
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Björn Ingi Hrafnsson hefur játað sig sigraðan eftir að borgarráð samþykkti að hafna samruna REI og Geysi Green Energy. Sömuleiðis hefur Dagur borgarstjóri lúffað fyrir Svandísi Svavarsdóttur. Það lá auðvitað alltaf fyrir að ef Björn Ingi, Dagur og Svandís héldu í sínar ítrustu kröfur í REI-málinu þá ættu þau ekki samleið og nýr meirihluti í borginni myndi springa.
Ástæðan fyrir því að Björn Ingi og Dagur gáfu eftir er einföld. Það er Svandís, en ekki Björn Ingi eða Dagur, sem er límið í hinum nýja meirihluta í borgarstjórn. Hún er komin í hlutverk Alfreðs Þorsteinssonar í gamla R-listanum. Hún er með það tromp uppi í erminni að snúa sér að sjálfstæðismönnum í borgarstjórn geri þeir Dagur og Björn Ingi ekki eins og hún skipar fyrir. Í stað þess að kokgleypa við öllu sem Björn Ingi og Dagur segðu henni að gera (eins og ég hélt fram í pistli fyrir hálfum mánuði) hefur hún snúið valdataflinu sér í vil. Hún er oddamaðurinn – og veit loksins af því. Borgarráð hefur farið að tillögu stýrihóps hennar um að hafna samruna REI og Geysis Green Energy. Borgarráð telur ennfremur að 20 ára þjónustusamningur REI og Orkuveitunnar sé óviðunandi. Og þá er það sjálf bomban frá stýrihópnum: Að allar reglur stjórnsýslunnar kunni hafi verið brotnar í samrunaferlinu.
Það er samt eitthvað í öllu þessu REI-máli sem segir manni að kveða ekki of fast að orði um völd Svandísar. Drengirnir eru sleipir. Dagur borgarstjóri kom með þessa hrikalegu (en óskiljanlegu) snilld: Að sú ákvörðun að hafna samruna REI og GGE hafi verið besta leiðin til að endurreisa traust á borgarstjórn og Orkuveitu Reykjavíkur – og nauðsynlegt skref til að Orkuveita Reykjavíkur gæti haldið útrás sinni áfram „en á nýjum forsendum“. Það er með ólíkindum hvað Dagur getur talað og talað án þess að nokkur skilji hann. Það hefur verið sagt um Dag að út úr honum flæði bara orð – og það eru orð að sönnu.
Björn Ingi Hrafnsson hefur leikið aðalhlutverið í REI-málinu og hann var snöggur að finna sinn flöt eftir ákvörðun borgarráðs. Jú, að í ljósi þess „að fram hefðu komið“ upplýsingar um að ekki hefði verið staðið rétt að samruna fyrirtækjanna hefði verið nauðsynlegt að byrja með „hreint borð“. Hann hefði hins vegar jafnmikla trú og áður að Orkuveitan ætti að taka þátt í útrásinni. Björn Ingi er með það hangandi yfir sér að allar reglur stjórnsýslunnar kunni að hafa verið brotnar að því er varðar umboð, upplýsingamiðlun, meðferð gagna og nálgun í samrunaferlinu. Í íþróttakappleik þýddu svona ásakanir rautt spjald fyrir Björn Inga og Vilhjálm – beint í sturtu.
Það er talsvert eftir í pípunum í þessu máli – dómstólar hafa ekki sagt sitt síðasta orð. Orkuveita Reykjavíkur fer fram af fyllstu hörku gegn Svandísi Svavarsdóttur í dómsölum. Svandís höfðaði mál fyrir dómstólum þar sem hún fór fram á að hluthafa- og eigendafundur Orkuveitu Reykjavíkur frá 3. október yrði dæmur ógildur vegna formgalla og boðunnar á fundinn. Orkuveitan hefur ráðið til sín einn allra besta lögfræðing landsins til að annast sitt mál, Þórunni Guðmundsdóttur hrl. Hún tekur við af Helga Jóhannessyni hrl. sem átti upphaflega að flytja málið en hann víkur vegna þess að hann verður líklegast kallaður fyrir dóminn sem vitni.
Fyrir hinn venjulega Reykvíking er það óskiljanlegt að Orkuveita Reykjavíkur fari fram af svo mikilli hörku gegn Svandísi og rökstyðji sitt mál á þá leið að hún sitji ekki lengur í stjórn OR og hafi því ekki lögvarða hagsmuni í málinu. Og að hún eigi ekki hlut í OR og hafi því ekki fjárhagslega né persónulega hagsmuni. Hvað ætlar OR að segja í dómsölum eftir að borgarráð komst að svo afdráttarlausri niðurstöðu? Hver ræður eiginlega yfir Orkuveitu Reykjavíkur? Eitthvað segir mér að núverandi forstjóri OR, Hjörleifur Kvaran, verði látinn taka poka sinn á næstu vikum, svo ekki sé nú minnst á Guðmund Þóroddsson, núverandi forstjóra dótturfélagsins REI. Hann hlýtur að fjúka.
Hannes fer í mál. Geysir Green Energy með Hannes Smárason stjórnarformann í broddi fylkingar hlýtur að fara í mál við Orkuveituna og krefjast þess að samningurinn standi. Ekkert annað getur verið í spilununum. Kómíska hliðin er auðvitað sú að þar með eru kapítalistarnir komnir með kröfuspjaldið „samningana í gildi“.
REI er ótrúlegt mál sem teygir anga sína víða og hefur skaðað margan manninn. Og fyrir þá sem hafa gaman af spennusögum; REI er rétt að byrja.
Jón G. Hauksson.
NÝLEGIR PISTLAR