leita

ELDRI PISTLAR

Eltið peningana! Það er gömul og góð aðferð við að skrifa fréttaskýringar um valdaátök í fyrirtækjum. Þessi formúla kemur í góðar þarfir þegar lagt er mat á skýrslu stýrihópsins um REI. Hún er talsvert moð en þessa ályktun er hægt að draga: Peningamenn tóku völdin og fengu völdin.

Ég hef gaman af fótbolta og síðan ég var átta ára hef ég verið Valsari. Þess vegna hef ég mest gaman af því þegar Valur vinnur fótboltaleiki. Ég hef næstmest gaman af því þegar KR tapar leikjum. Auðvitað á maður ekki að hafa gaman af óförum annarra en það

Það virðist alltaf vera vinsælt efni hjá blaðamönnum að skrifa listagreinar. Tíu skemmtilegustu menn Íslands, fimmtán hvítvín með silungnum, átta aðferðir til þess að lokka kærastann til þín aftur. Stundum er líka hringt í fólk og það spurt hvaða tíu manns, lífs eða liðna menn vildu fá í kvöldverðarboð. Ég


PISTLAR

05/12/2006 | 14:02

Að hanna söguna (BJ)

Mér finnst Margrét Sverrisdóttir snjöll í að hanna atburðarás. Fyrst fékk hún Jón Magnússon inn í Frjálslynda flokkinn, svo gerði hún hann að rasista og loks lét hún reka sig. Sá sem ekki sér að þetta er hannað af Margréti ætti að færa kíkinn frá blinda auganu.

Frjálslyndi flokkurinn er skemmtilegur og lýðræðislegur flokkur. Margrét segist hafa ætlað að fylgja í fótspor föður síns árið 2003 sem formaður en þá var henni sagt að ekki gengi að embætti erfðust. Um það leyti var ákveðið að hún myndi skipa annað sætið á lista Frjálslyndra í Reykjavík árið 2006 á eftir Ólafi Magnússyni karlmanni. (ekki er ráð nema í tíma sé tekið). Prófkjör eru dýr og kynjakvótar kjánalegir. Margrét lét sér þetta vel lynda enda var þetta hluti af hannaðri atburðarás.

Annars nenni ég ekki að tala meira um Frjálslynda í bili. Vinstri grænir voru með tvö vel heppnuð prófkjör. Í Reykjavík og nágrenni var prófkjör sem var býsna gott fyrir óákveðna. Það gátu menn kosið marga í hvert sæti. Þetta er miklu lýðræðislegra en annars staðar þar sem bara má kjósa einn en svo færast allir ofar en þeir upprunalega voru. Þannig sóttist Guðlaugur eftir 2. sæti en fær það fyrsta í sínu kjördæmi, og svo koll af kolli. Björn lenti í 3. sæti og fær 2. sæti. Allir verða glaðir þegar upp er staðið. 

Hjá VG eru kynjakvótar. Gestur Svavarsson karlmaður ætlar hins vegar ekki að nýta sér kvótann því að það er ekki karlmannlegt. VG er nefnilega jafnréttissinnaður flokkur og þar er í lagi að konur séu í meirihluta. Það vakti athygli mína að Ögmundur Jónasson kom með þá frumlegu fullyrðingu að hann væri mjög ánægður með þennan afskaplega vel skipaða lista. Hann bætti svo við að í raun hefðu úrslitin engu skipt því að allt fólkið í framboði hefði verið svo frábærlega gott.

Hvers vegna var þá haldið prófkjör? Var nokkur ástæða til þess að draga 1.100 manns á kjörstað fyrst engu skipti hver röðin var? Í Norðausturkjördæmi var forvalið miklu einfaldara. Þar var einfaldlega tilkynnt að það hefði farið fram og þrír efstu væru þeir sömu og síðast. Ég er viss um að að frambjóðendur eru glaðari en ella og kjósendur líka því að þá þurfa þeir ekki að ómaka sig á kjörstað í forvalinu.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is