leita

ELDRI PISTLAR

25. september | Í framboði (BJ)
Nú styttist í prófkjör í Reykjavík og ég þarf að ákveða hvort ég býð mig fram. Þegar ég var strákur hafði ég aðeins eitt markmið í lífinu: Að verða stjórnmálamaður. Aðrir strákar vildu verða slökkviliðsmenn og kokkar en ég ætlaði að verða ráðherra. Ég átti svosem ekki langt að

Nú orðið gerir enginn neitt. Menn eru þess í stað að gera hlutina. Þingmenn eru að ræða málin, handknattleiks menn eru að leika illa, ráðherrann er að blogga alla nóttina. Það er nánast sama hver opnar munninn eða stingur niður penna, alltaf kemur þetta fáfengilega orðalag. Enginn er óhultur.

10. janúar | Er botninum náð? (JGH)
Er botninum náð? Það er sú spurning, sem allir spyrja sig núna, eftir að hlutabréf hafa hríðfallið í verði á fyrstu dögum þessa árs. Árið hefur aldrei byrjað eins illa í Kauphöllinni og sama er að segja um kauphallir erlendis. Í Bandaríkjunum eru menn þegar farnir að velta því


PISTLAR

27/05/2011 | 17:03

20 mistök ríkisstjórnarinnar (JGH)

jong-2011Steingrímur J. Sigfússon baðst afsökunar á ummælum sínum á  flokksráðsfundi VG um síðustu helgi þegar hann sagði í ávarpi  á fundinum að eignabruni hefði verið mikill eftir hrunið en samt ekki hjá venjulegu fólki. Afsökunin kom fram eftir helgina eftir að frasinn hafði farið eins og eldur í sinu um þjóðfélagið og Steingrímur áttaði sig á að hann hafði orðið að athlægi.

Steingrímur talaði um mikla samstöðu og eindrægni á fundinum og sagði að flokksmenn hefðu þjappað sér saman um að styðja ríkisstjórnina og halda áfram því verkefni sem þjóðin hefði falið Vinstri grænum; að koma Íslandi upp úr kreppunni.

Ég held að það sé mikil mistúlkun að gefa sér það að kosningaúrslitin hafi táknað að þjóðin væri að fela þessari ríkisstjórn að koma Íslandi upp úr kreppunni. Í kosningunum var fólk að refsa þeim flokkum sem höfðu staðið vaktina í hruninu.

Samfylkingin var eins og korktappi í ólgusjó hrunsins, hún flaut ofan á þótt hún hefði verið á vaktinni í hruninu.

Vinstri grænir unnu sigur vegna þess að þeir stóðu utan við stjórn landsins í aðdraganda hrunsins og í sjálfu hruninu og gátu þvegið hendur sínar af því. Þeir hvöttu hins vegar til byltingar á Austurvelli og Hörður Torfason hefur gefið í skyn í viðtölum að þeir hafi skipulagt mótmælin.

Helsta takmark Steingríms J. og Vinstri grænna var að setja Geir Haarde á sakamannabekk. Þeim tókst það með ótrúlegri framgöngu Samfylkingar. Maðurinn sem setti neyðarlögin sem björguðu Íslandi er kominn á sakamannabekk og erfitt er að finna brotin þegar ákæran er lesin.

Ríkisstjórnin hefur gert mörg mistök og hún hefur orðið sáralítið fylgi. Þjóðin hefur enga trú á að hún komi Íslandi upp úr kreppunni. Landsframleiðsla drógst saman um 7% á árinu 2009 og 4% á síðsta ári. Enn glittir ekki í hagvöxt.

Venjulega fólkið í landinu skynjar ástandið í atvinnulífinu sem bratta brekku. En bankarnir, sem sporðreistu landið, lifa orðið góðu lífi. Þeir högnuðust um 70 milljarða á síðasta ári og miðað við fyrstu tölur þessa árs stefnir í 80 milljarða króna hagnað þeirra á þessu ári.

Þetta eru að verða 2007 tölur og sagt er að innan bankanna vilji helst allir komast í 2007 ástand – því það voru góði árin og smjör draup af hverju strái. Skiptir engu þótt um útlánabólu hafi verið að ræða og velgengni bankanna algjörlega byggð á sandi eins og varð raunin.

Það má heyra á tali fólks í fleiri stórfyrirtækjum, sem hafa verið endurreist með því afskrifa skuldir þeirra og byrja upp á nýtt, að gömlu tímarnir séu að koma aftur og árangur þessara fyrirtækja sé mjög góður.

Venjulegu fyrirtækin – sem reyna ævinlega að standa í skilum – hafa fengið lítið afskrifað í bankakerfinu. Venjulega fólkið hans Steingríms – sem reynir sömuleiðs að standa í skilum – hefur heldur ekki fengið afskrifað.

Venjulega fólkið bíður eftir að þessi ríkisstjórn fari frá og nefnir 20 mál sem hafa þvælst fyrir ríkisstjórninni.

20 mistök ríkisstjórnarinnar

1. Icesave-lög. Hrikaleg mistök.
2.Skattar. Stórhækkaðir.                                                                                                                                                                                                                             3. Stjórnlagaþingið. Kosning klúðraðist.
4. Sameining ráðuneyta. Enginn sér tilganginn.
5. Kvótafrumvarpið. Minnkar arðsemi af sjávarútvegi.
6. Gjaldeyrishöftin. Draga úr allri fjárfestingu.
7. Bankamálin. Engin tök á bönkum.
8. Jafnréttismál. Jóhanna braut jafnréttislög við ráðningu.
9. Samkeppnishæfni Íslendinga. Versnað skv. nýrri skýrslu.
10. ESB-málið. Ríkisstjórnin ósammála í þessu máli.
11. Persónuafsláttur. Hann var skertur.
12. Verðtryggingin. Kemur ekki til mála að fella úr gildi.
13. Nýr seðlabankastjóri. Viðheldur gjaldeyrishöftum.
14. Stöðugleikasáttmálinn. Ríkisstjórnin sveik hann.
15. Orkuframkvæmdir. Dragbítur og HS Orku klúðrið.
16. Ósætti. Ósætti milli stjórnarflokkanna.
17. Launamál bankamanna. Engin tök á þeim.
18. Ákæran á hendur Geir Haarde. Mikil mistök.
19. Nýir kjarasamningar. Svik. Lofað að stugga ekki við sjávarútveginum en strax svikið.
20. Atvinnuleysi. Hert á sköttum fyrirtækja.

Ég held að þetta sé ekki ríkisstjórn venjulega fólksins. finnst ykkur henni treystandi til að koma Íslandi upp úr kreppunni?

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is