leita

ELDRI PISTLAR

24. ágúst | Nagli Þráins (JGH)
Samfylking og Vinstri grænir ætla að funda um helgina, þó í sitt hvoru lagi. Jóhanna Sigurðardóttir stígur í pontu á fundi flokksstjórnar Samfylkingar á Hótel Natura (gamla Loftleiðahótelinu) og tilkynnir um breytta ríkisstjórn, þ.e. breytingar á ráðherraliði síns eigins flokks. Margir spyrja sig að því hvort Jóhanna

Það fjarar áfram jafnt og þétt undan Ingibjörgu Sólrúnu og Samfylkingunni og sjást þess nú fyrstu merki að Ingibjörg sé að fara á taugum í þessari kosningabaráttu. Ekki lái ég henni það. Það tekur á taugarnar að stökkva inn á sviðið sem fyrirfram yfirlýstur sigurvegari og glutra síðan fylginu hægt

Kosningaspá mín fyrir laugardaginn er NEI við að rústa stjórnarskránni en dýrt JÁ í Garðabæ um sameininguna við Álftanes. Þeir sem íhuga að segja já í kosningunum um tillögur stjórnlagaráðs ættu að lesa viðtal Morgunblaðsins við fyrrverandi formann og varaformann stjórnlagaráðs, þau Salvöru Nordal og Ara Teitsson. Þau telja


PISTLAR

27/01/2008 | 13:40

Sköllótti borgarstjórinn (BJ)

Leikrit fáránleikans í þremur þáttum.

1. þáttur. Fundur í Orkuveitunni.

Sviðið er fundarsalur í glæsilegri marmarahöll. Út um glugga sést til fjalla í allar áttir. Við þykkt eikarborð situr hópur fólks í leðurstólum. Á borðinu er karafla full af vatni og við hvert sæti er kristalsglas. Öðru hvoru gengur smókingklæddur þjónn um og hellir í glösin.

Fundarstjóri: Góðir stjórnarmenn. Í dag bíður okkar spennandi verkefni. Eins og þið vitið var boðað til þessa fundar í skyndingu til þess að ræða mjög stórt mál. Engin fundargögn voru send út til þess að málið héldist leynilegt. Sjálfur veit ég ekkert um hvað málið snýst. Ég er bara vinur Villa. Nú bið ég borgarstjóra að skýra málið.
Villi (Borgarstjóri I): Þetta mál er svo leynilegt að þegar ég fékk um það minnismiða át ég hann til þess að ekkert læki út.
Svandís: Um hvað snýst málið?
Villi: Það veit ég ekki. Ég gleymdi að lesa miðann áður en ég át hann. Forstjóri, vilt þú ekki skýra málið.
Forstjóri: Það er ekki mitt hlutverk að skýra samninga.
Bingi: Sjáið hvað ég er með flott belti.
Dagur: Ég bara styð samninginn kannski og með jafnvel líka peninga græða. Í er pólitík áhrif hafa til ég vera að.
Villi: Hvað sagði maðurinn?
Svandís: Fyrirgefðu ég var að tala við Styrmi í símanum, hvað spurðir þú um?
Forstjóri: Það er ekki mitt hlutverk að skýra frá því sem sagt er á fundum.
Bingi: Krakkar, haldið þið að ég geti skipt bolunum mínum? Þeir eru allir large en nú þarf ég extra large. Ég hef mjög lítið verið í þeim.
Dagur: Bolnum þú Armani alltaf í ert.
Bingi: Nei, nei, nei. Heldurðu að ég eigi bara einn? Hvers konar lúði heldur þú að ég sé?
Villi: Eru þá ekki allir sammála? Það eru í þessu kaupréttir og alls konar stöff.
Bingi: Ég vil kauprétt. Ég vil kauprétt.
Svandís: Ég ætla að sitja hjá.
Dagur: Græða samningnum pening mikinn á ég seinna. Samt Samfylkingin Málstað Reykvíkinga hafa áhrif. Nema ef vera skyldi öðruvísi.
Villi: Dagur er sem sé með. En þú Bingi?
Bingi: Veistu það Svandís að ég er ekki í neinum nærbuxum? Flokkurinn tímdi ekki að kaupa á mig nærbuxur.
Svandís: Ógeðslega ertu mikið kríp.
Villi: En Ólafur F.? Hvar stendur hann?
Dagur: Ha, ha, ha. Ólafur. Ha, ha, ha.
Svandís: Styrmir segir að Margrét sé með.
Fundarstjóri: Vilhjálmur, hvað með hina sjálfstæðismennina?
Villi: Hina hverja?
Bingi: Villi. Má ég faðma þig?

2. þáttur. Sviðinu er tvískipt.

