leita

ELDRI PISTLAR

STEFÁN JÓN HAFSTEIN og Gísli Marteinn Baldursson virðast fara nokkuð vel af stað í kapphlaupinu um borgarstjórastólinn, ef marka má könnun Fréttablaðsins. Gísli Marteinn virðist sjónarmun á undan. Takið eftir að könnunin var að mestu tekin áður en hann tilkynnti um framboð sitt í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Fyrir rúmum átján árum var ég beðinn um að flytjast norður til Akureyrar og starfa þar sem blaðamaður. Eftir nokkra umhugsun fór ég norður og átti þar tvö frábær ár. Eitt fór ekki á milli mála í bæjarlífinu; Kea var stórveldi og Valur heitinn Arnþórsson kaupfélagsstjóri var kóngurinn í bænum.

Íslenskt þjóðfélag er lítið, fyrirtækin eru lítil og tengsl milli manna mikil. Kunningsskapur og vinátta gera það að verkum að menn eru líklegri en ella til þess að eiga viðskipti sín á milli. Hættan magnast þá fyrst þegar menn kaupa sér vináttu. Auðhringar eru hemill á hagkvæmni og samkeppni. Bein


PISTLAR

06/03/2006 | 00:00

Sókn Framsóknar fram? (BJ)

Hefur það einhver áhrif að Árni Magnússon hættir í pólitík? Vandi er um slíkt að spá.  Hafi hann staðið næstur Halldóri og ef almenningur hefur talið að hann væri líklegastur arftaki, hefur það að minnsta kosti ekki sópað að fylgi samkvæmt skoðanakönnunum. Satt að segja hugsa ég að flestir hafi ekki vitað hver hann er. Mér leist ágætlega á hann, hann virtist vera skynsamur náungi, en það sópaði ekkert að honum. Ég skil ekki í því að hann hafi tekið það nærri sér að tapa þessu jafnréttismálin fyrir Valgerði. En líklegast hefur það ekki haft neitt að segja.

 

Ég væri að skrökva ef ég segði að það hefði ekki komið mér á óvart að Árni hætti. Ekki að ég hafi verið neitt að spekúlera í honum, en ég hefði ekki talið hann líklegan til þess að hætta. Ég er líka alveg viss um að það að forráðamenn Íslandsbanka hafa ekki verið búnir að leggja fyrir Árna neinar snörur. Hann hefur látið vita að hann væri til í tuskið.

 

Hvað er Árni að pæla? Kannski er þetta ekki svo torskilið.

 

Í fyrsta lagi er félagsmálaráðuneytið örugglega með fúlustu ráðuneytum. En Árni er nýkominn á þing og varð strax ráðherra. Mér fannst það sýna að Halldór væri að velja framtíðarmann, mann sem gæti tekið við af honum. Auðvitað getur vel verið að Guðni taki við af Halldóri en hann verður þá að ákveða hvort hann ætlar að vera trúður eða stjórnmálamaður.

 

Í öðru lagi er örugglega ekkert sérstaklega gaman að vera í Framsóknarflokknum. Það er skárra en að vera í Frjálslyndum, en samt eflaust engar gleðistundir.

 

Í þriðja lagi sér Árni hvernig gekk hjá Finni Ingólfssyni sem fyrir nokkrum árum var umdeildur ráðherra og svo embættismaður en er nú forríkur forstjóri. Árni er enginn kjáni og ef valið stendur milli starfs í banka með feitum kaupréttarsamningi og þingferlils í Framsókn, kannski í stjórnarandstöðu eftir ár, held ég flestir ættu auðvelt með að velja. Gangi skoðanakannanir eftir verður Framsókn með fimm til sex þingmenn eftir kosningar. Hver og einn núverandi þingmanna hlýtur að spyrja sig: Hvar verð ég?

 

Þegar Jón Kristjánsson varð heilbrigðisráðherra sögðu allir: Þetta er vænsti maður. Þegar spurt var um frammistöðu hans sem ráðherra var svarið það sama. Þetta er vænsti maður. En afrekalistinn í ráðuneytinu er ekki langur. Félagsmálaráðuneytið er góður staður fyrir væna menn.

 

Siv snýr aftur eftir um eitt og hálft ár í stjórnarandstöðu. Mér fannst það misráðið hjá henni að fara í fýlu yfir því að detta út úr stjórninni. Halldór hefur greinilega ekki erft það við hana. En hann hafði ekki úr miklu að velja. Hann ætlar greinilega ekki að gera Jónínu Bjartmarz að ráðherra. Þá er eiginlega bara Siv eftir. Mér lýst vel á það. Siv er hress og getur vel verið dugnaðarforkur. Auðvitað er heilbrigðisráðuneytið eitt erfiðasta ráðuneytið og margir ráðherrar hafa tekist á við það með sama hætti, þ.e. að gera ekki neitt.

 

Sighvatur Björgvinsson var alltaf uppáhaldsheilbrigðisráðherrann minn. Hann var alltaf að gera eitthvað, djöflaðist eins og naut í flagi í ráðuneytinu. Hann hafði mikinn metnað og vildi breyta. Eini vandi hans var að hann hafði enga stefnu í sínum breytingum. En ef hann hefði haft skynsamlega stefnu hefði hann orðið mjög góður ráðherra. (Þetta minnir mig á ummæli eins skólafélaga míns um einn kennarann okkar, Prófessor Lin. „Ef Lin hefði kunnað eitthvað hefði hann verið mjög góður kennari.“)

 

PS Mér fannst gaman að því hjá Þórunni Guðmundsdóttur vinkonu minni að tilnefna Eggert Magnússon fulltrúa litla mannsins í stjórn Straums-Burðaráss. Enginn skipar það sæti betur. Þess ber að geta að Þórunn mun ekki vera að vísa í líkamlegt atgervi þegar hún talar um litla manninn.

 

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is