leita

ELDRI PISTLAR

Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar birti heimur.is margar kannanir um úrslit en á flestum þeirra var sá agnúi að á þeim skakkaði einhverju frá réttum úrslitum. Nú eru allir að kanna og þar sem könnunum ber ekki saman er ljóst að þær eru jafngallaðar og kannanir okkar síðastliðið vor. Þess vegna höfum við

Samfylkingin hefur boðað nýja efnahagsstefnu. En þegar hún er skoðuð betur er hún gamalkunnug. Þegar Ronald Reagan bauð sig fram til forseta Bandaríkjanna lagði hann megináherslu á þrennt: Að lækka skatta, auka útgjöld til hermála og að ná jafnvægi í ríkisfjármálum. Þessi stefna vakti aðhlátur andstæðinga frambjóðandans og jafnvel

15. ágúst | Höldum áfram (JGH)
Höldum áfram hefur verið kynnt sem kjörorð hins nýja samstarfs Dé-lista og Bé-lista í borgarstjórn. Ekki veit ég hvort þetta þætti kraftmikið kjörorð eða markmið í rekstri fyrirtækja. Þó minnist ég þess frá náminu í háskólanum í gamla daga að í stjórnun setja fyrirtæki sér á erfiðum tímum í


PISTLAR

28/01/2007 | 23:40

Samfylkingin skreppur saman (BJ)

Ég velti því stundum fyrir mér hvort Ingibjörg Sólrún láti engan lesa yfir ræðurnar sínar. Hún byrjaði á dæmalausum Borgarnesræðum fyrir Alþingiskosningarnar. Svo sagði hún þingmönnum Samfylkingarinnar að þjóðin treysti þeim ekki. Það er reyndar rétt en flestir foringjar myndu reyna að stappa stálinu í sitt lið, ekki tala niður til þess. Nú segir hún að helsti vandi Samfylkingarinnar sé að hún sé pólitískur flokkur. Maður fer að finna til.

Ingibjörg hefur tamið sér hrokafullt fas í opinberum umræðum. Hún lítur hæðnislega á andstæðinga sína, glottir að þeim og leiðréttir þá. Ég veit ekki hvort þetta er í raun hroki eða feimni. Fólk sem á erfitt með að koma fram lætur stundum eins og það sé yfir aðra hafið. Svo gæti þetta líka verið taugaveiklun. Það er náttúrlega ekki gaman að hafa byrjað með flokk í 35% fylgi samkvæmt skoðanakönnunum og missa hann niður fyrir 20%. Fyrir skömmu lýsti formaðurinn því móðurlega yfir að auðvitað ætti stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn að fara með forsæti í stjórn þeirra flokka sem mynduð yrði eftir kosningar. Ætli það gildi líka þegar VG hefur tekið forystuna?

Össur Skarphéðinsson velur þá leið að eigna sér fylgi VG og Frjálslyndra. Er hann virkilega fylgjandi þeim þjóðrembu hugmyndum sem nú hafa orðið ofan á í Frjálslynda flokknum eftir flokksþingið? Það er ein leið að bregðast við vanda með því að stinga höfðinu í sandinn. En það leysir ekki vandann.

Samfylkingin studdi Kárahnjúkavirkjun á sínum tíma. Nú vill Ingibjörg fela þá staðreynd að þingflokkurinn studdi málið með tveimur undantekningum, Rannveig Guðmundsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir voru á móti.

Bryndís Hlöðversdóttir gerði grein fyrir afstöðu þingflokksins við lokaafgreiðslu málsins:

„Herra forseti. Hv. þm. Samfylkingarinnar hafa þegar við 2. umr. lýst afstöðu sinni til þessa máls en meiri hluti þingflokksins styður það. Við gerum það í trausti þess að áætlanir um arðsemi framkvæmdarinnar standist, að land norðan Vatnajökuls verði verndað í kjölfar virkjana með þjóðgarði og að tryggt sé að þjóðhagsleg áhrif framkvæmdarinnar séu jákvæð þegar og ef út í hana verður farið.

Þeir hv. þm. Samfylkingarinnar sem hafa lýst yfir andstöðu við framkvæmdina gera það vegna umhverfissjónarmiða og við virðum að sjálfsögðu afstöðu þeirra. Að öðru leyti greiðir þingflokkur Samfylkingarinnar atkvæði með frv., og ég segi já.“

Því er þetta rifjað upp nú vegna þess að Samfylkingin er komin í vandræði með stækkun Álversins í Straumsvík. Ingibjörg segir að Hafnfirðingar verði að ákveða sig sjálfir, hún ætli ekki að hafa skoðun á málinu (hún er væntanlega að passa sig að vera ekki pólitísk). Hins vegar komi ekki til greina að virkja meira á Suðvesturhorninu. Hvers konar bull er þetta og hve lengi ætla menn að láta eins og ekkert sé?

Eftirfarandi má lesa á vefsíðu Samfylkingainnar úr þessari ræðu Ingibjargar um helgina:

,,Stefna Samfylkingarinnar í efnahagsmálum er sú að það sé forgangsmál að kæla hagkerfið. Það felur í sér að fresta beri öllum stóriðjuframkvæmdum á næstu árum. Hins vegar hefur Samfylkingin í Hafnarfirði fært íbúunum í Hafnarfirði mikilvægt tæki til að hafa áhrif á sitt nærumhverfi. Samfylkingin í Hafnarfirði ákvað að virkja lýðræðið til að leysa deiluna og við erum stolt af þeirri ákvörðun."

Já þetta er afskaplega skýrt og ég skil vel að Ingibjörg sé stolt.

Meira að segja Jóni Baldvin ofbýður staðan í Samfylkingunni. Á visir.is er eftirfarandi kafli í frétt um viðtal Egils Helgasonar við JBH:

„Hann gagnrýndi stjórnarandstöðuna og sagði allt benda til að Samfylkingunni sé að mistakast ætlunarverk sitt - að vera valkostur við Sjálfstæðisflokkinn. „Ef Samfylkingin ætlar að klúðra sínum málum þá er mikil alvara í því. Það er fólk hérna sem bara líður það ekki. Það er óbærileg tilhugsun að hafa þessa sömu ríkisstjórn hérna áfram. Og ef það þarf að stofna nýja hreyfingu sem fókuserar á aðalatriðin og býður upp á menn sem vekja traust en ekki málfundaæfingar í málþófi - nú, þá bara gera menn það.““

Oft ratast kjöftugum satt á munn.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is