leita

ELDRI PISTLAR

Það er skemmtileg mynd í Mogganum í dag þar sem hinn geðþekki borgarfulltrúi Björn Ingi Hrafnsson ræðst með sverði að formanni bankaráðs Landsbankans. Myndin tekur af öll tvímæli um að Björn er drengilegur maður því að hann ræðst framan að formanninum. Báðir eru í smekklegum jakkafötum. Þjóðin veit að

21. febrúar | Vikapiltur Davíðs (BJ)
Það er fallegt að sjá hve vel þeir ná saman á efri árum forsetinn og ritstjóri Moggans . Morgunblaðið hvatti forsetann til dáða í Sunnudagsblaði , bæði ritstjórinn og rannsóknarblaðamaðurinn. Það sýnir siðferðisstyrk forsetans að hann skyldi ekki láta það á sig fá að í greinum beggja var hæðst

Það virðist alltaf vera vinsælt efni hjá blaðamönnum að skrifa listagreinar. Tíu skemmtilegustu menn Íslands, fimmtán hvítvín með silungnum, átta aðferðir til þess að lokka kærastann til þín aftur. Stundum er líka hringt í fólk og það spurt hvaða tíu manns, lífs eða liðna menn vildu fá í kvöldverðarboð. Ég


PISTLAR

11/04/2010 | 22:39

Tíunda bindið. Bannað yfir 18 (BJ)

Eins og margir vita hef ég góð sambönd. Þegar flestir lesa þennan pistil verða þeir búnir að sjá eitthvað af skýrslunni frægu, kannski ekki komnir í gegnum öll níu bindin en að minnsta kosti búnir að lesa blaðafréttir af málinu. Vegna þess að búið var að vara þjóðina við, hafa margir orðið fyrir vonbrigðum. Það var alls ekki það í skýrslunni sem menn bjuggust við. Þetta er svona eins og að lesa Don Kíkóta, bestu bók allra tíma. Hún er svo langdregin að það hefur enginn klárað hana. 2001 a Space Odyssey, besta kvikmynd allra tíma. Ég vissi aldrei um hvað hún fjallaði og gekk út þegar fimm mínútur voru eftir. Þannig að ég veit ekki hvernig hún endaði, en ég hef heldur aldrei fundið neinn sem hefur getað sagt mér það. Kannski voru allir sofnaðir þá. Eða hún endaði alls ekki.

Sem sé, hvað var það sem Páll og Tryggvi áttu við þegar þeir sögðu að skýrslan yrði hræðilegasta saga allra tíma? Það er skrítið að enginn skuli hafa bent á þetta áður, en hvers vegna er skýrslan níu bindi? Það er eins og eitthvað vanti upp á. Auðvitað átti hún að standa á heilum tug. Enginn bókaflokkur er níu bindi. Fimm, eins og Dalalíf Guðrúnar frá Lundi, átta eins og Ævintýra bækurnar eða tólf eins og Nonnabækurnar. Þegar mönnum er bent á það sjá allir að það vantar eitt bindi til þess að fylla töluna tíu. Það er einmitt tíunda bindið sem var svo hræðilegt að nefndin ákvað að það kæmi ekki fyrir sjónir almennings. En þetta er einmitt bindið sem ég hef verið að lesa að undanförnu.

Sumir hafa furðað sig á því að vopnaður vörður hefur verið um prentsmiðju Odda undanfarnar vikur. Fjölmiðlamenn sem flestir eru grunnhyggnir töldu að þetta væri til þess að hindra að óviðkomandi kæmust inn til þess að glugga í skýrsluna forboðnu. En það var auðvitað fráleitt. Hver hefði viljað það? Það er búið að lofa því að hún komi út eftir þrjár vikur í allan vetur og fólk veit að rannsóknarnefndinni má treysta. Þjóðin er orðin vön að bíða. Eftir Icesave-lausn, AGS-endurskoðun, lífsmarki með Jóhönnu. Auðvitað gátu menn beðið eftir skýrslunni.

