
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Á sunnudag fór ég að hlýða á fyrirlestur um Jóhannes Brahms, tónskáldið fræga. Margir kannast við myndir af meistaranum þar sem hann er fúlskeggjaður og heldur illilegur. Í fyrirlestrinum kom fram að hann var myndarlegur ungur maður en ákvað milli fertugs og fimmtugs að láta sér vaxa skegg og eltist þar með um 30 ár. Hann lítur líka út eins og hann sé ekki sérlega snyrtilegur eftir að hann hætti að raka sig (reyndar með besta móti á þessari mynd sem hér birtist).
Jim Morrison söngvari Doors safnaði líka skeggi að því að virtist upp úr þurru. Við það breyttist hann úr svölum náunga í kall. Ástæðan var samt örugglega ekki að hann vildi hætta að vera svalur. Hann hafði hins vegar bætt við sig 20 kílóum og hélt að hann gæti falið það með skegginu. Ég hugsa að það sama hafi komið fyrir Brahms.
Auðvitað eru til menn sem eru með flott skegg og verða glæsilegir með það. Óperuskáldið Verdi er einn þeirra. En myndin sem frægust er og flottust af honum með skeggið og trefil er reyndar teikning. Kannski hann hafi í raun og veru verið eins og Brahms á ljósmynd. Annars var Verdi innan við 1.50 á hæð minnir mig þannig að hann er eins og margur kvikmyndaleikarinn, glæsilegri á mynd en í raunveruleikanum.
Karl Marx var með eitthvert myndarlegasta skegg sem sést hefur. Marx var ekki bara með fúlar skoðanir sem leiddu af sér einhverjar mestu hörmungar í sögunni. Hann var líka fúll náungi sem sagt er að hafi verið vondur við konuna sína. Ég fann á Netinu mynd sem sagt er að sé af honum skegglausum, en ég er ekki viss um að hún sé ófölsuð. Marx er einn af þeim mönnum sem manni finnst hafa fæðst með skegg.
Tveir af helstu fjöldamorðingjum sögunnar voru með yfirskegg, þeir Hitler og Stalín. Ekki ætla ég að halda því fram að menn verið fjöldamorðingjar á því að vera með yfirskegg, en skeggið gerði þessa menn ekki góðlegri þó að þeir létu sig ekki muna um að kyssa börn þegar það hentaði. Sagt var um þekktan og fyrirferðarmikinn íslenskan leiðtoga að hann væri svo yfirgangssamur sem raun ber vitni af því að hann hefði minnimáttarkennd. Kannski safna sumir sér skeggi af svipaðri ástæðu.
Líklega eru þessar vangaveltur hjá mér vegna þess að mér hefur aldrei vaxið myndarlegt skegg. Mér nægði að raka mig vikulega langt fram efir aldri og aðeins einu sinni óx mér smá hýjungur þegar ég hafði ekki rakað mig í mánuð. Ég held að ég sé hvorki upprennandi listamaður né fjöldamorðingi (og léttir þá mínum nánustu), en Maó var að vísu ekki skeggjaður og var þó hvort tveggja, þannig að ekkert er hægt að útiloka.
NÝLEGIR PISTLAR