leita

ELDRI PISTLAR

Hinn virti, óháði fræðimaður Stefán Ólafsson prófessor birti þann 31.7. á bloggi sínu áhugaverða grein um tekjuskiptingu og vitnaði þar til talna Hagstofunnar, þar sem jöfnuður á Íslandi er reiknaður með svonefndum Gini-mælikvarða. Enginn hefur efast um að tölur Hagstofunnar séu samanburðarhæfar við útreikninga í Evrópulöndum. Þær sýndu

Alltaf uppgötvar maður eitthvað nýtt. Ég sem hélt að Svíar væru leiðinlegustu menn í heimi. Svo fór ég til Noregs. Og nú eru Svíar í öðru sæti. En Noregur er fallegt land og Ósló falleg borg. Ef það byggju þarna bara einhverjir aðrir ... Auðvitað get ég ekki sagt

18. nóvember | Tíu bestu staðirnir (BJ)
Listar eru vinsælir meðal blaðamanna. Hverjir eru tíu bestu söngvarar sögunnar, 100 vinsælustu plöturnar, langorðustu þingmennirnir, skemmtilegustu auðmennirnir. Síðasti listinn yrði kannski stuttur núna. Og þó. Steingrímur J. ætlar að ná þremur milljörðum í stóreignaskatti af þeim sem enn eiga peninga. Það er rétt að refsa þeim fyrir mistök


PISTLAR

10/04/2006 | 00:00

Ný heimsmynd (BJ)

Í vikunni sem leið komu nokkrar fréttir sem mér fannst geta breytt mynd minni af veröldinni. Menn hafa misskilið Biblíuna og hinn biblíusinnaði Bush ætlar í kjölfar endurreisnar Júdasar að kasta blessuðum kjarnorkusprengjum á Íran. Flest fólk var ekkert að kippa sér upp við þetta.

Fyrirhuguð kjarnorkuárás á Írak finnst mér stórfrétt, en það var smáfrétt í Mogganum. New York Times var ekki lengi með fréttina um árásina fyrirhuguðu á forsíðu vefs síns og útvarpið sagði okkur að Jack Straw, utanríkisráðherra Breta teldi þetta „snargalið“ og jafnframt að ástandið í Írak væri „svekkjandi.“ Mér finnst Straw tala svolítið táningalega, en svona er tíðarandinn. Forsætisráðherra Breta, Tony Bair, sá þekkti smeðjugaur, vill eflaust að ráðherrarnir séu svalir í tali.

New York Times hafði hins vegar margar fréttir af Júdasarguðspjalli sem Mogginn sagði okkur líka frá. Ég var hálf spældur með það því að þar með var frá mér stolið hugmynd að smásögu sem átti að heita Júdasarguðspjall. Hún er ekki alveg ónýt enn (nema nafnið) og ég ætla ekki að segja meira frá henni hér svo að Dan Brown eða Ólafur Jóhann steli ekki hugmyndum frá mér. Mér finnst þetta svolítið merkilegt að gera Júdas að góða manninum. Hví ekki? Hefði hann ekki komið til hefði Jesús riðið aftur á asna út úr Jerúsalem og við hefðum engan skírdag eða föstudaginn langa. Við hefðum í besta falli erft einhverja páska frá Gyðingum sem ekkert hefði verið varið í. Ég held að þessi túlkun sé einmitt það sem menn þurftu á að halda og í raun augljós þegar einhver hefur sett hana fram. Karen Blixen skrifaði smásögu um að Barrabas hefði verið miður sín vegna þess að honum var sleppt í staðinn fyrir Krist, en hlaut að vísu heimsfrægð að launum. En ef það hefðu bara verið krossfestir þrír þjófar þennan dag hefði hann horfið í gleymsku eins og svo margir aðrir. Nei, Júdas hefur ekki fengið sanngjarnan dóm.

Eftir þessar smáfréttir, fyrstu áform um kjarnorkusprengjur á mannvirki í meira en sextíu ár og umturnun guðspjallanna fór ég að pæla í krossgátu Moggans. Hún tekur mig minnst klukkutíma, ef ég þá næ að ljúka henni. Tengdamamma leysir hana á hálftíma. Núna var hún sérstaklega erfið. Dæmi: Svelgur = Iða, Gyðja = Iðunn, Vinna = Iðja, Sprikl = Ið, Vinna = Iðja, Innyfli = Iður, Það = Ið, Mynd af veiðihjóli = Veiðihjól. Ég veit ekki hvað það er, en stundum fæ ég það á tilfinninguna að krossgátan sé aðallega ætluð þeim sem hafi ekki komist í gegnum nema hluta af stafrófinu.

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is