
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Eitthvað segir mér að Siv Friðleifsdóttir eigi eftir að leggja Jón Sigurðsson á flokksþingi Framsóknar flokksins um næstu helgi. Jón er einhvern veginn of mikill embættiskarl fyrir þetta embætti og vantar neistann. Og ef Jónína Bjartmarz sigrar Guðna Ágústsson í glímunni um varaformanninn þá leiða tvær konur Framsóknarflokkinn í næstu alþingiskosningum. Það yrði saga til næsta bæjar.
Framboð Sivjar til embættis formanns Framsóknarflokksins getur ekki komið neinum á óvart. Hún tilkynnti framboð sitt að vísu í gær (fimmtudag) og verður það að teljast á allra síðustu stundu. Það er aðeins vika í flokksþingið. Jón Sigurðsson lýsti því hins vegar yfir í endaðan júní að hann gæfi kost á sér í formannskjörið – og síðan hefur hann verið í mörgu stórviðtalinu.
Ýmsir velta því fyrir sér hvort framboð Sivjar komi of seint. Ég held ekki. Segir ekki að þeir síðustu verði fyrstir. Siv hefur örugglega unnið heimavinnuna sína í flokknum í sumar og veit hvernig landið liggur innan flokksins – en rúmlega 800 fulltrúar framsóknarfélaga í landinu verða á flokksþinginu.
Þögn Sivjar um það hvort hún ætlaði að gefa kost á sér benti til þess að hún ætlaði fram. Þegar stundin rann loksins upp lék hún leikinn snöggt og hratt og á skákmáli má segja að hún hafi farið beint í endataflið. Hún verður í öllum fjölmiðlum næstu daga og stelur senunni á verðmætum tíma.
Það verður tæplega sagt annað en að það sé fjör í Framsóknarflokknum. Það er hart tekist á í kjöri um formanninn, varaformanninn og ritarann. Jónína Bjartmarz og Guðni Ágústsson glíma um varaformanninn og þar er spennan að magnast.
Ég held að Guðni eigi eftir að hafa það gegn Jónínu. Hann hefur gefið það út að hann muni hætta í pólitík nái hann ekki kjöri í þessum slag. Sú yfirlýsing fannst mér að vísu til vansa fyrir hann. Það hefur aldrei reynst gæfulegt, hvorki í viðskiptum né pólitík, að stilla mönnum upp við vegg. En Guðni hefur mikið fylgi fulltrúa utan af landi.
Jónína Bjartmarz hefur gefið það út að hún styðji Jón Sigurðsson til embættis formanns í flokknum. Var það klókur leikur af henni? Líklegast ekki. Hvað ef Jónína verður varaformaður og Siv formaður? Hvernig mun þeim ganga að vinna saman eftir þessa yfirlýsingu Jónínu? Enda spyr fólk núna hvort Guðni og Siv séu í kosningabandalagi saman. Þau hafa ekki gefið það upp.
Það verður líka kosið um ritarann. Birkir Jón Jónsson og Haukur Logi Karlsson hafa boðið sig fram. Sjálfsagt eiga fleiri eftir að bjóða sig fram um helgina. Birkir Jón er mjög sigurstranglegur. Hann hefur staðið sig mjög vel á þingi og það hefur einhvern veginn ræst meira úr honum en Dagnýju Jónsdóttur sem þótti efnilegust af nýliðunum í þingflokki Framsóknarflokksins eftir síðustu kosningar.
Jón Sigurðsson er fulltrúi Halldórs Ásgrímssonar, fráfarandi formanns flokksins. Hann sagðist hafa svarað kalli Halldórs um að fara fram. Það fer aldrei vel á því að sterkir leiðtogar, eins og Halldór hefur verið, velji eftirmann sinn þótt þeim sé það öllum tamt. Þegar menn eru farnir af sviðinu eiga þeir að leyfa þeim sem eftir sitja að ráða fram úr sínum málum.
Jón Sigurðsson er eflaust hinn mætasti maður og eldklár. Hann er samt ekki í nægilegu jarðsambandi við fólkið í landinu. Þegar hann mætti á ríkisráðsfund á Bessastöðum í byrjun sumars til að taka sæti í ríkisstjórninni var hann spurður af fréttamönnum út í þessi tímamót í lífi hans. Hann sneri upp á sig og sagði: Það er gott verður í dag.
Í löngu viðtali við Helgja Seljan á Stöð 2 í sumar var Jón spurður um það hvort hann vildi að Ísland gengi í Evrópusambandið. Eftir mjög langt og fræðilegt svar Jóns missti Helgi þolinmæðina og áréttaði spurningu sína við Jón. Þá brást Jón við með þeim hætti að hann sagði spurninguna flókna og að hann væri á hærra þekkingarstigi en flestir um þetta mál og Helgi yrði að skilja það að þetta væri engan veginn auðvelt viðfangsefni.
Það þarf meira jarðsamband en þetta hjá Jóni til að ná hylli fólks – hversu hæfur sem hann annars kann að vera. Framsóknarflokkurinn er í lægð og á undir högg að sækja. Vaxtarbroddur flokksins er á höfuðborgarsvæðinu og þess vegna þarf hann nauðsynlega á sigurstranglegri ásjónu og nýjum málefnum að halda. Úti á landi á flokkurinn fullt í fangi með að halda fylgi sínu frá síðustu kosningum.
Siv leggur mikla áherslu á að kynslóðaskipti verði í forystu flokksins því málefnaágreiningur sé enginn. En flokkurinn þarf fyrst og fremst að heilla Reykvíkinga og aðra íbúa höfuðborgarsvæðisins, annars er hann búinn að vera. Hér eru flestir kjósendur – og flestir neytendur.
Jón G. Hauksson
NÝLEGIR PISTLAR