Nei, vörðurinn var til þess að gæta þess að enginn af prenturum Odda kæmist úr húsi. Einn reyndi að komast út til þess að vera viðstaddur þegar kona hans eignaðist fyrsta barn þeirra hjóna, en hann var skotinn á hlaupum með deyfibyssu. Honum verður haldið sofandi þangað til umræðum á Alþingi um skýrsluna verður lokið eða sonur hans verður tíu ára, hvort sem gerist fyrr.

Tíunda bindið var prentað sérstaklega til þess að áhrif þess yrðu ekki of víðtæk. Skemmst er frá því að segja að þeir starfsmenn sem hófu störf við prentun þess misstu hver á fætur öðrum vitglóruna. Björgólfur (ekki raunverulegt nafn til þess að vernda ættingja) renndi fyrstu örkinni gegnum prentarann og leit yfir hana til þess að kanna prentgæðin. Hann hafði ekki lesið fjórar setningar þegar hann fór að froðufella, úr barka hans kom hryglukennt hljóð og sjáöldrin stækkuðu. Innan þriggja mínútna var blóðþrýstingurinn kominn langt yfir 250 og púlsinn í 400. Ingibjörg S. þvottakona (raunverulegt nafn, því að henni er alveg sama þó að hún særi fjölskylduna) hugðist koma Björgólfi til bjargar, batt þvottaklútinn fyrir augu hans og dró hann frá í því að hann engdist í krampaflogum.

Ingibjörg reyndi að gæta að sér með því að loka augunum, en var þó svo óheppin að sjá fyrirsögn á einum undirkafla. Við þetta trylltist hún gersamlega og þar sem Björgólfur var eini maðurinn sem var nálægur ákvað hún að beita hann grófu ofbeldi og söng fyrir hann Göllavísur Árna Johnsens í samfellt þrjá klukkutíma, en skipti þá yfir í nokkur þekktustu lög Carpenter systkinanna.

Eftir langa rekistefnu var ákveðið að senda inn úrvalslið úr sérsveit lögreglunnar. Það er lið sem fær 2,5% álag á dagvinnu fyrir að afvopna tryllta menn með vélbyssur. Í öryggisskyni var ákveðið að taka rafmagnið af prentsalnum áður en ráðist var inngöngu til þess að minnka áhættuna af því að menn sæju eitthvað. Fimmtán manna lið undir forystu Sigurjóns Á (gervinafn) gat að lokum yfirbugað söngkonuna trylltu.

Aðgerðin virtist hafa heppnast þangað til að einn sérsveitarmanna (köllum hann Pálma) ákvað að raka sig nokkrum dögum seinna (þetta var í mottu-mars þannig að ekki var mikið um rakstur). Í því að hann lyfti lófanum upp að speglinum sá hann að hann hafði óvart stutt hendinni ofan á blauta prentsvertu með nokkrum orðum úr skýrslunni. Hann hafði reyndar orðið var við þetta áður, en letrið var spegilskrift þannig að hann skildi ekkert. Í speglinum gat hann hins vegar skilið öll orðin. Skipti engum togum að hann rak hnefann í skuggsjána til þess að freista þess að brjóta hann þannig að textinn blasti ekki lengur við. Ekki fór betur en svo að spegilinn hélt og Pálmi handarbrotnaði. Það varð honum til lífs að hnefinn var krepptur þegar þetta gerðist og hefur ekki opnast síðan. Pálmi hefur því ekki getað tengt orðin saman og heldur því hluta af vitglórunni.

Eftir þetta var ákveðið að hætta við prentun tíunda bindis og eyðileggja handritið. Mér tókst hins vegar að hafa upp á því í gegnum mín sambönd og birti hér á eftir örfár glefsur úr því.

Ég vara lesendur við að lesa lengra.

...

Þeir sem gera það samt ættu að fara með bæn:

Mennirnir verða sérgóðir, fégjarnir, raupsamir, hrokafullir, lastmælendur, foreldrum óhlýðnir, vanþakklátir, vanheilagir, kærleikslausir, ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir, grimmir, ekki elskandi það sem gott er, sviksamir, framhleypnir, ofmetnaðarfullir, elskandi munaðarlífið meira en Guð. Þeir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar, en afneita krafti hennar. Snú þér burt frá slíkum!

