leita

ELDRI PISTLAR

09. nóvember | Rangir dómar (BJ)
Hvað halda leik- og bíódómarar að þeir séu? Ég sá tvö verk um helgina sem ekki hafa fengið verðskuldað lof gagnrýnenda. Janis 27 á föstudaginn. James Bond á laugardaginn. Mogginn sagði að það vantaði „dramatíska framvindu“ í Janis. Við hverju býst þetta fólk? Janis 27 er

Það er makalaust hvað kennurum gengur illa að koma sínum málstað til skila. Fulltrúi þeirra í undanþágunefnd kom fram í sjónvarpi á laugardagskvöld. Nefndin hefur að undirlagi kennara neitað að veita fötluðum undanþágu. Ekki varð málflutningur fulltrúans til þess að auka samúð með kennurum. Er ekki kominn tími til þess

Ég veit ekki hvort Árni Páll Árnason ráðherra tilheyri „efri millistétt“ eins og Tryggvi Þór Herbertsson – en Árni er hins vegar hrifinn af milliveggjum þegar kemur að gjaldeyrisviðskiptum. Efri millistétt Tryggva Þórs er fólk sem er vant „ákveðnum lifistandard“, eins og hann kallar það, og laun þingmanna nægja


PISTLAR

08/06/2012 | 19:31

Mótmæla-elítan mótmælir mótmælum (JGH)

jon_g_2Sú var tíðin að vinstrimenn báru virðingu fyrir þeim sem mótmæltu og nenntu að fægja spjöldin og taka þátt í kröfugöngum. Þeir fengu fiðring í frumurnar þegar von var á pólitískum hasar og mótmælum niðri í miðbæ og þeir klæddu sig í lopapeysurnar og örkuðu af stað.

Nú er öldin önnur. Nú mótmælir mótmæla-elítan mótmælum annarra. Nú gera vinstrimenn lítið úr þeim sem mótmæla vegna þess að það er gegn þeirra fólki. Sennilega hafa vinstrimenn sótt um einkaleyfi á mótmælum; að þeir einir megi mótmæla og kunni að mótmæla.

Eftir útifundinn á Austurvelli, þar sem útgerðarmenn, sjómenn, fiskverkafólk, sveitastjórnarmenn og aðrir þeir sem eru á móti kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar mættu til leiks, hefur fjandinn orðið laus hjá elítunni.

Það er komin samkeppni við okkur í mótmælum? Hvað vill þetta sjóaragengi upp á dekk? Eru þessi mótmæli leyfileg? Veit Samkeppniseftirlitið af þessu?

Og viðbrögð elíutunnar á Alþingi?

Jú, sjómenn eru gungur sem láta útgerðarmenn skipa sér að mæta á Austurvöll. Jú, fiskverkafólk í frystihúsum er liðleskjur sem mótmæla fyrir hönd útgerðarmanna.

Steingrímur J. Sigfússonar var með sama harminn í hjarta og þegar hann ákærði Geir Haarde þegar hann mætti í sjónvarpsviðtal um útifundinn. Afar niðurdreginn sagði hann í að sér þætti dapurlegt að LÍÚ varpaði skugga sínum yfir lögbundinn frídag sjómanna með þessum aðgerðum.

Birni Val Gíslasyni, þingflokksformanni Vinstri grænna, sem er þekkt prúðmenni og virtur af öllum fyrir háttvísi, var að vonum brugðið og þótti háttalag útgerðarmanna afar ógeðfellt. „Sérstakleg í ljósi þess að þeir eru að nýta sér lögbundin frídag og hátíðardag sjómanna í þeim tilgangi að beita sjómönnum fyrir sér í þessari deilu.“

Frídagurinn var víst ekki meiri en svo að Ólína Þorvarðardóttir sagði þetta: „Nú hafa útgerðarmenn siglt öllum sínum flota í land og stefnt öllu sínu starfsfólki á fullu kaupi til að standa þarna og hylla sig á Austurvelli.“ 

Það er ástæða til að staldra við þegar sómamanninum Birni Val Gíslasyni finnast mótmæli orðin „afar ógeðfelld“. Slík mótmæli hljóta að vera hreinn óþverri. Þetta lið sem mætti þarna á Austurvöll hlýtur að hafa verið búið að fá sér í tánna, að hans mati.

Merði Árnasyni, þekktum lopapeysukomma á árum áður, fannst mjög lítið til þessara mótmæla koma og sagði þau misheppnuð. Það er ekkert varð í þessi mótmæli, mín eru miklu betri.

Þetta var nánast eins og Jón Viðar væri að dæma leikrit; þetta var svo klént.

Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins, kom hneykslaður fram í fréttum RÚV og sagði að þótt sambandið væri sammála LÍÚ í andstöðu við frumvörpin um stjórn fiskveiða og veiðigjöld, sem og gagnrýni á skort á samráði, ætli sambandið samt ekki að taka þátt í mótmælunum.

Jón Gunnar Björgvinsson, formaður stjórnar Samtaka íslenskra fiskimanna, sem er á móti frumvarpinu sagði í fréttum RÚV að sjómenn ættu á hættu að missa vinnuna ef þeir töluðu gegn málstað LÍÚ – og það væri sorglegt að útgerðarmenn píndu starfsfólk sitt til þess að mæta á mótmælafund.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna í norðvesturkjördæmi, segir með mikilli vanþóknun að það sé „ljótt að egna saman landsbyggð og höfuðborg“ með þeim hætti sem gert var á samstöðufundi útvegs- og sjómanna sem fram fór á Austurvelli.

Hún sagði LÍÚ hafa haldið uppi miklum hræðsluáróðri gegn fiskveiðifrumvörpum ríkisstjórnar og að fundurinn í gær hefði átt að tryggja það að frumvörpin yrðu að engu.

„Raunin varð önnur. Á Austurvöll mætti fjöldi fólks, ekki bara latte-fólk úr 101 Reykjavík, heldur fjöldi fólks af landsbyggðinni,“ sagði Lilja Rafney.

Það var rétt þetta Laufey. Latte-fólk úr 101. Þú þekkir hjörðina í sundur.

Og mikið rétt Laufey; það kom einmitt fjöldi fólks af landsbyggðinni á Austurvöll; til að mótmæla.

Ofan á allt þá byrjaði dagurinn á því að rafmagn fór af að hluta húsakynnum Alþingis við upphaf þingþfundar. Sá í efra gaf gula spjaldið. Það hafði lítil áhrif; ljósin slokknuðu en gáfnaljósin héldu áfram að tala í míkrafóninn. 

Ég segi bara þetta: Það er ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af því að mótmæla-elítan hefur misst fiðringinn og hefur engan áhuga á mótmælum lengur. Að vísu felast mótmæli í því að mótmæla mótmælum annarra. Kannski er enn von.

Ég meina, þegar útgerðarmenn eru farnir að mótmæla þá er ekkert fútt í þessu lengur.

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is

Share

NÝLEGIR PISTLAR

18. janúar 2013| Hægt á trúlofuninni (JGH)





20. desember 2012| Sagan af myndinni (BJ)

14. desember 2012| Sjálfhverfa kynslóðin

11. desember 2012| Boris og ég (BJ)

02. desember 2012| Sniðugu strákarnir (BJ)


23. nóvember 2012| Það þokaðist (JGH)

20. nóvember 2012| Aftökur á Íslandi (BJ)



09. nóvember 2012| 15 stundum fyrir prófkjör (JGH)

07. nóvember 2012| 98% sigur (BJ)

02. nóvember 2012| Skinney kaupir kvóta (JGH)





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is