leita

ELDRI PISTLAR

Síðastliðið miðvikudagskvöld hefði Jim Morrisson, söngvari The Doors orðið 61árs hefði hann lifað 34 árum lengur en hann gerði. Daginn eftir sá ég The Doors tribute band (sem er næstum eins mikið Doors eins og Beach Boys band eru Beach Boys ). Ég hefði ekki trúað því fyrirfram hvað þessir

Hvar ætli orginallinn af Steingrími J. Sigfússyni sé geymdur? Nýi Steingrímur er mjög ólíkur orginalnum; sá nýi er hræddur. Hann er hræddur við að styggja útlendinga – sérstaklega Breta og Hollendinga sem hafa sýnt okkur slíka óbilgirni í Icesave að það er engu lagi líkt. Nýi Steingrímur hefur mestar

Það vekur athygli margra að forseti Íslands kýs að vera erlendis á 100 ára afmæli heimastjórnar á Íslandi sem haldið var hátíðlegt 1. febrúar. Af viðtölum við starfsmann forsetaembættisins má skilja að hátíðahöldin hafi komið forsetanum í opna skjöldu, en hann sé upptekinn í einkaerindum í Bandaríkjunum. Forsetanum hafi ekki


PISTLAR

29/01/2009 | 18:06

Samfylking neglir Vinstri græna (JGH)

Ný vinstri stjórn boðar almennileg vettlingatök. Hún er það besta sem gat komið fyrir sjálfstæðis- menn. Það kemur samt á óvart að Vinstri grænir falli enn og aftur í gildruna. Í þetta skiptið láta þeir Samfylkinguna negla sig svo um munar með myndun nýrrar vinstri stjórnar rétt fyrir kosningar og hirða af sér fylgi.

Að gefa Sjálfstæðisflokki kost á því að vera í stjórnarandstöðu í kosningabaráttunni er óskiljanlegur afleikur hjá Steingrími J. og ekki síður hjá Sigmundi Davíð, hinum nýja foringja framsóknarmanna. Í stað þess að láta Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu engjast sundur og saman í kosningabaráttunni og láta kosningarnar snúast um fráfarandi ríkisstjórn þá verða Vinstri grænir, framsóknarmenn og Samfylking „hin vondu stjórnvöld“ í komandi kosningabaráttu og þurfa að verja erfiða stöðu í efnahagsmálum.

Sigmundur Davíð er guðfaðir nýju vinstri stjórnarinnar og ber ábyrgð á henni þótt ekki sé Framsóknarflokkurinn innanborðs. Fólk mun örugglega fagna því að þessi ríkisstjórn skipti út bankastjórum Seðlabankans. En hvað svo? Kreppan er ekki búin. Það fennir fljótt í sporin í stjórnmálum sem og í viðskiptalífinu. Fólk er fljótt að gleyma. Til hvers eru vinstri grænir og Framsóknarflokkurinn eiginlega að ata sig auri skömmu fyrir kosningar? Óskiljanlegt. Þetta er skammtímastjórn sem mun ekki koma neinu af viti í verk fram að kosningum og tekur þá áhættu að „eini árangurinn“ verði fyrst og fremst mistök á næstu vikum – jafnvel þótt þessi ríkisstjórn og verndarengill hennar hafi lofað því að taka á málum með almennilegum vettlingatökum; eins og framsóknarmaðurinn orðaði það svo skemmtilega. 

