
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Vor eða haust eru ekki til á Íslandi, samkvæmt almanakinu. Bara vetur og sumar. Við kveðjum síðasta vetrardag og daginn eftir fögnum við sumardeginum fyrsta – yfirleitt í strekkingsvindi og kulda. Kannski gluggaveðri eins og var í gær. Hún er líka góð sagan af útlendingi sem var staddur hér á landi á sumdardaginn fyrsta fyrir einhverjum árum og það snjóaði svo hressilega að það sá vart handa sinna skil. Honum var sagt að það væri sumardagurinn fyrsti á Íslandi. Hann svaraði að bragði: Hvernig sjáið þið það!? Annars hefur þessi dagur yfir sér góðan blæ og hefðir. Blánefja skátar stýra skrúðgöngum og víðavangshlaup ÍR er fastur punktur á þessum degi. Að þessu sinni fór það fram í 92. sinn – var fyrst hlaupið árið 1916. Góður siður.
Ég hef lúmst gaman af því hvað veðurfræðingarnir fara léttilega með gömlu þjóðtrúna um að það viti á gott ef vetur og sumar frjósa saman. Veðurlýsingar þeirra snúast orðið um þessa gömlu trú. Núna fraus saman um allt land og allir eru þegar komnir í sólskinsskap. Hvernig væri að fara vísindalega ofan í þetta mál? Annað eins hefur verið gert í veðurvísindum og tölfræði um fylgni. Páll Bergþórsson veðurfræðinur hefur t.d. sett seman kenningu um fylgni á milli hita í Stykkishólmi á veturna og grassprettu á sumrin.
GAMLA REYKJAVÍK BRENNUR. Líklegast eru flestir sammála Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni borgarstjóra um að best færi á því að endurnýja húsin við Lækjargötu 2 og Austurstræti 22 (sem er fallið) í sinni upphaflegu mynd og gera allt til að halda götumyndinni eftir brunann sem varð síðasta vetrardag. Sögfrægar minjar eru brunnar, en húsið við Austurstræti 22 var yfir 200 ára. Umræðan um að halda götmyndinni á þessu horni, sem hvert mannsbarn á Íslandi þekkir, færir okkur hins vegar enn og aftur sannindin um hvað Reykjavík er tætingsleg borg í arkitektúr og byggingalist. Það ægir öllu saman. Tvær nýjar stórbyggingar eru t.d. við hliðina á Lækjargötu 2, Café Operu. Hvers vegna var leyft að byggja þessi stórhýsi fyrst allt í einu er orðið svo mikilvægt að halda í gömlu götumyndina?
FYRIRMYNDIR Í SJÓNVARPI. Ég held að það hafi verið rétt hjá NBC sjónvarpsstöðinni að birta myndir og myndbönd sem Cho Seung-hui sendi stöðinni snemma um morgunin eftir að hann myrti fyrstu tvo nemendurna í Virginíu Tech háskólanum þar sem hann var einnig nemandi. Eftir að hann sendi myndirnar myrti hann 30 nemendur og kennara við skólann og síðan sig sjálfan. Þetta eru afar óhugnanlegar myndir og hefur birting þeirra verið harðlega gagnrýnd með þeim rökum að verið sé að ganga erinda Cho Seung-hui og að þetta séu hrikalegar fyrirmyndir og geti hvatt til frekari voðaverka. Svona fréttamyndir orka alltaf tvímælis. Nýlega birti Stöð 2 í fréttum myndir af ungum strák á Íslandi, sem gerir sér það að leik að kveikja í skónum sínum og myndar ruglið í leiðinni og setur myndirnar inn á Netið. Í fréttinni var raunar vakin athygli á því að mörgum þætti það orka tvímælis að birta svona myndir og þess getið í leiðinni að mikil gagnrýni hefði oft komið fram á að sýna uppátæki Strákanna á Stöð 2. Var sýnt frá atriði úr væntanlegri þáttaröð, leitinni að nýju Strákunum, þar sem ungur maður kveikir í hárinu á sér og stingur höfðinu í vatnsfötu á eftir. Þetta er auðvitað afleitt sjónvarpsefni – en fréttnæmt vegna þess hve afleitt það er, hversu miklum deilum það veldur og hversu miklum skaði það getur valdið börnum og unglingum sem hafa Strákana sem fyrirmyndir. Fréttir eru einu sinni þannig að þær segja frá því sem er að gerast og spegla jafnframt umræðuna á hverjum tíma. Ég minnist þess þó að fyrir nokkrum árum tóku breskar sjónvarpsstöðvar sig saman um að beina myndavélunum annað þegar stripalíngar hlaupa inn á knattspyrnuvelli til að gera þeim það ekki til geðs að vekja athygli á uppátækinu. Það eru því skiptar skoðanir um svona myndbirtingar, líka á meðal fréttmanna.
En vel á minnst; hvenær er eiginlega vor á Íslandi ef það kemur ekki eftir síðasta vetrardag? Þú finnur svarið í júní, júlí og ágúst.
Jón G. Hauksson
NÝLEGIR PISTLAR