
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Ég spái því að Lilja Mósesdóttir stofni nýjan vinstri flokk á næsta ári. Svona á svipaðan hátt og Steingrímur J. ákvað að fylgja ekki gamla Alþýðubandalaginu á sínum tíma inn í Samfylkinguna. Hann stofnaði þess í stað Vinstri græna og hefur verið foringi flokksins frá upphafi. Hann hefur núna fjarlægst flokkinn og er orðinn krati; genginn í Samfylkinguna.
Lilja var ein þriggja þingmanna Vinstri grænna sem ekki studdi fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og valdi að sitja hjá. Fyrir vikið kom ríkisstjórnin fjárlögum í gegnum þingið með eins naumum meirihluta og hægt er; einum manni.
Vinstri grænir eru klofnir. Það eru engin ný tíðindi; þeir hafa verið klofnir frá því í fyrrasumar eftir að meirihluti Alþingis ákvað að sækja um aðild að Evrópusambandinu, eins og um var samið í stjórnarsáttmálanum.
Ekki veit ég hvers vegna Vinstri grænir samþykktu stjórnarsáttmála með ESB-aðild ef þeir sættu sig ekki við hana? Foringjahollusta? Eflaust. Það var ofar öllu öðru hjá Steingrími að mynda svonefnda vinstri stjórn; hvað sem það kostaði.
Ég efast raunar stórlega um að Steingrímur bjóði sig aftur fram í kosningum til Alþingis. Það fer enginn fjármálaráðherra fram í eigin kjördæmi með þeim hætti sem hann hefur gert varðandi sjúkrahúsiið á Húsavík nema að hann sé að hætta í pólitík.
Fyrir um þremur vikum hélt Steingrímur fund fyrir norðan með flokksfélögum sínum og af myndum sjónvarpsins að dæma voru fundarmenn ótrúlega fáir. Fjármálaráðherrann sjálfur í kjördæminu og sárafáir mættu.
Steingrímur er ásamt Jóhönnu sá þingmaður sem hefur setið lengst núverandi þingmanna á Alþingi. Það vita það allir sem vija vita að Jóhanna fer ekki aftur í framboð. Hún var þvinguð til að taka við Samfylkingunni eftir stjórnarslitin við Sjálfstæðisflokkinn. Það var enginn annar í boði.
Trú mín er því sú að báðir formenn stjórnarflokkanna og oddvitar stjórnarinnar séu að hætta í pólítík. Ég held að annað hvort Árni Þór eða Svandís Svavarsdóttir taki við af Steingrími innan Vinstri grænna. Árni er formaður þingflokksins og erfðaprinsinn. Þess vegna held ég Lilja og órólega deildin stofni flokk á næsta ári. Þau eiga ekki samleið með Árna Þór.
Órólega deildin er Lilja Mósesdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Atli Gíslason. Auk þess eru nefnd til sögunnar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Jón Bjarnason og Ögmundur Jónassonar. Ég veit raunar ekki alveg hvar Ögmundur stendur – honum líður sem stendur vel í ríkisstjórninni.
Hjáseta stjórnarþingmannanna Lilju, Ásmundar og Atla við afgreiðslu fjárlaga sætir tíðindum. Þrír stjórnarþingmenn styðja ekki fjárlögin. Það hefur ekki gerst áður. Það er upphafið að endinum hjá þessari stjórn.
Bæði Steingrímur J. og Árni Þór lýstu yfir mikilli óánægju með hjásetu þingmannanna þriggja og sögðu að þeir yrðu að gera hreint fyrir sínum dyrum í þingflokknum. Það hafa þau svosem gert í opinberri umræðu um langt skeið og ekki farið fram hjá neinum nema kannski Steingrími og Árna Þór.
Jóhanna forsætisráðherra sagði nýlega þegar Lilja Mósesdóttir viðraði þá skoðun að hún styddi ekki fjárlögin að hún yrði að gera það upp við sig hvort hún ætlaði að vera í stjórnarliðinu eða ekki. Í þessu fólst hótun af hálfu Jóhönnu.
Núna hefur Lilja svarað fyrir sig og gert upp hug sinn. Þá fer Jóhanna á taugum sem eðlilegt er. Hún sér fjara undan þingstyrk stjórnarinnar.
Ef Lilja Mósesdóttir og hennar lið stofna ekki nýjan vinstri flokk á næsta ári er það eingöngu vegna þess að kratarnir í Vinstri grænum, Árni Þór, Svandís og fleiri, yfirgefa Vinstri græna og ganga formlega í Samfylkinguna. Ella fara Lilja og hennar lið fram í nýjum flokki.
Þá hefur varaformaður Vinstri grænna Katrín Jakobsdóttir gefið það út að hún ætli að hætta í pólitík.
Þessi ríkisstjórn hefur staðið mörg málin af sér. Auðvitað átti hún að segja af sér eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave í mars sl. Ríkisstjórnin kom þá helsta baráttumáli sínu ekki í gegn – og það sem meira var; þjóðin kolfelldi lögin. Sem betur fer.
Það reynir á allar stjórnir sem kalla sig velferðarstjórnir að ganga harkalega fram í niðurskurði á fjárlögum. Það segir sig eiginlega sjálft. Þessi stjórn lifir það ekki af.
Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is
NÝLEGIR PISTLAR