leita

ELDRI PISTLAR

Svandís Svavarsdóttir er í miklum vanda þótt ýmsir ræði um hana sem einhverja drottningu sem hafi tekið sviðið í borgar- málunum. Hún fórnaði eigin sannfæringu fyrir völdin og gekk til samstarfs við þá Dag B. Eggertsson og Björn Inga Hrafnsson eingöngu til að fella meirihluta sjálfstæðismanna í borginni. Það

Verst af öllu. Það er af nógu að taka – en af öllum málum sem Jóhanna hefur klúðrað held ég að hún hefði ekki viljað brjóta jafnréttislög; lög sem hún sjálf átti þátt í að setja sem félagsmálaráðherra. Jóhanna hefur gumað af því að berjast fyrir jafnrétti kynjanna og

Jón Kaldal, ritstjóri Fréttatímans, er með athyglisverðar pælingar um stjórnun í leiðara sínum sem ber yfirskriftina Fifl og fífl. Hann segir að grínistinn rúlli keppinautum sínum upp. Hann segir „að í tíð hans“ sé búið að slá af glórulausa samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni, við fögnuð flugrekenda, og hafin löngu tímabær


PISTLAR

06/05/2011 | 18:23

Vítahringur vöfflunnar (JGH)

jong-2011Það er víst siður í Karphúsinu að baka vöfflur eftir undirritun. Það getur vel verið að það sé góður siður. Núverandi samningur bakar hins vegar stórfelld vandræði. Það var engin ástæða til að faðmast, gantast og slá í deig eftir þennan samning. Þetta er verðbólgusamningur af gamla skólanum og skelfilegur í alla staði.

Hvernig dettur nokkrum manni í hug að hægt sé að hækka laun þegar enginn hagvöxtur er fyrir hendi heldur samdráttur upp á 11% á síðustu tveimur árum?

Ég skil ekki að Samtök atvinnulífsins og ASÍ kjósi þá leið að hækka launin og ýta undir verðbólgubálið sem snarhækkar öll lán í landinu á svipstundu vegna verðtryggingar.

Steingrímur J. tekur helminginn af launahækkuninni, verðbólgan afganginn, lánin snarhækka vegna verðtryggingarinnar, fjármagnskostnaður fyrirtækja og heimila hækkar, gengið sígur og atvinnuleysi eykst.

Faðmlög eru ekki rétta aðferin eftir svona undirskrift.

Hagfræðingur ASÍ reiknar sig í gegnum þessa formúlu og finnur það út að þetta skapi kaupmáttaraukningu upp á 3 til 4% á næstu árum. Er ekki allt með felldu?

Annað. Þessi staðlaða mynd af samningamönnum í faðmlögum undir fyrirsögninni Kátt í Karphúsinu. Mikið óskaplega er þetta þreytt. Voru samningamenn að fagna gömlu og úreltu víxlverkun launa og verðlags sem var takturinn á árum áður og allir fengu nóg af?

Það eru yfir 2 þúsund fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins, SA, þar af um eitt þúsund iðnfyrirtæki. Ég held að það sé talsverð hætta á að fyrirtæki segi sig úr Samtökum atvinnulífsins á næstunni.

Ekki veit ég hvernig verslunin í landinu og fátækur iðnaðurinn geta hækkað laun um 23% á næstu þremur árum. Á sama tíma hefur allt hráefni til iðnaðar hækkað. Deigið í vöfflurnar hefur hækkað þótt ríkisrekið Karphúsið muni ekki um það.

Það var ekki til fé hjá fyrirtækjum fyrir þessum samningum og það var engin innstæða hjá ASÍ að hóta verkfallsvopninu. ASÍ hefði raunar aldrei gripið til þess vopns, fyrr hefði verið gerð bylting innan verkalýðsforystunnar og verkalýðsforstjórinn láti fjúka.

Ég sá ekkert um „gíslatöku SA“ og „grímulausa hagsmunagæslu fyrir LÍÚ“ sem ASÍ hefur karpað yfir síðustu mánuðina. Hvernig getur ASÍ verið á útopnu fyrir viku og lýst því yfir að sverfa þurfi  til stáls og brjóta þurfi gíslatöku SA á bak aftur – án þess að orð sé minnst á gíslatökuna þegar skrifað er undir?

Hvað varð um gíslatökuna? Þarf ekki að segja okkur frá henni og hvernig henni lyktaði? Eða er henni lokið?

Ég hef áður minnst á það hve skrítið það er að Samtök atvinnulífsins og ASÍ geti ekki samið sín á milli án þess að senda alltaf reikninginn á skattgreiðendur og ríkissjóð. Geta „aðilar vinnumarkaðarins“ ekki borið ábyrgð á sínum samningum sjálfir?

Svo kemur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og segir ríkisstjórnina ætla að grípa til einhverra umfangsmestu aðgerða sem ríkisstjórn hefur nokkru sinni farið í tengda kjarasamningum.

Ríkissjóður á að dæla út 40 milljörðum á næstu þremur árum. Það var það sem „aðilar vinnumarkaðarins“ kreistu út úr ríkisstjórn með galtóman ríkissjóð.

Jóhanna segir að það sem snúi að ríkisvaldinu næstu þrjú árin séu velferðarúrræði, menntaátak, skattamál og fleira. Þetta nemi 40 milljörðum, fyrir utan það fjármagn sem fari í að auka hér opinberar framkvæmdir á þessum tíma.

Steingrímur J. kemur svo og segir að „þetta geri auknar kröfur um mjög föst tök á fjármálum hins opinbera á næstu misserum“. Hann talar hins vegar um að 60 milljarðar falli á ríkissjóð vegna samninga ASÍ og Samtaka atvinnulífsins.

Sveitarfélögin hafa þegar sagt að þau geti ekki boðið sömu launahækkun. Það breytir hins vegar engu; laun allra munu auðvitað hækka, skriðan er komin af stað í mestu efnahagskreppu lýðveldisins.

Jóhanna og Steingrímur hækka tekjuskatta og þvælast fyrir allri uppbyggingu í landinu. Þau leggja auknar álögur á atvinnulífið. Næla sér í góða búbót af hærra bensínverði. Gæla við vegtolla til að gera út af við bíleigendur, landsbyggðina og ferðaþjónustuna. Hækka fjármagnstekjuskatta á þá fáu sem spara og leggja á auðlegðargjald til að hrekja þá, sem eiga peninga, úr landi.

Hæstu vextir í heimi, launahækkanir, enginn hagvöxtur, verðbólga, aukið atvinnuleysi, aukin ríkisútgjöld, auknar lántökur ríkis vegna aukinna ríkisútgjalda, verðtrygging, gjaldþrot heimila og fyrirtækja, fólksflótti.

Þetta leikrit ASÍ, SA og ríkisstjórnarinnar er ekki uppörvandi. Það er vítahringur sem erfitt verður að komast út úr. Vítahringur vöfflunnar.

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is