leita

ELDRI PISTLAR

29. desember | Menn ársins 2009 (JGH)
Hér kemur ræða sem ég flutti fyrir hönd dómnefndar í veislu á Hótel Sögu þegar Frjáls verslun útnefndi feðgana í Fjarðarkaupum menn ársins 2009 í íslensku atvinnulífi; þá Sigurberg Sveinsson og syni hans Svein og Gísla Þór. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra afhenti viðurkenningarnar. Gissur Páll Gissurarson tenor söng nokkur lög.

Ég heyrði í morgun, sunnudag, þátt um Stein Steinarr og ljóð hans. Um þessar mundir eru hundrað ár frá því að Steinn fæddist. Hann lifði hratt og var umdeildur og er enn. Sjálfur hef ég verið hrifinn af Steini allt frá því að ég var í menntaskóla. Oft hefur

19. mars | Góðir menn (BJ)
Það var gott hjá Baugsfeðginum að gefa barna spítalanum 300 milljónir og láta svo ekki sjá sig við afhendinguna. Með þessu sýndu þau stíl. Það vita allir af gjöfinni þó að þau láti ekki mynda sig í bak og fyrir. Satt að segja hefði verið svolítið brjóstumkennanlegt að sjá


PISTLAR

24/05/2004 | 00:00

Veislufælni forsetinn (BJ)

Forseti Íslands hefur frá degi til dags ekki brýnum skyldum að gegna. Upplýst hefur verið að á liðnu ári var hann 101 dag í burtu og á yfirstandandi ári hefur hann verið langdvölum erlendis, mest í einkaerindum. Það er athyglisvert að prívatmaðurinn Ólafur virðist vera samkvæmisljón og lætur sig ekki vanta í veislur með Michael Caine og Steve Martin sem hann kemst væntanlega í sem eiginmaður Doritar. Þegar hann á hins vegar að mæta sem forseti Íslands er hann víðs fjarri, hvort sem um er að ræða heimastjórnarafmælið eða brúðkaup Danaprinsins.

Það var á árum áður haft á orði um veislur í Washington að þær væru sérstaklega hallærislegar ef þekktasti gesturinn væri sendiherra Íslands. Ekki hefur heyrst að þessi skoðun hafi verið færð upp á forsetaembættið en óhætt er að fullyrða að veislurnar sem Ólafur sótti vestanhafs hafa ekki verið neitt slor. Þar voru jú raunverulega frægir menn,  sjálfur Steve Martin og einhverja rámar eflaust enn í Michael Caine (mig minnir að hann sé breski leikarinn frá sjöunda áratugnum, en við Steve hittumst í Kaupmannahöfn fyrir nokkrum árum og hann lifir enn á minningum frá þeim fundi).

Það hefur loðað við margan frægan manninn að vera að heiman á afmælisdaginn. Ólafur hefur ekki viljað taka sénsinn á því að blómvendir kæmust ekki í vatn og skundaði því heim til þess að geta persónulega tekið við gjöfum og skeytum. Mér finnst það hugulsamt af Ólafi að velja afmælisdaginn sinn sem einn af þeim fáu dögum sem hann er heima. Fjarskipti eru mjög erfið til Mexíkó þar sem hann dvaldi síðast. Þaðan næst til dæmis hvorki símasamband til ríkisstjórnar Íslands eða forseta þingsins og með herkjum að hægt er að koma boðum til DV. Heyrst hefur að forsetinn áformi á næsta ári að taka námskeið í notkun Netsins þannig að hann geti kynnt sér mælendaskrá í þingmálum á vefsíðu Alþingis.

Danir munu nú í sárum vegna fjarveru forsetans í brúðkaupinu mikla. En þeir geta sjálfum sér um kennt. Forseti Íslands mætir ekki í veislur þar sem honum er ekki ætlað neitt hlutverk.

Benedikt Jóhannesson

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is