Staðan getur ekki annað en versnað á næstu vikum. Atvinnulausum fjölgar hratt, laun lækka enn meira; breiður hópur atvinnulausra mun eftir næstu mánaðamót ekki fá útborgað lengur; sagt er að 4 þúsund fjölskyldur séu hættar að greiða af lánum sínum; fjöldi fyrirtækja verður gjaldþrota á næstu mánuðum mitt í kosningabaráttunni og fluttar verða fréttir af því. Krónan er ónýt og fer ekkert í bráð. Hún er enn vandamálið og verður áfram næsta áratuginn. Auðvitað fagna því allir að verðbólguhraði síðasta mánaðar hafi lækkað. Það þurfti ekki flóknar mælingar til að sjá það; svo hörð er kreppan. Það er langt síðan eftirspurnarverðbólgan hvarf (það er hún sem kallar á háa vexti) og undanfarið höfum við eingöngu búið við kostnaðarverðbólgu sem er arfur af falli krónunnar eftir bankahrunið. Verð á vinnuafli hefur hríðlækkkað, 13 þúsund manns eru atvinnulausir, bensín, húsnæði og leiga hafa lækkað í verði. En dokum við; hagfræðingur Seðlbankans segir okkur að um leið og verðbólgan hjaðni meira þá sé það helsta ósk bankans að losa um höftin. Auðvitað spyr fólk þá sem svo: En fellur þá ekki gengi krónunnar aftur niður úr öllu valdi og veldur enn meiri usla? Sem aftur veldur kostnaðarverðbólgu og kallar á háa vexti? Þetta er ekkert annað en tær snilld – enda engin ástæða til að rjúfa þennan eltingarleik sem felst í að bíta í skottið á sér. Harðasta kreppa í heimi; hæstu stýrivextir í heimi; harðasta gjaldeyriskreppa í heimi sem ein og sér veldur verðbólgu; og auðvitað verðtrygging til að heimili og fyrirtæki fari örugglega á höfuðið. Við erum snillingar.

Jóhanna Sigurðardóttir verður forsætisráðherra nýju vinstri stjórnarinnar. Ef hægt er að finna einhverja taktíska fléttu með myndun þessarar ríkisstjórnar þá er það valið á Jóhönnu í stól forsætisráðherra. Hún hefur mælst vinsælasti ráðherrann um langt skeið þótt miklar sögur fari af því hversu þver hún sé og standi föst á sínu. Þegar hún klauf Alþýðuflokkinn sáluga árið 1994 með orðunum Minn tími mun koma og stofnaði Þjóðvaka nefndi Jón Baldvin það svo að ekkert böl væri átakanlegra í stjórnmálaflokkum en heimilsböl.

Viðræður Vinstri grænna og Samfylkingar voru löngu hafnar þegar leikritið við Granaskjól var sýnt um síðustu helgi. Hinn falski tónn í því leikriti náði hæstum hæðum þegar Steingrímur J. sagðist ekki hafa rætt við Ingibjörgu Sólrúnu enda siðlaust ef svo hefði verið – því hún væri í samstarfi við annan flokk. Á meðan voru allar línur rauðglóandi á milli Össurar, Lúðvíks, Ögmundar og Katrínar. En svona er pólitíkin.

Hinn falski tónn var ekki síðri þegar Björgvin G. Sigurðsson sagði síðan af sér á fréttmannafundi á sunnudagsmorgni; tveimur dögum eftir Geir sagði í Valhöll að stjórnin væri sprungin, hann ætlaði að draga sig í hlé vegna veikinda og að hann legði til að kosið yrði 9. maí. Það má svo sem segja að betra sé seint en aldrei – en þessi afsögn Björgvins kom hlægilega of seint. Það skilja að vísu allir að hann leggi ekki í kosningabaráttu nema hafa sagt af sér; en hvílíkur sýndarveruleiki.

Framsóknarmenn hafa skipt um forystu. Sjálfstæðismenn munu líklegast líka skipta alveg um forystu. Varaformaður Samfylkingar býður sig ekki fram og dregur sig í hlé. Þá eru það Vinstri grænir; þar verður forysta flokksins óbreytt nema ég spái því að Svandís Svavarsdóttur stígi á sviðið.

Pólitíkin er skrítin. Að Sjálfstæðisflokkur sé óvænt í stjórnarandstöðu í kosningabaráttunni og að Samfylking hirði „sitt fylgi“ aftur af Vinstri grænum kortéri fyrir kosningar kallast almennileg vettlingatök.

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is