leita

ELDRI PISTLAR

Það er enginn annar kostur í stöðunni en að samþykkja Icesave.“ Ég tek eftir því hvað margir málsmetandi menn nota þetta orðalag. Ég segi jú; það er annar kostur; við semjum upp á nýtt. Alþingi á að hafa þá góðu reglu að lofa aldrei meiru en þjóðin getur staðið

Ég heyrði að Vigdís kallaði af neðri hæðinni. Eftir að hafa legið í flensu dögum saman reyndi ég að hreyfa mig sem minnst og lá í rúminu og las Morgunblaðið . Þegar ég les Moggann þarf ég á allri minni athygli að halda og náði ekki hvað sagt var

Björk Guðmunds- dóttir er baráttukona og hefur komið Íslandi á kortið með náðargáfu sinni. Ég held hins vegar að það verði mjög erfitt að fara að tillögu hennar og vinda ofan af kaupum Magma á HS Orku með því að láta skattgreiðendur kaupa upp samninginn á um 33 milljarða


PISTLAR

10/07/2006 | 00:23

Er Zidane mesti vitleysingur í heimi? (BJ)

Það er öllum ljóst að ég féll ekki fyrir leik Frakka í undankeppni Heimsmeistara keppninnar. Þeir voru beinlínis lélegir. Þess vegna átti ég ekki von á að þeir ynnu Spán eða Brasilíu. Kannski Portúgali reyndar. Ég missti allt álit á þeim þegar þeir hófu leikþætti sína Figo og Ronaldo. Sérstaklega eftir að Figo skallaði einhvern Hollendinginn og slapp við rautt spjald. Hann er reyndur jaxl og góður, en laus við íþróttamennsku. Það er ekki hægt að neita því að Zidane skoraði eitt fallegasta mark keppninnar og sýndi þegar best lét sína gömlu takta. Vítið í úrslitaleiknum, sem verður að teljast vafasamt í besta falli, var líka flott hjá honum. Skallinn á mark Ítalanna í framlengingunni var líka fagmannlegur. En þegar hann skallaði Materazzi  á fautalegan hátt varð ekki annað sagt en að maðurinn er líklega ekki í lagi. Hver endar sinn síðasta leik, úrslitaleikinn í heimsmeistarakeppninni svona? Fyrirliði og þrautreyndur leikmaður gerir ekki svona heimskulega hluti. Beckham lét reyndar reka sig útaf í heimsmeistarakeppninni á sínum tíma en hann var yngri og óreyndari, hálfgerður kjáni reyndar.

Ég hef farið í gegnum nokkur blöð á vefnum í kvöld og meira að segja Frakkarnir eru hneykslaðir á Zidane. Þeir að vísu kenna Materazzi um og segja að hans muni minnst sem mannsins sem fékk Zidane rekinn útaf. En það er ekki rétt. Það er sama hvað Materazzi kann að hafa sagt, fyrirliði liðs sem er að keppa um heimsmeistaratitilinn hegðar sér ekki eins og sýruhaus á Hallærisplaninu. Hann eyðilagði ferilinn, leikinn og spillti keppninni. Burtséð frá því með hvorum maður hélt varð maður að viðurkenna að Zidane hafði leikið glæsilega á köflum. Hann náði að eyðileggja það.

Ég keypti heimsmeistaratilboð Sýnar á 14 þúsund kall. Svo fengum við reikning upp á 5 þúsund krónur fyrir áskrift frá 5. júlí. Ekki kætti það okkur en þegar við hringdum í Sýn fengum við þau svör að innheimtukerfið væri svona, en það gerði ekkert til því leikirnir sem eftir væru hvort sem er í opinni dagskrá. Mér fannst það reyndar lélegt að selja rándýrt heimsmeistaratilboð og láta það ekki ná yfir alla keppnina. Svo missti ég líka af 4-4-2, sem oft var hressilegur þáttur. En leikirnir voru aðalatriðið svo ég lét kyrrt liggja. Á laugardagskvöld voru múgur og margmenni mætt heima hjá mér til þess að sjá leikinn um 3. sætið. Okkur þótti orðið svolítið vænt um þýska liðið. En þá brá svo við að Sýn var kolrugluð. Þangað þýddi ekkert að hringja því að allar línur voru uppteknar, eða kannski enginn við til þess að svara. En ég lét það ekki á mig fá því að leikurinn náðist á sænskri stöð sem við sjáum. Tuttugu fyrstu mínúturnar voru líka gleðilegar, en þá tók við svartnætti. Ekkert sást meira af sænsku stöðinni. Þjónustusími Skjásins upplýsti að Sýn hefði krafist þess að stöðinni yrði lokað.

Stuðið fékk snöggan endi. Við fengum upplýsingar um mörkin með því að hringja í ættingja víða um heim.

Auðvitað get ég sjálfum mér um kennt að halda að inni í heimsmeistaratilboðinu væri leikurinn um 3. sætið. Hann var auðvitað ekki hægt að sjá nema með því að borga fimm þúsund krónum meira og ég get nagað mig í handarbökin fyrir nískuna.

Ég sá það um daginn að Samkeppnisstofnun (sem heitir núna eitthvað annað) telur að Dagsbrún sé dótturfyrirtæki Baugs. Forráðamenn Dagsbrúnar eru réttilega gáttaðir á þessari ósvífni. Maður skilur ekki hvar stofnunin fær svona ranghugmyndir.

Fréttablaðið er gott auglýsingablað. Um daginn taldi ég 10 heilsíðuauglýsingar frá 365 miðlum, 5 heilsíður frá Hagkaupum og Bónus, 2 frá Vodafone, 2 frá BT og eina fjórðungssíðu frá Útgáfufélaginu Heimi sem auglýsti gott tilboð á Hálendishandbókinni. Auglýsingar í Fréttablaðinu virka svo vel að DV var búið að frétta af henni áður en hún birtist. Öflugri verða auglýsingamiðlar varla.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is