leita

ELDRI PISTLAR

11. nóvember | Heillum horfnir (JGH)
Íslendingar eru heillum horfnir þegar kemur að ríkisstjórn og Seðlabanka. Þegar óveðursský hrannast upp hér heima og úti um allan heim sjá Jóhanna Sigurðardóttir og Már Guðmundsson seðlabankastjóri mikinn efnahagsbata í spilunum. Már hækkar vexti vegna verðbólgu þegar kollegar hans erlendis lækka vexti vegna kreppu. Hagkerfi heimsins spóla, heildareftirspurn

Æ sér gjöf til gjalda segir góður íslenskur málsháttur. Í nýlegu hefti af Vanity Fair er grein um Bill Clinton og þátt hans í misheppnaðri baráttu konu sinnar. Það sem helst vekur áhuga í greininni er hve Clinton er fús að leggja lag sitt við alls kyns vafasama náunga.

Daniel Hannan frá Englandi kom hingað til lands í síðustu viku. Hann er þingmaður á Evrópuþinginu og Íhaldsmaður og hitti marga á fundum. Mér gafst færi á því að ræða við hann. Heimdallur stóð líka fyrir opnum fundi sem ég sótti. Mér fannst gaman að því að


PISTLAR

15/03/2004 | 00:00

Að lesa eigin skrif (BJ)

Það er alltaf kurteislegt að þakka fyrir sig og Tómas Ottó Hansson, nýkjörinn stjórnarmaður í Eimskipafélagi Íslands ehf. þakkar fyrir stuðninginn með því að skrifa undir grein í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag. Tómas er skynsamur maður og greinin ber þess glöggt merki að ólíklegt er að hann hafi skrifað hana sjálfur.

Í greininni telur höfundur ekki eftir sér að leiðbeina Morgunblaðinu og stjórnmálamönnum og lofsyngur hinn sterka meirihluta. Hann hefur líka sérstakar áhyggjur af lagafrumvarpi sem setur ríkari skyldur á feðga en bræður í viðskiptum. Hvers vegna skyldi þetta vera honum áhyggjuefni? 

Morgunblaðið svaraði greininni í leiðara á sunnudag og stjórnmálamenn munu eiga auðvelt með að svara fyrir sig. En í einlægu þakklæti sést höfundur ekki fyrir í kjánalegri röksemdafærslu. Í greininni segir: „ Menn hafa bent á Eimskip sem dæmi um slíkt og bent á að völd í því félagi voru tryggð af tiltölulega litlum eignarhlutum á sama tíma og ávöxtun almennra hluthafa, sem fjármögnuðu þó félagið að mestu, hafi verið rýr." Hér er greinilega verið að réttlæta breytingu á Eimskipafélaginu úr elsta almenningshlutafélagi landsins í einkahlutafélag. Staðreyndin er sú að þegar hluthafar voru flestir náðu þeir nálægt tuttugu þúsundum og fengu prýðilega ávöxtun á sitt hlutafé. Auðvitað hafa verið sveiflur í rekstri Eimskipafélagsins eins og annarra félaga en síðasta áratug hefur ávöxtun eiginfjár verið um 10% á ári og mætti reyndar taka lengra tímabil. Verðmæti félagsins var um 15 milljarðar í ársbyrjun 2002 en var orðið um 40 milljarðar í september 2003. Höfundur virðist telja að smærri hluthafarnir hafi verið einhvers konar kjánar sem hafi haldist í vistabandi þrátt fyrir lélega ávöxtun. Í alvöru almenningshlutafélagi þurfa menn að þjóna þúsundum hluthafa sem gæta vel síns fjár. Í einkahlutafélagi kannski bara einum eða tveimur.

Síðar í greininni segir höfundur: „Sú tilraun sem Eimskipafélagið gerði með stofnun Brims skilaði ekki tilætluðum árangri." Brim tók til starfa um áramót 2002-3. Þessi setning minnir á framsóknarmanninn sem sagði í nóvember 1984: „Vaxtafrelsið virkar alls ekki." Það hafði þá verið í mánuð.
Það er auðvitað erfitt að skilja fyrir óvana að rekstur tekur tíma. Margir virðast halda það í alvöru að hann eigi að vera eins og matadorspil sem taki í mesta lagi tvo þrjá tíma (eða mánuði). Fyrri stjórnendur Eimskipafélagsins stofnuðu Brim til þess að ná fram varanlegri hagræðinu í sjávarútvegi innan þess kvótakerfis sem gildir hér á landi. Útrás til Bretlands var þegar hafin. Nýir stjórnendur gáfust upp eftir þrjá mánuði. Við því er ekkert að segja, úthald manna er misgott. En tilraunin hafði ekki misheppnast, alvöru rekstur tekur bara tíma.

Það er ekki gott að skrifa undir greinar sem menn hafa ekki skrifað, en menn verða að minnsta kosti að lesa það sem þeir skrifa undir.

Benedikt Jóhannesson

 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is