leita

ELDRI PISTLAR

Þjóðin virðist öll á leiðinni í framboð. Tvær fylkingar öryrkja og aldraðra hafa lýst því yfir að þær ætli að bjóða fram í kosningum til Alþingis í vor. Þá hefur Ómar Ragnarsson haldið mönnum heitum í nokkra mánuði og ekki útilokað framboð. Flestir telja að fari hann fram verði

Á laugardaginn vann ég einstök afrek. Gekk á tvö fjöll, fékk mér humar í hádeginu og svindlaði mér í fyrsta sinn inn á safn á eldri borgara afslætti. Þetta síðasta er að vísu ekki hárnákvæmt, en ég kem að því síðar. Þetta byrjaði þannig að ég þurfti að

26. júlí | Hásumar (BJ)
Líklega hefur aldrei verið betra veður um sumar hér í höfuðborginni, þó að reyndar hafi undanfarin ár verið afbragðsgóð. En það hefur verið svo margt neikvætt í þjóðlífinu, að það kæmi ekki á óvart að í minningu fólks yrði talað um sumarhretin árið 2004 þegar frá líður. Það væri


PISTLAR

09/03/2012 | 16:41

Harrý og Heimir í Landsdómi (JGH)

jong-2011Þetta hefur verið erfið vika hjá spæjurunum Harrý og Heimi. Þeir hafa verið í Landsdómi að hlusta á vitni og finna út úr orðum þeirra hvort Geir sé sekur. Þeir segjast engu vera nær og að þetta sé erfiðasta sakamál sem þeir hafa fengist við; glæpurinn liggi ekki alveg fyrir og enn síður sé vitað hvenær hann var framinn. Málið sé komið fyrir dóm án þess að hafa verið rannsakað og saksóknari sé þess fullviss að Geir sé einn sekur um að hafa ekki komið í veg fyrir hrun einkabankanna.

Harrý Rögnvalds íbygginn: Sko, í öllum venjulegum sakamálum er glæpur, vettvangur, plott og nákvæm tímasetning um það hvenær glæpurinn var framinn. Þessu er ekki fyrir að fara núna.

Heimir Snitzel upp með sér: Við getum sagt að glæpurinn sé mjög óljós. Það gengur allt út á að finna hver glæpurinn sé.

Harrý: Ég tek eftir því að í landsdómi er mest spurt um hvernig hefði mátt koma í veg fyrir hrun einkabankanna. Mér finnst það segja talsvert í annars óljósri ákæru; ekki satt?

Harrý: Þetta er hins vegar grafalvarlegt sakamál, einn sekur, engir meðsekir og krafist er tveggja ára fangelsis.

Fréttamaður CNN: Hver er glæpurinn?

Heimir: Hann hindraði ekki bankahrunið – eða það skilst okkur.

Fréttamaður CNN:  Well, það er ekkert annað...

...Er búið að láta Interpol vita, svona út af öðrum forsætisráðherrum sem ganga lausir? Þetta var alþjóðleg kreppa og hún er ekki búin! Það er hægt að ná í skottið á fleiri forsætisráðherrum.

Harrý: Nei, við Íslendingar höfum ekki rætt við Interpol. Er heimskreppan ekki íslensk, ættuð frá Íslandi?

Heimir: Við erum nafli alheimsins, klárastir, bestir, með besta vatnið og sætustu konurnar. Bíddu; var alþjóðlega hrunið ekki örugglega okkur að kenna? Það var búið að segja okkur það! Þessi nýja vitneskja breytir talsverðu.

Fréttamaður CNN: Var Geir einn að verki?

Harrý: Sko, hann var ekki staðinn að verki...sko, hann bara gerði ekkert. Það er verið að ákæra hann út af því...með því að gera ekkert, gerði hann heilmikið. Svona eitt stykki bankahrun, er það ekki talsvert? Margir væru sáttir við minni afrek. 

