leita

ELDRI PISTLAR

Það eru uppi fótur og fit í Fjármálaeftirlitinu enda von á góðum gestum. Helstu sérfræðingar stofnunarinnar eru dregnir fram. Bregðum okkur í hlutverk flugu á vegg í fundarherberginu. Helsti sérfræðingur A: Það er gaman hvað það koma margir í heimsókn þessa daga. Mikill

21. desember | Á hormónum (BJ)
Áfram, áfram sagði ég við Vigdísi. Hún snarbremsaði. Sumt er svolítið skrítið á heimilinu. Hreint stórfurðulegt ef satt skal segja. Um daginn var ég sannfærður um að yfirnáttúruleg fyrirbæri væru daglegt brauð. Líklegast myndu Þórhallur miðill og galdrakvendið sem ég man ekki hvað heitir vera farin að spígspora

04. ágúst | Blóminn fagur (BJ)
Hvað gerir maður eftir að hafa unnið ofboðslega mikið í heila viku? Komið heim langt eftir miðnætti og farið út upp úr sjö á morgnana? Á föstudagsm0rgun kom út tekjublað Frjálsrar verslunar og að kvöldi var því kærkomið tækifæri til þess að slaka á. Og hvað gerði ég þá?


PISTLAR

01/08/2012 | 22:48

Afsökunarbeiðni (BJ)
forsida_2012Að undanförnu hef ég átt skoðanaskipti við hinn virta og óháða fræðimann Stefán Ólafsson prófessor. Það hefur verið skemmtileg upplifun að sjá þennan hógværa fræðaþul leiðrétta Hagstofuna, jafnframt því sem hann hefur hvatt til þess að Frjáls verslun safni meiri gögnum til birtingar í tekjublaði sínu.
 
Stefán hefur nú hvatt til þess að ég biðjist afsökunar á pistli sem ég skrifaði í gær. Það er mér ljúft, en eftir nákvæma yfirferð er ég ekki viss um hvaða setning í pistlinum það er sem Stefán hnýtur um. Af því að mér gefst ekki færi á að skrifa meira um þetta mál á næstunni verður afsökunarbeiðnin opin. Pistill minn sem hér um ræðir var 14 málsgreinar (að frátalinni tilvitnun í grein Stefáns sem ég reikna með að þurfa ekki að biðjast afsökunar á). Því væri tilvalið að senda mér númer þeirra setningar þar sem ég fór með rangt mál, þó að ekki væri nema lesendum til glöggvunar.
 
Margir hafa skrifað mér vegna þessara málefnalegu skoðanaskipta og haft orð á því, hve gott sé að hafa í háskólanum óflokksbundinn prófessor, sem setji fram sitt mál með þeim kurteislega og yfirvegaða hætti sem raun ber vitni. Ekki er að efa að marga fýsir að fá óháðan og hlutlausan fræðimann í sínar raðir. Ég sé til dæmis að flokkssystkin mín á Vefþjóðviljanum eru þegar farin að bera víurnar í Stefán.
 
Nú er komið að lokum þessarar rökræðu og gott að þakka fyrir heiðarlega og íþróttamannslega framkomu.
 
 
PS Farinn á húkkaraballið.
 
 
01. ágúst 2012| Myndin sem breyttist (BJ)
 
 
Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is