leita

ELDRI PISTLAR

Hrun á hrun ofan – og heimurinn er við það að fara á taugum. En þá koma forsprakkar ríkisstjórnar Íslands með nokkurra vikna millibili og segja að höftin verji okkur. Að íslenskt viðskiptalíf sé varið fyrir erlendri kreppu af höftunum. Þetta er rangt. Hins vegar er núna lag til

Best að segja það strax. Í þessum pistli kem ég ekki út úr skápnum sem Evróvision-aðdáandi. Samt horfði ég á mestallan þáttinn á laugardaginn. Eftir það er ég í sjokki. Hvers vegna á að banna súludans í Kópavogi þegar efnt er til semi-pornsýningar í sjónvarpi allra landsmanna? Hins vegar

INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR , formaður Samfylkingarinnar, flutti „saklausa“ ræðu á flokksstjórnarfundi flokksins laugardaginn 12. nóvember sl. þar sem hún sagði að enginn fjölmiðill væri jafn „hræsnisfullur“ og Morgunblaðið og enginn annar fjölmiðill beitti sér jafn „grímulaust“ gegn einum tilteknum stjórnmálaflokki. Hún hélt að hún gæti sparkað hressilega í Morgunblaðið


PISTLAR

13/02/2006 | 00:00

Fjórði foringinn (BJ)

Prófkjör Samfylkingarinnar var um helgina. Borgarstjórinn sendi mér bréf á föstudaginn um að ég mætti kjósa. Þrátt fyrir að prófkjörið var byggt upp í kringum það að allir mættu kjósa og þyrftu hvorki að vera í Samfylkingunni né styðja hana kusu aðeins rúmlega níu þúsund manns. Á Akureyri, Ísafirði og Álftanesi fengu bæjarstjórar yfirgnæfandi traustsyfirlýsingu. Í Reykjavík var borgarstjóranum hafnað.

Ég velti því fyrir mér hvers vegna fjölmiðlar fjalla lítið um aðalfréttina í þessu prófkjöri sem er auðvitað að sá sem R-listinn hefur valið sem leiðtoga sinn, borgarstjórinn sjálfur, lendir í öðru sæti. Ástæðan er kannski sú að skoðanakannanir höfðu sýnt þetta fyrir löngu. Engu að síður vekur það athygli að eftir kosningabaráttu sem kostaði Reykvíkinga tugi milljóna króna í launum til leikskólastarfsmanna. Greinilega hefur þessi ómerkilega brella dugað til þess að fleyta borgarstjóranum í annað sætið, en það er háttur lýðskrumara að beita sér fyrir útgjöldum en hafa ekki áhyggjur af því hvernig fjár er aflað. Enn grímulausari var notkun á fjármunum borgarinnar til þess að auglýsa viðtalstíma borgarstjóra með stórri mynd. Borgarstjórinn veit sem er að kjósendur muna ekki mikið eftir skuldasúpu R-listans á kjördegi.

Út um allt land fengu bæjarstjórar Sjálfstæðismanna mikla traustsyfirlýsingu. Fyrir skömmu gerðist það sama á Seltjarnarnesi og í Kópavogi. En R-listanum gengur ekkert að finna foringja. Þegar Ingibjörg Sólrún bauð sig fram til borgarstjórnar árið 1994 hæddist hún að Sjálfstæðismönnum sem hefðu haft þrjá foringja á kjörtímabilinu, Davíð, Markús og Árna. Sjálf hafði hún alltaf þennan hátt á með Alfreð sem yfirforingja og Árna aukaforingja. Munurinn var sá að R-listinn hafði þrjá foringja samtímis. Opinberlega var Ingibjörg þó alltaf foringinn þó að hún gætti þess að hringja í Alfreð oft á degi hverjum.

Nú bregður svo við að fjórði opinberi foringinn á kjörtímabilinu er kominn fram. Ingibjörg Sólrún varð að víkja úr stól borgarstjóra eftir að hún sveik loforð sitt um að gefa sig óskipta að borgarmálunum og fór í framboð til þings þar sem hún náði reyndar ekki kjöri. Síðan hefur hún verið eins og vængbrotin og í þessu prófkjöri reyndi hún að láta líta svo út að hún styddi alla frambjóðendur í fyrsta sæti. Þórólfur Árnason átti stuttan feril og eftir miklar vangaveltur var ákveðið að velja þann Samfylkingarmann sem fæstir þekktu í hans stól. Samfylkingarmenn hafa nú ákveðið að sparka í borgarstjórann, hafna honum í prófkjöri og velja geðþekkan utanflokksmann hans í stað.

Það er stórfrétt að borgarstjóranum er hafnað. Fjölmiðlar hafa hins vegar misst af aðalfréttinni, kannski vegna þess að þeir mundu aldrei almennilega hver var borgarstjóri.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is