Heimir: Já, en samt..Nóbelsverðlaunahafar í hagfræði sögðu í Hörpunni að Geir hefði sett neyðarlög sem björguðu landinu. Svo sagði hann: Guð blessi Ísland, alveg eins og Bush og Obama tala um God bless America.

Fréttamaður CNN: Hættið þessu rausi. Bíðið þið við; hann setti Ísland á hausinn!

Harrý: Það er einmitt það sem vefst fyrir okkur og öllum hinum. Líkið...nei fyrirgefðu landið... er sprelllifandi og þeir sem ákæra Geir endurtaka aftur og aftur að landið sé að rísa og það sé vegna neyðarlaganna. 

Heimir: Bara að það sporðreisist ekki - þá fyrst fáum við risvandamál.

Harrý: Landið virðist hafa risið upp frá dauðum. Það er þá ekki í fyrsta sinn sem við heyrum eitthvað svoleiðis nefnt. Það hefur verið hlustað á okkur og Geir í efra. Það er allt í lagi að blanda trúnni í þetta, þótt Jón Gnarr sé eitthvað að vesenast með trú barnanna í skólunum og vilji að þau séu bara trúuð utan skólatíma.

Fréttamaður CNN: Hverjir eru það sem ákæra Geir?

Harrý: Það eru þeir sem voru með Geir í ríkisstjórn þegar hrunið var. Einmitt þeir sem líklegastir voru til að vera meðsekir, þeir ákæra hann.

Fréttamaður CNN: Sögðu þeir sig ekki frá málinu vegna hagsmunatengsla líkt og tíðkast hjá ákæruvaldinu í alvöru réttarríkjum?

Heimir fær sér snitzel en á erfitt með að kyngja bitanum. Þetta var of stór biti og kjötið ekki nógu barið og buffað. Með undrunarsvip spyr hann á móti:

„Áttu þeir að gera það? Þeir lögðu mikla áherslu á að þeir væru alls ekki meðsekir, heldur væri Geir einn sekur og hann einn bæri ábyrgð á hruninu...sko...með því að gera ekkert. Þetta var annars ekkert rannsakað af hálfu Alþingis.“

Harrý bætir við: Það var þarna eitthvað fólk upp í háskóla, heimspekingar og siðfræðingar, að tala um vanrækslu. En hvað veit þetta lið þarna uppi í háskóla, sem aldrei hefur farið út af skólalóðinni, um rannsókn sakamála - og hvað þá um eitthvað sem við félagarnir vitum ekki?

Æstur múgurinn er núna fyrir utan Landsdóm í Þjóðmenningarhúsinu og öskrar: Helv... fífl eru þið sem mætið þarna sem vitni! Sami rassinn undir ykkur öllum! Eruð þið brandari; þið heilsist allir þarna eins og gamlir böddís!? Hvers konar skrípaleikur er þetta í gamla lestrarsalnum? Enginn ber ábyrgð! Þið eruð gamlir embættismenn sem ekkert munið og ekkert gerðuð! Voruð þið sofandi? Hvers vegna skilið þið ekki laununum ykkar? Þetta er allt Dabba að kenna, allt sem aflaga hefur farið frá stofnun lýðveldis er honum að kenna. Hann seldi bankana! Einmitt þess vegna bar hann ábyrgð á þeim eftir að hann seldi þá! Skiljið þið ekkert þarna inni! Þið ættuð allir að sitja inni asnarnir ykkar!

Harrý:  Fyrirgefðu fréttamaður; viltu slökkva á vélinni...Múgurinn heldur að þetta sakamál snúist um almennt snakk um uppgjör við hrunið og að réttarhöldin séu einhver melló sannleiksnefnd þar sem allir koma með fróðleiksmola...en þetta er sakamál sem snýst um glæp sem fáir vita hver er...mjög fáir.

Fréttamaður CNN: Hvað gat Geir gert?

