leita

ELDRI PISTLAR

Jólahátíðin hefur að þessu sinni verið einstaklega viðburðarík og margt sem hefur vakið höfundi þessa pistils gleði. Fyrir jólin kom út margt góðra bóka og fréttir hafa líka sett sinn svip á jólahaldið. Skemmtilegast af öllu er SPRON-málið svonefnda og einstaklega gaman að sjá af hve mikilli rökfimi forráðamenn SPRON

Fréttamatið er alltaf svolítið sérstakt. Það hefur frekar lítið farið fyrir frétt um að gamli Landsbankinn ætti 200 milljarða umfram Icesave-kröfur. Þetta hafa verið eindálkar og tvídálkar. Fólk kinkar kolli yfir þessum fréttastubbum og segir sem svo: Já, eru þetta 200 milljarðar? Það er ekki verið að

Vegna áskorana birtist hér ræða fráfarandi formanns Eimskipafélagsins á hluthafafundi 9. október síðastliðinn. Fundarstjóri, ágætu hluthafar! Tilefni þessa fundar er þríþætt. Í fyrsta lagi umfjöllun um aðild Burðaráss, dótturfélags Eimskipafélagsins, að viðamiklum samningi um kaup og sölu eigna, í öðru lagi tillaga um niðurfærslu hlutafjár í félaginu og


PISTLAR

07/09/2007 | 17:58

Júdas og Jón Gnarr (JGH)

Ég játa það fúslega að ég skellti upp úr þegar ég sá nýju auglýsingu Símans í sjónvarpinu þar sem gert er grín að síðustu kvöldmáltíðinni. Það leynist auðvitað púki í okkur öllum. Þetta er fyndin auglýsing, vel gerð og vönduð. Maður hlær en finnst hún samt skrítin og vera á mörkunum. Ég veit ekki hvort hún selur. Þó ég hafi hlegið, eins og margir aðrir líka, er ég þó undrandi á forráðamönnum Símans að samþykkja þessa auglýsingu – til þess er síðasta kvöldmáltíðin of helg mynd í huga margra. Það kemur varla nokkrum á óvart að Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sé ekki hrifinn af auglýsingunni en hann hefur lýst því yfir að Biskupsstofa ætli ekki að kæra gerð auglýsingarinnar til siðanefndar SÍA fyrir guðlast. Enda er engin ástæða til þess.

Út frá hreinni markaðsfræði orkar það tvímælis að senda svona auglýsingu frá sér í ljósi þess að hún getur augljóslega haft þveröfug áhrif og stuðað marga viðskiptavini fyrirtækisins og jafnvel ýtt þeim yfir til keppinautanna. Ég ætla viðskiptavinum Símans og Íslendingum almennt þó ekki að vera jafn æstir og múslimar sem ganga af göflunum þegar birtar eru skopmyndir af Múhameð spámanni í vestrænum fjölmiðlum.

Það skal ganga hægt um gleðinnar dyr þegar kemur að því að gera grín að trúmálum. Obbanum af fólki er líklega sama – en þó er aldrei að vita; trúmál eru viðkvæm. Við Íslendingar höfum gert grín að því hvað múslimar hafa verið viðkvæmir fyrir gerð skopmynda af Múhameð spámanni og rætt um tjáningarfrelsið. Síðan kemur Símaauglýsing um Jesús og postulana og ýmsir yggla sig og ýja að guðlasti. Hvar er tjáningarfrelsið núna?

Einhvern tíma var kennt að tala aldrei um trúmál og stjórnmál í veislum nema ætla að efna til illinda. Ég heyrði í auglýsingamanni sem talaði um auglýsingu Símans sem hreina snilld; hún hefði fengið svo mikla umfjöllun að tilganginum hefði verið náð. Einhver mjög trúrækin myndi svara þessu til að þetta merkti að illt umtal væri betra en ekkert. Eitt er víst; Símaauglýsingin hefur ekki farið fram hjá neinum frekar en hin nýja kynslóð síma eru kynntir til sölunnar. En selur hún? Hversu margir kaupendur hafa móðgast?

Jón Gnarr er höfundur auglýsingarinnar og leikur Júdas í henni. Það kom mér talsvert á óvart að hann skyldi fara á fund biskups til að kynna fyrir honum þessa auglýsingu og hugmyndir sínar. Var hann að fá „einhvers konar leyfi“ fyrir að gera auglýsinguna? Hvað var Jón Gnarr að hugsa með fundinum? Jú, hann var einfaldlega ekki sjálfur viss um hvort hann væri að fara yfir mörkin gagnvart kirkjunni og hinu trúaða samfélagi með auglýsingunni. Það segir allt sem segja þarf um þessa auglýsingu og Jón Gnarr getur tæplega orðið undrandi á sterkum viðbrögðum fyrst hann sjálfur var ekki alveg viss um það hvað hann væri að gera.

Ekki veit ég hvernig keppinautar Símans bregðast við þegar þeir koma með sína þriðju-kynslóðar-síma um áramótin. Múhameð spámaður og Bin Laden. Eigum við kannski von á því að það verði hringt í einhvern helli í Afganistan og rætt við Bin Laden með nýju tækninni? Það væri þá Bin í beinni.

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is