leita

ELDRI PISTLAR

Morgunblaðið segir frá því að dómur Hæstaréttar frá í sumar um ólögmæti gengistryggðra lána í krónum hafi ekki haft merkjanleg áhrif á földa afturkallana aðfararbeiðna. Þetta merkir bara eitt; bankarnir láta engan bilbug á sér finna þrátt fyrir dóminn í sumar. Hann var þó einstaklega skýr og skorinortur.

Þegar Þórarinn Eldjárn gaf út fyrstu kvæðabók sína, Kvæði , þá varð hann á svipstundu költ-skáld fyrir stóran hóp. Ekki það að hann væri alveg óþekktur. Hann hafði ort Þú er sjálfur Guðjón í menntaskóla og var með vinsælan skemmtiþátt í útvarpi. Samt var örugglega langt síðan táningur gat þulið

Ráðherrar þjóðarinnar eru algerlega ráðalausir. Það er sama hvar borið er niður; þeim verður allt að klúðri. Nýjasta vitleysan er að ljúga að þjóðinni um hækkun stýrivaxta Seðlabankans. Þjóðin er nógu góð til að borga lánin en hún fær ekki að vita sannleikann. Er hægt að leggjast eins lágt?


PISTLAR

25/01/2007 | 17:58

Eldri borgarar og Ómar (JGH)

Þjóðin virðist öll á leiðinni í framboð. Tvær fylkingar öryrkja og aldraðra hafa lýst því yfir að þær ætli að bjóða fram í kosningum til Alþingis í vor. Þá hefur Ómar Ragnarsson haldið mönnum heitum í nokkra mánuði og ekki útilokað framboð. Flestir telja að fari hann fram verði það undir merkjum Framtíðarlandsins, þ.e. í samkrulli með listamönnum eins og Andra Snæ Magnasyni og fleirum, og að listinn (með tveimur ennum) snúist um náttúruvernd og þjóðgarða.

Ef þessi framboð skella sér í slaginn er mjög erfitt að átta sig á því hversu mikið fylgi þau fá og frá hvaða flokkum þau sækja fylgi sitt. Munu þau hirða hlutfallslega jafnt af öllum flokkunum? Ég held ekki. Mín skoðun er sú að þau skaði Samfylkingu og Vinstri græna meira en aðra.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins er fastara í hendi en flestra annarra flokka. Eldri borgarar, sem hafa kosið D-lista alla sína tíð, munu áfram halda sig við Déið. Reiðir ellilífeyrisþegar eru líklegastir til að kjósa framboð eldri borgara – en eitthvað segir mér að þeir hefðu ella kosið Samfylkingu eða Vinstri græna.

Ómar Ragnarsson er hins vegar skeinuhættur – fari hann fram. Hann mun glefsa í fylgi frá þeim flestum. Þeir, sem styðja Vinstri græna, eingöngu vegna umhverfismála, munu snúa sér að Ómari. Þá höfðar hann til margra kjósenda Samfylkingar. Ég held að þessir tveir flokkar muni finna mest fyrir Ómari.

Sjálfstæðisflokkurinn mun einnig skaðast á framboði Ómars. Það eru sérstaklega þeir sjálfstæðismenn, sem setja umhverfismál í fyrsta sætið, sem munu tvístíga – svonefndir hægri grænir. Þegar í kjörklefann er komið held ég þó að flestir grænir sjallar krossi áfram við Déið vegna þess að ímynd D-lista er stöðugleiki og sterkt efnahagslíf. Þetta merkir að efnahagsmálin munu vega þyngra hjá þeim en grænu málin. Ekki það, að til lengri tíma litið snúast efnahagsmál auðvitað um umhverfisvernd og að stöðva loftslagsbreytingar - græna jörð. 

Ég held að effin tvö, Framsóknarflokkurinn og Frjálslyndir, muni skaðast minnst á framboðum eldri borgara og Ómars. Ómar höfðar alls ekki til harðra framsóknarmanna nema sem skemmtikraftur. Þá virðast Frjálslyndir hafa náð til sín fylgi frá þeim sem vilja takmarka með einhverjum hætti aðgengi útlendinga að íslenskum vinnumarkaði.

Framboð eldri borgara, hvort sem þau verða eitt eða tvö, mun litlu skipta varðandi úrslit kosninganna. En fari Ómar fram í samkrulli við aðra listamenn þá mun kosningabaráttan fljótlega snúast upp í umhverfismál. Ómar er bara þannig.

Stóru flokkarnir munu núna reyna að koma í veg fyrir framboð Ómars. Þeir vita sem er að hann er skemmtikraftur og eldhugi; umhverfissinni sem hefur lengi stolið senunni.

Jón G. Hauksson

jgh@heimur.is


 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is