Heimir: Ja, hvað áttu bændur að gjöra? Eitthvað verða bændur að gjöra. Ef hann hefði sagt vorið 2008 að bankarnir væru að fara á hausinn þá hefði hann búið til áhlaup á þá og gert þá gjaldþrota á einni klukkustund.

Lítur á úrið sitt í leiðinni. – Nei, sennilega tíu mínútum.

Fréttamaður CNN: Hefði hann þá ekki verið ákærður fyrir að hvetja til árásar á bankana og stuðla að bankahruni?

Harrý: Jú, og þá hefðum við haft alvöru mál; alvöru case. Þá hefðu hluthafar, erlendir lánadrottnar, innlánseigendur og starfsmenn höfðað mál...já og kannski fjármagnseigendurnir í Vinstri grænum líka. Það hefði allt logað í málaferlum gegn honum og við hefðum haft nóg að gera.

Heimir: Þetta er svolítið flókið...Hreiðar Már segir að neyðarlögin sem Geir setti til að bjarga Íslandi hafi fellt Kaupþing. Hreiðar Már segir að allt hafi verið í gúddí í bankanum þegar Geir setti neyðarlögin. Ekkert upp á þá að klaga, eins og segir í textanum.

Fréttamaður CNN: Gat Geir minnkað bankakerfið?

Heimir snöggur til svars: Bíddu, átti Geir bankana? Átti ríkið bankana? Þú veður ekki inn í einhvern einkabanka eins og bankaræningi, selur eignir þeirra, sameinar þá og hagar þér eins og þú eigir þá. Þannig virkar ekki kapítalisminn.

Harrý blikkar öðru auganu: Svo voru aðrir fyrri til...

Heimir: ...Já, þú meinar.

Fréttamaður CNN: Tryggvi Þór, sem þá var aðstoðarmaður Geirs, segist hafa fundað með bankamönnum um minnkun bankakerfisins og sameiningar. Sýnir það ekki einmitt að Geir hafi reynt að gera eitthvað?

Harrý: Jú, en Mási segir að þetta hafi verið stuttur fundur um að kostnaður bankakerfisins væri of hár, meira hafi nú ekki verið lagt í fundinn. Þess utan hafi allt verið í gúddí og nánst búið að selja allar eigur Glitnis í Noregi – einmitt á sama tíma og allar lánalínur í heiminum voru uppþornaðar, enginn lánaði neinum neitt og enginn banki treysti öðrum banka.

Æstur múgurinn fyrir utan Þjóðmenningarhúsið: Burt með andsk. nýfrjálshyggjuna sem þandi út ríkisútgjöldin! Burt með helv. nýfrjálshyggjuna sem kom á hundruð reglugerða frá EES! Burt með djöf. nýfrjálshyggjuna sem kom á sama frelsi á Íslandi og í EES! Burt með foc. nýfrjálshyggjuna sem fór eftir EES-lögum! Burt með nýfrjálshyggjuna sem setti ekki á bindiskyldu svo bankarnir gætu lánað örlítið minna! Bara örlítið minna.

Harrý: Þetta lið skilur ekkert. Það er bannað að nota blótsyrði sem byrja á stöfunum a, h og d.

Heimir: Hvað ef við einkaspæjarnir Harrý og Heimir ehf. verðum gjaldþrota? Þú veist, við erum einka...

Harrý:  Sko, stjórnvöld, eiga alltaf að bjarga einkafyrirtækjum. Nei ég meina Geir.

Fréttamaður CNN: Sá einhver hrunið fyrir?

Harrý: Já, sko...eftir á sáu allir hrunið fyrir, en fyrir hrunið sáu engir það fyrir.

Fréttamaður CNN: Hvað með þjóðina?

Harrý: Hún er hrein mey og saklaus, sá ekkert, heyrði ekkert og kom hvergi nálægt neinu að eigin mati.

Heimir: Hún tók að vísu einhver lán í Gleðibönkunum og vildi vera með - er það ekki?

Harrý: Erum við einhverju nær, Heimir?

To be continued...

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is