leita

ELDRI PISTLAR

Nýlega áskotnuðust mér nokkrar bækur. Kannski ekki í frásögur færandi því að ég er alltaf að eignast bækur. Að undanförnu hef ég meira að segja verið duglegur að lesa bækur sem ég hef eignast. Nú hitti ég á eina af þeim bókum sem ég hafði aldrei heyrt um heldur

Það er einkennilegt hvað stjórnmálamönnum gengur illa að standa við orð sín. Að vísu er það ekki einstakt um stjórnmálamenn en þeir ættu þó að vera öðrum fyrirmynd. Hér er ekki bara átt við kosningaloforð. Allir taka þau með fyrirvara hvort sem er. Eftir kosningar er hægt að segja sem

25. október | Falskt tal um sátt (JGH)
Heldur misreiknaði ég mig í síðasta pistli þegar ég spáði fyrir um úrslit kosninga um tillögur stjórnlagaráðs og sagði að nei yrði ofan á. Úrslitin eru skýr varðandi já og nei í könnuninni þótt ekki sé ég sannfærður um að „vilji þjóðarinnar“ sé jafn afgerandi og menn vilja vera


PISTLAR

07/10/2011 | 19:22

Sjónminjasafnið (JGH)

jong-2011Í nýrri könnun, sem MMR birtir, kemur fram að um helmingur telur byggingu nýs hátækni- sjúkrahúss góða ráðstöfun á skattfé. Það væri í sjálfu sér ágætt nema á sama tíma dengjast yfir okkur fréttir um fjárlög og galtóman ríkissjóð – og að lengra verði ekki gengið í almennum sparnaði á Landspítala heldur sé komið að því að loka deildum og segja upp fólki og sjúklingum.

Sömu fréttir berast af sjúkrahúsum úti á landi; ekki síst úr kjördæmi fjármálaráðherra.

Þegar rýnt er ofan í svörin kemur fram að kjósendur Samfylkingar og Vinstri grænna eru hörðustu fylgismenn þess að það sé góð ráðstöfun á skattfé að byggja hátæknisjúkrahús. Um 60% þeirra telja það góða ráðstöfun samanborið við 40 til 45% þeirra sem kjósa Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk.

Í könnuninni telur helmingur bygginguna vera góða ráðstöfun á skattfé en helmingur lélega.

Einhverjir gætu látið sér detta í hug að að betra væri að setja féð í hjúkrun og umönnun við sjúka heldur en að láta sig dreyma um steypuframkvæmdir við Hringbraut. En Íslendingar hafa alltaf verið hrifnir af steypu, hún er áþreifanleg og var lengi talin einhver besta fjárfesting sem völ væri á.

Það er erfitt að átta sig á því hvers vegna svo margir telja byggingu nýs hátæknisjúkrahúss upp á tugi milljarða góða ráðstöfun á skattfé undir þessum kringumstæðum þegar loka þarf deildum og segja upp sjúklingum og starfsfólki sjúkrahúsa.

Með nýju sjúkrahúsi kemur augljóslega þrýstingur á að skera enn meira niður á spítölunum til að kreista fram fé.

Það hefði sennilega þurft að vera í spurningunni svo svarendur áttuðu sig á því litla aukaatriði.

Taka þarf tugi milljarða lán fyrir byggingunni sem aftur eykur halla á ríkissjóði en vaxtakostnaður ríkissjóðs nemur núna um 90 milljörðum á ári og eru vextir næststærsta ráðuneytið.

Kannski bætast við ný störf í byggingariðnaði að mati þeirra sem vilja nýtt hátæknisjúkrahús – en á sama tíma flýja læknar og hjúkrunarfólk úr landi vegna versnandi kjara og niðurskurðar.

Nýlega var rætt við umsjónarmann fasteigna Landspítalans í sjónvarpsfréttum. Fram kom að það þarf að setja handklæði úti í glugga í miklum rigningum svo mikill er lekinn á sjúkrahúsinu í Fossvogi, þ.e. gamla Borgarspítalanum.

Umsjónarmaður byggingana fór síðan upp að Hringbraut. Þar eru lyftur margra áratuga gamlar og bakhlið Landspítlans, Eiríksgötumegin, er við það að morkna niður svo miklar sprungur eru þar.

Það er semsagt mikill leki og spekileki á Landspítalanum.

Nú gæti maður sagt sem svo að spítalar, sem halda ekki vatni, væru rök fyrir því að byggja nýtt hátæknisjúkrahús. En þá gleymist að hátæknisjúkrahúsið er viðbót. Gömlu spítalarnir í Fossvogi og við Hringbraut verða auðvitað áfram á sínum stað – og í notkun.

Hvernig væri nú að setja fúnksjónina sjálfa, að hjúkra sjúkum, framar í forgangsröðina. Og hvernig væri nú að taka upp kíttisspaðann og byrja að sparsla í Fossvogi og við Hringbraut í allri fátæktinni í stað þess að góna á teikningar af nýju hátæknisjúkrahúsi.

Í framhaldi af fréttunum um hátæknisjúkrahúsið er viðtal við Stein Jónsson, formann Læknafélags Reykjavíkur, í Morgunblaðinu og kvartar hann mest yfir því það sé of mikið flæmi innan nýs spítala, samkvæmt teikningum.

„Það er sjónarmið fagfólks að það borgi sig að hafa fjarlægðir innan spítalans sem allra minnstar. Þannig að það fólk sem vinnur saman geti gert það án þess að þurfa að fara endanna á milli á Landspítalalóðinni. Þessar teikningar sem nú liggja fyrir virðast þýða að það verði umtalsverðar fjarlægðir, allavega eftir fyrsta áfangann,“ segir Steinn.

Ekki tók ég eftir því að Steinn segði í forsíðufréttinni í Morgunblaðinu að það væri nær að skera minna niður í hjúkrun og umönnun – og viðhaldi á núverandi spítölum – og bíða með drauminn um nýtt hátæknisjúkrahús.

Hrikalegt steypmagn fer í nýja sjúkrahúsið sem verður massífur klasi við Hringbrautina og margir eru efins um að sjúkrahúsið henti á þessum stað. Þeir telja þetta svipað og að dúndra Kárahjúkavirkjun þarna niður; nær væri að byggja í Fossvogi eða við Vífilstaði.

Við Íslendingar erum stórkostlegir. Tæmum spítalana af sjúklingum og starfsfólki og setjum peningana frekar í steypu. Svona hugsar bara heilsteypt fólk; ekki satt? 

Megas var ekki fjarri því þegar hann söng um sjónminjasafnið.

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is