leita

ELDRI PISTLAR

Ragnar Sverrisson , kaupmaður á Akureyri, var í viðtali við NFS um síðustu helgi. Ragnar er skemmtilegur maður; brosmildur, lipur og líflegur, og hefur bryddað upp á ýmsu skemmtilegu á Akureyri. Í viðtalinu hótaði hann sérframboði Akureyringa – raði stóru flokkarnir ekki Akureyringum

30. ágúst | Alltaf í boltanum (BJ)
Kaup Landsímans á hlut í Skjá einum og sýningarrétti á enska boltanum vekja furðu allra þeirra sem vilja minnka umsvif ríkisins. Jafnframt vekur það athygli hve gróflega er gengið á móti stefnu ríkisstjórnarinnar eins og hún birtist í fjölmiðlafrumvarpinu. Augljóst var að gert yrði grín að kaupunum í framhaldi af

Yfir 40% Íslendinga hafa íhugað alvarlega á síðustu mánuðum að flytja af landi brott og meira en helmingur ungs fólks á aldrinum 18 til 29 ára. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem fyrirtækið MMR hefur gert. Þegar er mikill straumur fólks út og er það orðað þannig að


PISTLAR

10/02/2012 | 17:16

Tíðir gestir í dómsal (JGH)

jong-2011Jón Ásgeir er á góðri leið með að verða löglærður maður eftir yfirheyrslur og málaferli í næstum tíu ár samfellt. Baugsmálið tók um sjö ár og skattahlið þess yfir þrjú ár til viðbótar. Hann stendur núna í málaferlum við Svavar Halldórsson fréttamann og Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra. Jón Ásgeir tapaði málinu gegn Svavari í undirrétti og hefur áfrýjað því til Hæstaréttar.

Þess utan hefur Jón staðið í ströngu vegna málaferla Glitnis gegn honum en sú kæra var upphaflega tekin upp í New York en hefur verið vísað þar frá og flyst væntanlega til Íslands.

Af þessu sést að Jón Ásgeir er ekki alveg að hverfa á næstunni úr dómsal þrátt fyrir að hafa kvartað undan því í sérstakri fréttatilkynningu árið 2008 að hann hefði mátt eyða drjúgum hluta sjö ára í að verja sig fyrir íslenskum dómstólum og það væri nánast mannréttindabrot hvað Baugsmálið tæki langan tíma.

Verjandi Jóns Ásgeirs er Gestur Jónsson lögmaður og hefur hann verið mjög áberandi á sviðinu eftir að hann varð verjandi Jóns Ásgeirs. Hann þykir snjall og líklegast segir það sig sjálft að hann er mun tíðari gestur í dómsal en Jón Ásgeir.

Í nýlegri yfirlýsingu vegna taps lífeyrissjóða á bankahruni komst Jón Ásgeir m.a. svo að orði: „Hrunið verður ekki gert upp með skýrslunum sem eru einsleitar þar sem takmarkaður hópur fær aðgang að skýrsluhöfundum. Betur væri að það yrði sett upp sannleiksnefnd t.d á Alþingi og þar yrðu menn kallaðir fyrir líkt og gert er í Bandaríkjunum. Þá fengi þjóðin að heyra hvað gerðist í beinni útsendingu.“

Þetta verður varla skilið öðru vísi en Jón Ásgeir hefði kosið að vera í beinni útsendingu sannleiksnefndar vegna hrunsins og útskýra mál sitt þar. Einhvern tíma og undirbúning hefði það tekið.

Þegar málið gegn Birni Bjarnasyni var dómtekið á dögunum mættu þeir Jón Ásgeir og Björn ekki í dómsal heldur lögfræðingar þeirra og verjendur, Gestur Jónsson og Jón Magnússon. (Ekki skil ég hvers vegna málsaðilar þurfa ekki að mæta í dómsal - en svona er það.)

