þar með almennra flokksmanna og kjósenda flokksins. Er flokkurinn til fyrir kjósendur eða kjósendur til fyrir flokkinn?

Til hvers að halda þessum umræðum og ólíku skoðunum leyndum ef þetta eru svona málefnalegar umræður eins og Ögmundur lýsir – en það séu fjárans fjölmiðlarnir sem blási þetta allt upp?

Mörgum þingmönnum Vinstri grænna finnst umsóknarferlið komið í allt annan farveg en samþykkt var í stjórnarsáttmálanum. Aðlögunin sé hafin og hún hafi ekki verið samþykkt.

Jóhanna Sigurðardóttir gaf Steingrími J. nokkra daga fram yfir áramót til að koma skikki á sitt fólk...annars. Já, hvað annars? Hún hefur áður sagt að það sé stutt til Bessastaða en hún getur ekki hótað því aftur og aftur og talað um að vandinn sé eingöngu innan Vinstri grænna.

Jóhanna hefur talað um suma þingmenn Vinstri grænna sem illsmalanlega ketti. Hún hikar ekki við að gera lítið úr Jóni Bjarnasyni þegar hann segir að flokksráð Vinstri grænna hafi samþykkt á síðasta ári að ekki kæmi til greina að leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðararáðuneytið – og allra síst á meðan aðildarumsókn að ESB stæði yfir. Jóhanna ætlar að losa sig við Jóna Bjarnason.

Þá hefur Össur rætt um Lilju Mósesdóttur sem strokgjarna meri og Ásmund Einar Daðason sem folald hennar. Össur sagði að stuðningur þeirra hefði engin áhrif á stöðu ríkisstjórnarinnar. Þetta er mikill oflátungsháttur og Össuri líkt að tala niður til fólks. Jóhanna og Össur vita að það er að fjara undan stjórninni.

Jóhanna hefur barið Steingrím J. til hlýðni. Hún hefur hann í vasanum. Samfylkingin hefur þetta tak á Vinstri grænum: Ætlið þið að vera fólkið sem getur ekki haldið úti fyrstu hreinræktuðu vinstristjórninni? Þessi setning virðist vera nóg.

Ég tók eftir því í pistli Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Morgunblaðinu sem bar yfirskriftina Fer Bjarni að heiman? að hún vill fá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar aftur. Kolbrún talar um hysteríuköst einstakra þingmanna Vinstri grænna með tilheyrandi leiðindum fyrir þjóðina.

Kolbrún bætir síðan við: „En Samfylkingin virðist þó enn um sinn dæmd til samvista við flokk sem er sundurtættur af innanflokksátökum.“

Þetta segir ansi mikið um það hvernig stuðningsmenn Samfylkingar hugsa. Þeir gefa sér að lögmálið sé að Samfylking sé alltaf við völd (dæmd til þess) og grípi til annarra flokka eftir behag til að koma málum sínum í gegn.

Hún eggjar síðan Bjarna Benediktsson til að fara að heiman. Hann sé ósjálfstæður í hugsun og gefur í skyn að hann sé vingull sem fyrst og fremst reyni að gera gömlum mönnum til geðs (Davíð) og sjái þá sem sína föðurímynd.

Síðan segir hún: „Flest vitum við að það er ekki gott að láta aðra hefta sig. Sjálfstæði er alls ekki það sama og gömul sjálfstæðisstefna. Allir einstaklingar eiga að hafa frelsi til að finna sig á sínum eigin forsendum. Bjarni Benediktsson verður einhvern tíma að fara að heiman.“

Þetta er athyglisverð niðurstaða því í upphafi pistilsins gagnrýnir hún þingmenn Vinstri grænna fyrir óþolandi hysteríuköst en telur samt að allir eigi „að hafa frelsi til að finna sig á eigin forsendum“.

Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar blása það út hvað stjórnarandstaðan sé léleg og máttlaus og Ögmundur Jónasson sagði í Kastljósi að flestir vildu ekki að núverandi stjórnarandstaða tæki við – og á honum mátti skilja að stjórnarandstaðan vildi heldur ekki taka við.

Ögmundur hefur ekkert fyrir sér í þessu annað en eigin tilfinningu. Ríkisstjórnin nýtur aðeins stuðnings 35% þjóðarinnar. Þjóðin vill kosningar og það er ekkert sem bendir til þess að hún vilji ekki að aðrir taki við. Þveröfugt.

Aðeins um vegatollana sem Ögmundur var spurður um í Kastljósinu. Á þessu ári fara 15,9 milljarðar króna til vegamála og þar af 6 milljarðar til nýframkvæmda. Bíleigendur greiða hátt í 50 milljarða í opinber gjöld og þar af 29 milljarða bara í gegnum eldsneytiskaup.

Ögmundur sagði að þetta yrði litlir vegatollar, svona á bilinu 150 til 300 krónur. Tökum 200 krónur. Það gerir 100 þúsund krónur á ári fyrir t.d. íbúa á Selfossi í aukna skatta að aka í vinnu til Reykjavíkur á hverjum virkum degi. Þess utan greiðir hann 264 þúsund krónur í eldsneytisskatta fyrir að aka þessa veglengd.

Það var eins og maðurinn sagði við mig í morgun: Ríkisstjórnin horfir út um gluggann og sér bíla aka framhjá. Fínt, fólk á bílum; skattleggjum það. Ríkisstjórnin sér fólk ganga inn í vínbúðir. Fínt skattleggjum það.

Ríkisstjórnin veit ekki hvað teygni er. Þegar verð á víni og bensíni hækkar þá minnkar  neyslan (magnið) og tekjurnar dragast saman og verða ekki eins miklar og áætlað var. Leið ríkisstjórnarinnar er að hækka þá verðið aftur.

Stjórnin sér heldur ekki að það er teygni í fylgi stjórna. Meira úrræðaleysi – minna fylgi. En það er víst fjölmiðlunum að kenna.

Jón G. Hauksson

jgh@heimur.is

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is