leita

ELDRI PISTLAR

Allsherjarnefnd Alþingis bað Útgáfufélagið Heim að skila greinargerð um fjölmiðlafrumvarpið. Frestur til skila var aðeins tveir dagar og það er gagnrýnisvert í svo stóru máli. Niðurstaðan er sú að nauðsyn sé á slíkum lögum til þess að tryggja það að ritstjórnir markaðsráðandi fjölmiðlafyrirtækja séu óháðar. Hins vegar skilar þetta frumvarp

Sumir byrja sérhvert ár á heiti, sem þeir svíkja nánast jafnharðan. Loforð gefin á öðrum tímum árs reynast oft betur. Þó ekki alltaf. Borgarstjóra reyndist ómögulegt að halda sig frá þingframboði út árið, þrátt fyrir fjölda loforða um annað. En nú hyggst heimur.is hins vegar efna til nýjungar í

10. apríl | Í rusli (BJ)
Það er svolítið skrítið að sumum virðist líða betur í rusli en skipulegu umhverfi. Oftast er það kannski leti, en heyrst hefur að það þýði ekkert að taka til, allt fari aftur í sama farið. Svipað virðist reyndar gilda um það að fara til rakara. Það hef ég margreynt


PISTLAR

12/03/2008 | 10:30

Stutt ævi (BJ)

Í gær heyrði ég nokkrar ævisögur í útvarpinu.  Vettvangur ævisagna í útvarpi hefur helst verið RÚV eða Útvarp Saga þar sem Sigurður G. Tómasson les Dægradvöl Benedikts Gröndals. Þessar sögur voru hins vegar á BBC sem heyra má hér á landi. Það sem einkenndi þessar ævisögur var að þær voru sex orð hver (eða styttri).

Mörgum Íslendingnum myndi veitast erfitt að afgreiða ævina í svo stuttu máli. Steingrímur Hermannsson þurfti þrjú löng bindi (færð í letur af Degi B. Eggertssyni, sem er einkar lagið að tala í löngu máli). Gunnar Gunnarsson skrifaði fimm sjálfsævisögulegar bækur og Sigurður A. Magnússon sex minnir mig. Þeir voru enn ungir menn þegar verkunum lauk og ekki búnir að gera neitt af því sem þeir eru þekktir fyrir.

Auðvitað er ekki um beina ævisögu að ræða í sex orðum. Fremur setningu sem lýsir einstaklingnum X og ævi hans svo vel að menn geta kinkað kolli og sagt: Þetta á vel við um X. Þáttastjórnandi BBC las sögur héðan og þaðan úr heiminum.

Einn sagði: Hef klúðrað fleiri tækifærum en flestir fá. (eitt orð bættist við í þýðingu).

Kona sagði: Hef alltaf búið í húsum annarra. (hálf drungalegt og sorglegt kannski).

Svo kom: Hef lifað skemmtilegu lífi. Hvað næst?

Mér velti fyrir mér íslenskum hliðstæðum. Guðrún Ósvífursdóttir sagði: Þeim var ég verst sem ég unni mest. (átta orð reyndar en hnitmiðað þó).

Bergmál í Íslandsklukku Halldórs Laxness eru orð Snæfríðar Íslandssólar: Heldur þann versta en þann næstbesta.

Ég sé það á Netinu að þetta er orðinn útbreiddur leikur. Einhver vitnar í Frank Sinatra sem söng þetta þó bara: I did it my way. (Dæmið er samt ágætt vegna þess að allir tengja það við Frank).

Í gamla daga á Saturday Night live byrjaði Chevi Chase fréttaþétt sinn á orðunum: „I’m Chevi Chase and you’re not.“ (Spurning um hvernig orðin eru talin).

Þetta er góð æfing þeim sem vilja lýsa sjálfum sér í knöppu máli. Júlíus Sesar hefur eflaust vinninginn: Veni, vidi, vici.Ég kom, sá og sigraði.

Hver er mín ævisaga?

Hver veit nema rætist úr honum?

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is