leita

ELDRI PISTLAR

29. desember | Menn ársins 2009 (JGH)
Hér kemur ræða sem ég flutti fyrir hönd dómnefndar í veislu á Hótel Sögu þegar Frjáls verslun útnefndi feðgana í Fjarðarkaupum menn ársins 2009 í íslensku atvinnulífi; þá Sigurberg Sveinsson og syni hans Svein og Gísla Þór. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra afhenti viðurkenningarnar. Gissur Páll Gissurarson tenor söng nokkur lög.

Sumir byrja sérhvert ár á heiti, sem þeir svíkja nánast jafnharðan. Loforð gefin á öðrum tímum árs reynast oft betur. Þó ekki alltaf. Borgarstjóra reyndist ómögulegt að halda sig frá þingframboði út árið, þrátt fyrir fjölda loforða um annað. En nú hyggst heimur.is hins vegar efna til nýjungar í

25. febrúar | Inspired by Iceland (JGH)
Loft er læviblandið. Það er mikil spenna á sviðinu. Farsinn eftir Dario Fo er við það að hefjast. Tjaldið er dregið frá. Góðir gestir; vinsamlegast slökkvið á farsímanum. Bó Guðmundsson stekkur fram á sviðið í teinóttum jakkafötum og ræðir við Breta og Hollending. Bretinn er forríkur með


PISTLAR

11/10/2004 | 00:00

Nostradamus viðskiptalífsins (BJ)

Frjáls verslun og ParX stóðu um daginn fyrir spástefnu. Þar rýndu menn af mikilli íþrótt í árið 2005. Það er gaman að velta fyrir sér óorðnum hlutum og gagnlegt að taka saman á einn stað niðurstöður úr slíkum vangaveltum. Jón G. Hauksson ritstjóri Frjálsrar verslunar spáði þar fyrir um fyrirtækjasamruna og kaup. Hann er klárlega mikill spámaður því að spádómar hans eru þegar farnir að rætast. Menn ættu því að gefa orðum Jóns á spástefnunni góðan gaum því hann hefur greinilega góða tilfinningu fyrir straumum í viðskiptalífinu.

Ekki ætla ég að rekja allar vangaveltur Jóns hér. Erindið má sjá annars staðar á þessu vefsvæði. Eitt af því sem hann nefndi var samruni sparisjóða. Varla hafði hann sleppt orðinu þegar Sparisjóður vélstjóra og Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis gáfu út yfirlýsingu um að viðræður væru í gangi milli sjóðanna, en það var einmitt einn af þeim möguleikum sem Jón nefndi. Ekki yrði ég hissa þó að fleiri slíkar yfirlýsingar myndu sjá dagsins ljós á næstunni. Fljótlega í kjölfarið mun mönnum verða ljóst að sparisjóðalögin sem sett voru fyrr á árinu voru mikið frumhlaup og væntanlega verður þeim breytt aftur að ósk sparisjóða sem sjá fram á að annars eiga þeir ekki möguleika í samkeppninni.

Jón nefndi annan athyglisverðan möguleika varðandi næsta ár, þ.e. sölu á Símanum og sameiningu við austur-evrópsk símafélög sem þegar eru að hluta eða öllu leyti í eigu Íslendinga. Jón er reyndar ekki fyrstur til þess að nefna þennan möguleika því að hann var viðraður í Spaugstofunni fyrr á árinu. Verðmæti Símans miðað við viðskipti á markaði að undanförnu er um 60 milljarðar króna. Það er vissulega áhugavert söluverð fyrir ríkið. Miklu skiptir náttúrlega að við söluna verði öllum gert jafnt undir höfði, en ekki endurtekin mistökin við sölu ríkisbankanna þar sem sumir voru jafnari en aðrir.

Engum dettur í hug að allt sem kemur fram á slíkri spástefnu komi fram. Hins vegar opnar hún augu manna fyrir því hvað gæti gerst. Þess vegna er mjög mikilvægt að menn tali frjálslega á slíkum fundum. Sumum getur hún gefið hugmyndir sem þeir vilja hrinda í framkvæmd en aðrir gætu séð óorðna hluti sem þeir vilja að aldrei verði.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is