leita

ELDRI PISTLAR

03. júlí | Ég heiti ... (BJ)
Núna finnst mér ég vera leikari í njósnamynd. Ég er í Skotlandi. Daginn eftir að ég kom til landsins var ráðist á flugvöllinn í Glasgow þar sem ég kom inn. Svo hitti ég James Bond. Myndin er enn í gangi. Yfirleitt er ekki keyrt með logandi bílum inn á flugvelli

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, leggur mikið upp úr Nallanum; alþjóðasöng verkamanna. Hann lét kyrja lagið við setningu ársfundar ASÍ og tóku þeir hressilega undir ráðherrarnir Össur og Árni Páll og krepptu hnefa, eins og raunar mátti sjá á ágætri mynd í Mogganum. Forseti Íslands og Ögmundur voru hins vegar

Ég var norður á Akureyri í vikunni þar sem kona mín júbíleraði ásamt öðrum MA-ingum. Þar var ég spurður um þá ákvörðun Hönnu Birnu að verða forseti borgarstjórnar. Ég sagðist vera frekar fráhverfur henni. Ég ætti erfitt með að kyngja því að myndaður hefði verið nýr meirihluti í Reykjavík


PISTLAR

24/02/2012 | 12:04

Við erum bensíntittir (JGH)

jong-2011Óli heitinn í Olís notaði einhvern tíma orðið bensíntittur í viðtali. Það var þegar hann fór af skrifstofunni og gerðist starfsmaður á plani; var á dælunni í einn dag. Þá sagðist hann vera orðinn bensíntittur. Núna er Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra komin á dæluna og malar þar gull. Hún er bensíntittur samtímans. Malar gull. Þetta er eins og að vinna gullpottinn hjá henni þegar krónurnar dælast í ríkiskassann.

Við bíleigendur eru raunar allir bensíntittir í vinnu fyrir hið opinbera. Þegar við tökum bensín leitum við í sjálfsafgreiðsluna og dælum bæði á tankinn og í ríkiskassann.

Verð á bensíni hækkaði í dag í 264 krónur lítrinn af dísil og í 258 krónur bensínlítrinn. Ekki heyrði ég samt í neinum bílflautum í dag. Við Íslendingar látum allar bensínhækkanir yfir okkur ganga. Kvörtum ekki, tuðum heima hjá okkur, og ökum ef til vill minna.

Ríkið tekur 123 krónur af 258 króna verði bensínlítrans; næstum helminginn. Ríkið fær núna 53 krónum meira í skatta af hverjum lítra af bensíni en það fékk fyrir fjórum árum áður en kreppan skall á.

Ríkið tekur 240 þúsund í skatta á ári af meðafjölskyldu sem kaupir bensín. Það er yfir 100 þúsund krónum meira en hún gerði fyrir fjórum árum þegar hún tók 140 þúsund í sinn hlut.

Í millitíðinni skall ekki á nema ein kreppa eða svo. Að vísu harðasta kreppa lýðveldisins. Hverju breytir það?

Við bensíntittir dælum af krafti fé í ríkiskassann fyrir fjármálaráðherra. Við erum eins og hamstur í hjóli, dælum og dælum.

Ekki má heyra minnst á að lækka verðið. Að vísu leggja sjálfstæðismenn til að lítrinn lækki niður í 200 krónur og ríkið græði ekki eins mikið á bensínhækkunum.

Sú lækkun kemst örugglega ekki í gegnum þingið. Það er sagt að verðið sé bara eins og í Noregi þar sem laun eru meira en tvöfalt hærri en á Íslandi. Það tekur Norðmanninn meira en helmingi styttri tíma að vinna fyrir bensínlítranum.

FÍB áætlar að kostnaður hverrar fjölskyldu vegna bensínkaupa sé um 500 þúsund krónur á ári og þar af sé hlutur hins opinbera (skatttekjur) yfir 240 þúsund krónur.

Svona er hækkunin.


                                  Bensín 95 oktan 
                         Verð á lítra     Hlutur ríkisins

Febrúar 2008:      138 kr.               70 kr.
Febrúar 2009:      144 kr.               76 kr.
Febrúar 2010:      200 kr.             104 kr.
Febrúar 2011:      216 kr.             110 kr.
Febrúar 2012:      258 kr.             123 kr.

                                         Dísil
                        Verð á lítra       Hlutur ríkisins

Febrúar 2008:     142 kr.              70 kr.
Febrúar 2009:     163 kr.              79 kr.
Febrúar 2010:     198 kr.              95 kr.
Febrúar 2011:     219 kr.            105 kr.
Febrúar 2012:     264 kr.            120 kr.

Verð á bensíni stefnir í 300 krónur lítrinn. Það verða ekki margar vikur þangað til að sá múr fellur.

Í morgun var ég spurður að því af ágætum samstarfsmanni mínum hvort ég væri byrjaður að safna fyrir berjamónum í haust.

Ég svaraði því neitandi en hóf söfnunina þegar í stað.

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is