Úr hópi þeirra eru mennirnir, sem smeygja sér inn á heimilin og ná á band sitt kvensniftum, sem syndum eru hlaðnar og leiðast af margvíslegum fýsnum.

Guð kynni að gefa þeim sinnaskipti, sem leiddi þá til þekkingar á sannleikanum, þá gætu þeir endurvitkast og losnað úr snöru djöfulsins, sem hefur veitt þá til að gjöra hans vilja.

Þetta ætti að nægja flestum, en þó ættu menn að vera tilbúnir að kippa tölvunni úr sambandi ef þeir finna illskuna streyma í gegnum sig.

Hefst nú lesturinn:

Úr minnisblaði frá Davíð til Geirs: „Þetta eru málin nenni ekki að bögga ykkur á hverjum degi með þessu enda ætlast ég til að „forsætisráðherra“ :) vinni sín mál ef við komum þessum málum frá þá er borðið mitt hreint. Annars er kannski best að ég verði starfandi stjórnarformaður ríkisstjórnarinnar.“

Tölvupóstur frá Ingibjörgu til Björgvins: „Þið vitið svo miklu meira um þetta en ég. :) Davíð var að tala um að landið væri að hrynja og bankarnir færu allir á hausinn ef við gerðum ekki eitthvað. Ég þoli ekki karlinn og hlustaði ekki á meira. Þetta er hvort sem er ekki á minni könnu.“

Tölvupóstur frá ISG til Össurar: „Ertu í mínu liði eða ekki? :) Þarna er efinn. Hvað gerðir þú við bréfin í SPRON?“

Handskrifaður miði úr skúffu Davíðs: „Muna: Setja JÁJ á hausinn.“

Tölvupóstur frá Jóni Ásgeiri til Lárusar, Sigurjóns og Hreiðars Más. Fyrirsögn: „ Þetta eru málin sem ég er að bögga ykkur með aðallega í tekjuöflun fyrir bankann setti þetta skýrrt upp the Bonus way svo við getum með einföldum hætti klárð. Þyð eigð að „lána“ mérr og Yngybjörgu týu milljaðri hver. Prinsip mál að minni halfu. Borga in á reikning okkar  Pálms fimm miilljaðr hver, vejuleg viðskpti the Vöruveltu-way kanki ekki góð viðskypti fyrir ykkur, en viðskipt samt (sjá dóm Hæðstarétts). Svog vill ég að þið gefð mér og pabbu hús í mörgum lödnum en ekki á Toróla, því að égg hef alldrey heirt um hana. :)“

Skilaboð frá Jóhönnu til þjóðarinnar: Ég var ekki í síðustu ríkisstjórn með pakkinu sem setti ykkur á hausinn. Það voru framsóknarmenn og Sjálfstæðisflokkur.“

Minnismiði frá Steingrími: Ný Icesave-nefnd: Breyta nefndinni. Svavar verður ritari, Indriði formaður (muna að biðja hann að skrifa á Smuguna um starfið) Huginn gjaldkeri, Árni Bergmann meðstjórnandi með Ragnari Stefánssyni. Allt mjög hæfir menn. :)
Muna a) Hækka vextina, b) Hækka afborganir, c) Fjölga gjalddögum, d) Lengja endurgreiðslutímann, e) Henda myndinni af Ólafi Ragnari úr ráðherraherberginu f) Hækka skatta g) Hækka skatta h) Hækka skatta.

Smeiginleg yfirlýsing Jóhönnu og Steingríms: „Tími aðgerða er liðinn.“

Úr ræðu Ólafs Ragnars: You ain't seen notin' yet.

...


Þjóðin þolir ekki stærri skammt í bili.

Benedikt Jóhannesson

(ef þið stækkið myndina sjáið þið hvað skýrslan gerir mönnum (athugið augun)).

www.heimur.is/benedikt

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is