Öðru megin er Villi og sex óþekktir aðilar. Hinum megin fjögur glæsileg ungmenni

Villi (Borgarstjóri I): Fyrirgefið að ég skyldi ekki tala við ykkur. Það stóð kannski á minnisblaðinu sem ég át að ég ætti að tala við ykkur. Eða kannski ekki.
Fulltrúi 1: Ég var að senda sms til Svandísar. Hún er að íhuga hvort hún vill vera memm, með eða án Villa.
Villi: En Bingi er með okkur. Hann tók í höndina á mér upp á það.
Fulltrúi 2: Kannski getum við fengið Stefán Jón sem borgarstjóra. Hann væri góður.
Villi: En Bingi er með okkur. Við féllumst í faðma.
Fulltrúi 3: Margrét vill vera með okkur en Ólafur hefur ekki samþykkt það.
Villi: En Bingi er með okkur. Ég er búinn að tala við hann fimmtán sinnum í morgun. Samt er hann lasinn
Fulltrúi 4: Hvað ef annar fulltrúinn frá VG kæmi með okkur?
Villi: En Bingi er með okkur. Hann var að senda mér tölvupóst um málið.
Fulltrúi 5: Hvenær eigum við að selja REI?
Villi: Hvaða REI?

Samtímis hinum megin á sviðinu.

Dagur: Boðað við þessa blaðamannafundar höfum til.
Svandís: Flott bindi Bingi! Búinn að skipta aftur?
Bingi: Fékk flottan díl. 25% afslátt.
Margrét: Rosalega ertu flottur gæi.
Svandís: Hvers vegna er Margrét hér? Var búið að tala við Ólaf?
Dagur: Ha, ha, ha. Ólaf. Ha, ha, ha.
Bingi: Alfreð segir mér að ég hafi hærri afslátt en Ingibjörg Sólrún.
Svandís (snýr sér að Margréti): Finnst þér Bingi ekki sexí? (Í hálfum hljóðum) Svo er hann ekki í neinum nærbuxum.
Dagur: Í gær skoðun en á morgun aðra, sem Reykvíkinga best, samþykkja almennings REI, en græða mikið, með huga Reykvíkinga hagsmuni, selja en kannski best.
Svandís: Ég var hlutlaus og alveg á móti en nú skulum við hætta að tala um þetta mál. Kæla málið.
Bingi: Hafið þið séð svona farsíma áður? Armani. Færi flott við jakkafötin ef þau pössuðu enn.
Margrét: Er ekki meira að vera varafulltrúi en aðalfulltrúi?
Svandís: Það hlýtur að vera. Spurðu samt Styrmi:
Bingi: Það er á tali hjá Villa.
Dagur (Borgarstjóri II): Fólkið ræður. Meirihluti sterkur. Friða REI. Selja hótelið.

Skipt yfir á hinn helminginn

Villi: Ég er með Alfreð í símanum. Bingi er með okkur.


3. þáttur. Enn tvískipt svið. Fjögur glæsileg ungmenni öðru megin.


Dagur (Borgarstjóri II): Fólkið ræður. Meirihluti sterkur. Flytja hús.
Svandís: Húsin verða á sínum stað.
Bingi: Rífum kofana. Brýnum kutana.
Margrét: Ég hélt að það væri meira að vera varafulltrúi en aðalfulltrúi. Svo kemur Ólafur með vottorð ...
Dagur: Ha, ha, ha. Ólafur. Ha, ha, ha.
Margrét: Erum við ekki samhentur meirihluti? Er ég ekki enn með í meirihlutanum?
Svandís: Við hróflum ekki við þessum húsum.
Margrét: Hvað með REI?
Svandís: Hættu að tala um REI. Við þurfum vinnufrið. Kæla málið.
Bingi: Krakkar ég vildi tala við ykkur um Dag. Hann er góður drengur, mikill vinur minn, en svolítið umdeildur og kannski ekki heppilegur borgarstjóri.
Dagur: Saman hvað tölum viku við oft í?
Bingi: Krakkar. Dagur á ekki einu sinni leðurjakka.
Svandís: Bingi hvað fær maður í laun fyrir formennsku í sjö nefndum?
Bingi: Ég veit ekkert um það. Ég tel aldrei fram. Jafnmikið og síðast. Maður skiptir ekki um meirihluta fyrir kauplækkun.
Margrét: Hvenær klárum við málefnasamning?
Dagur: Fólkið, Hagsmunir, græða, félagshyggja, straumar, samráð, einbreið brú. Rífa annað húsið við Laugaveg.
Svandís: Ætlaði Ólafur ekki að koma líka?
Dagur: Ha, ha, ha. Ólafur. Ha, ha, ha.

Samtímis hinum megin á sviðinu. Tveir menn fremst og sex óþekktir aðilar fyrir aftan.

Ólafur: Mín stefnumál ráða. Ég verð borgarstjóri. Ég hef haft sömu stefnu í 18 ár.
Rödd úr salnum: Hvaða stefnumál?
Ólafur: Þetta er óviðeigandi spurning.
Rödd úr salnum: Hvar stendur Margrét?
Ólafur: Þetta er óviðeigandi spurning.
Rödd úr salnum: Ólafur. Hvað með veikindi þín?
Ólafur (Borgarstjóri III): Ég er eini borgarfulltrúinn sem er með vottorð um að vera heilbrigður.
Villi: Þakka ykkur fyrir að koma.
Rödd úr salnum: Hver er afstaða hinna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins?
Villi (Borgarstjóri IV): Hvaða fulltrúa?

Skipt aftur

Margrét: Dagur. Ólafur er í símanum.
Dagur: Ha, ha, ha. Ólafur. Ha, ha, ha.

Tjaldið fellur

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is