leita

ELDRI PISTLAR

Það hefur gengið á ýmsu í þessari viku. Hún byrjaði á kostulegu bréfi til Kæra Jóns frá Róberti Marshall. Þá kom mögnuð yfirlýsing frá Alfreð Þorsteinssyni um að hann væri ekki talnaglöggur maður. Vikan hefur samt einkennst af því að nokkrir reynsluboltar í pólitík sögðu frá því að þeir

Ég velti því stundum fyrir mér hvort Ingibjörg Sólrún láti engan lesa yfir ræðurnar sínar. Hún byrjaði á dæmalausum Borgarnesræðum fyrir Alþingiskosningarnar. Svo sagði hún þingmönnum Samfylkingarinnar að þjóðin treysti þeim ekki. Það er reyndar rétt en flestir foringjar myndu reyna að stappa stálinu í sitt lið, ekki tala

Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, sagði á ráðstefnu eldri borgara um skatta og skerðingar að „ríkið væri stærsti lífeyrisþeginn“. Þetta var athyglisverð staðhæfing og virðist hafa hitt í mark. Enda ágætlega orðað hjá Stefáni. Í Kastljósi var hins


PISTLAR

01/11/2006 | 22:04

Vilhjálmur kærir Extra Blaðið (JGH)

Það taka víst fáir mark á danska sorpritinu Extra Blaðinu og þannig hefur það víst alltaf verið. En það eru alltaf einhverjir sem eru tilbúnir til að trúa því sem „hljómar vel“ og er er þeim að skapi. Þess vegna er ég ánægður með að Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifafræðingur, sem búið hefur í Danmörku um nokkurt skeið, hafi kært Extra Blaðið fyrir að brjóta gegn ákvæðum danskra hegningarlaga, en þau banna að farið sé orðum um þjóðir í þeim tilgangi að sverta þær. Áfram Vilhjálmur Örn!

Ekki veit ég hvort þessi kæra Vilhjálms verði nokkurn tíma tekin fyrir – en hún ber þess vitni að Vilhjálmur lítur á níðskrif blaðsins um Íslendinga og hina íslensku kaupsýslumenn að undanförnu sem hreinar og klárar ofsóknir gegn þjóðinni.

Vilhjálmur Örn hefur sagt að með með orðum Extra Blaðsins um að  „300 þúsund manns frá vindblásinni klettaeyju í Atlantshafi hafi fengið þá grillu að taka yfir heiminn“ sé verið að bera lögbrot upp á heila þjóð.

Skrif Extra Blaðsins um íslensku fjárfestana eru óskiljanleg. Það stendur ekki steinn yfir steini í þeim. Þau eru uppspuni og hér er um „einbeittan brotvilja“ að ræða, eins og lögfræðingarnir orða það. Ég er sammála forystumönnum stærstu fyrirtækjanna um að þessi umfjöllun er ekki svara verð.

Extra Blaðið skaðar okkur Íslendinga engu að síður. Hversu mikið er erfitt að segja. En einhverjir munu velta því fyrir sér hvort það sé ekki eitthvað til í þessum skrifum. Varla málsmetandi menn innan dansks viðskiptalífs eða sérfræðingar í bankakerfinu – heldur frekar maðurinn á götunni sem gleypir oft svona fréttir hráar.

Ýmsir hafa velt því fyrir sér hver sé tilgangurinn með skrifum Extra Blaðsins. Viðskiptablaðið hefur eftir miðlara hjá alþjóðlega bankanum ABN EMRO að líklega séu skrifin hefndaraðgerð vegna Nyhedsavisen. Raunar byrjuðu ofsóknir danskra blaðamanna talsvert fyrr, eða þegar flaggskipið við Kóngsins nýjatorg var keypt; Magasin Du Nord. Sú verslun hafði að vísu verið rekin með tapi um árabil og þótti mörgum Dananum á þeim tíma sem Íslendingar væru vitlausir að leggja í slíka fjárfestingu.

Greiningardeild Danske Bank, sem gaf út svarta skýrslu um íslenskt efnahagslíf og bankana snemma á árinu, hefur núna sent frá sér póst um umfjöllun Extra Blaðsins þar sem segir: „Gleymið erindi Extra Blaðsins, hún á ekkert erindi við fjárfesta sem hafa áhuga á íslenska markaðnum.“

Danske Bank mátti hins vegar til með að koma með þetta útspil. Síðastliðinn föstudag lak út innanhússpóstur frá greiningardeild Danske Bank þar sem fjárfestar voru varaðir við umfjöllun Extra Blaðsins sem gæti valdið lækkun á gengi krónunnar. Það var Lars Christensen, hagfræðingur bankans, sem skrifaði tölvupóstinn.

Lars Christensen þessi hefur verið með okkur Íslendinga á heilanum í marga mánuði. Hann gat ekki setið á sér í tölvupóstinum sl. föstudag: „Í síðustu viku þegar ég heimsótti Ísland gerði Roman Abramovich það líka. Hann hitti forseta Íslands...en það er auðvitað alveg „eðlilegt“...eða hvað?? Engar vangaveltur hér – aðeins athugun. Svo varið ykkur.“

Núna segir Lars hins vegar við Viðskiptablaðið að pósturinn sl. föstudag hafi verið brandari og að athugasemdir hans hafi verið misskildar þar sem þær voru sagðar í gríni.

Danir eru frægir húmoristar. Líklegast er tilgangur Extra Blaðsins sá að vera með einn stóran „svartan húmor“. En því miður leggja alltaf einhverjir við hlustir og trúa því sem þeir vilja trúa og „hljómar vel“. Það er vandinn við öll svona skrif. Þess vegna segi ég: Áfram Vilhjálmur Örn!

Jón G. Hauksson


jgh@heimur.is

 

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is