Eftir að Hæstiréttur dæmdi í Baugsmálinu árið 2008 voru ákærur gefnar út í desember 2008 vegna skattamáls Baugsmálsins. Þá sendi Baugur Group frá sér yfirlýsingu þar sem því var haldið fram að grundvallarmannréttindi hefðu verið þverbrotin með því að ákæra margsinnis í sama máli og draga það á langinn.

Í dómi Hæstaréttar í Baugsmálinu var Jón Ásgeir dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að brjóta bókhaldslög vegna útgefins reiknings Jóns Geralds í Bandaríkjunum á Baug.

Í skattaþætti Baugsmálsins gaf ríkislögreglustjóri út ákæru á hendur þeim Jóni Ásgeiri, Kristínu systur hans og Tryggva Jónssyni fyrir meiri háttar skattalagabrot. Dómur í því máli var kveðinn upp í desember sl., 2011, og voru þau sakfelld fyrir skattalagabrot en refsing felld niður haldi þau skilorði í eitt ár.

Það þótti mjög sérstök refsing að hún félli niður héldu þau skilorði í eitt ár en til þess var tekið hvað þessi mál höfðu tekið langan tíma í dómskerfinu og rannsókn þeirra staðið lengi yfir.

Eftir dóminn í skattamálinu sagði Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, við fjölmiðla í Héraðsdómi Reykjavíkur að niðurstaðan jafngilti sýknu.

Í Baugsmálinu gekk vörn Jóns Ásgeirs og Gests út á að þetta væri pólitískt mál frekar en sakamál og það væri runnið undan rifjum Davíðs Oddssonar og hans nánustu samstarfsmanna innan Sjálfstæðisflokksins.

Þetta var ímyndin sem var dregin upp í fjölmiðlum og á henni var keyrt í sjö ár og hún varð til þess að Björn skrifaði bók um Baugsmálið; bókina Rosabaugur yfir Íslandi. Þar útskýrir hann mat sitt á því hvernig vörninni var stillt upp sem pólitískum ofsóknum, hvernig almenningsálitið var mótað kerfisbundið í þágu Baugsmanna, og hvernig vegið var að réttarvörslukerfinu og reynt að hafa áhrif á dómara.

Í bókinni varð Birni það á að segja að Jón hefði verið dæmdur fyrir fjárdrátt en ekki bókhaldsbrot.

Þetta varð til þess að Jón Ásgeir fór í meiðyrðamál við Björn.

Auðvitað er munur á þessum brotum og vissulega hefur vakið athygli og umræðu hvernig það megi vera að Björn hafi ekki verið nákvæmari þegar kom að sjálfum dómsorðunum.

Það breytir því ekki að þetta meiðyrðamál er mjög sérstak. Gestur Jónsson keyrir núna á því að Björn hafi skaðað æru Jóns Ásgeirs með þessari ónákvæmni.

Jón Magnússon, verjandi Björns, segir hins vegar að Jón Ásgeir sé að koma höggi á Björn.

Fram hefur komið að Björn baðst strax afsökunar á rangfærslu sinni og ónákvæmni, leiðrétti hana þegar í seinni prentunum á bókinni, birti leiðréttinguna í aðsendri grein til Morgunblaðsins sem og á vinsælum vef sínum.

Sennilega hefur engin leiðrétting og afsökun fengið eins mikla umfjöllun í fjölmiðlum – hvorki fyrr né síðar.

Gestur er þessu þó ósammála og sagði í meðferð málsins fyrir héraðsdómi að þrátt fyrir að Björn hefði leitast við að leiðrétta rangfærslurnar hafi hann aðeins gert það að hluta.

Og svo kom þessi punktur hjá honum: Að horfa verði til þess að Björn sé löglærður maður og hafi starfað sem dómsmálaráðherra stærstan hluta þess tíma sem Baugsmálið var rekið hjá lögreglu og fyrir dómstólum. Til þess verði að líta við ákvörðun refsingar.

Tæpitungulausara verður vart talað.

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is

Vel á minnst. Fer ekki að verða kominn tími til að Svavar Halldórsson fréttamaður á RÚV birti þessar tuttugu formlegu hótanir um málssókn sem hann hefur fengið?


 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is