
Það er hægt að ganga að því sem vísum hlut að margir bíða spenntir þegar fréttist að ný kvikmynd frá þeim bræðrum Ethan og Joel Coen sé væntanleg (sem gerist nokkuð reglulega enda afkastmiklir kvikmyndagerðarmenn) og aldrei hefur fjölmiðlaumfjöllunin verið jafn mikil gagnvart kvikmynd frá þeim og sú sem True Grit fékk.
Þessi auka umfjöllun var að langmestu leyti á kostnað Jeff Bridges. Hann hafði ekki leikið undir stjórn Coen bræðra síðan hann lék Dude í The Big Lebowski (1998), persónu sem verður að teljast í dag eina af frægustu uppdiktuðu persónum kvikmyndasögunnar. Bridges var auk þess að feta í fótspor goðsagnarinnar John Waynes, en Wayne fékk sín einu óskarsverðlaun fyrir leik sinn í True Grit (1969) og mynd Coen bræðra byggir á sömu skáldsögu en er annars um margt ólík. Og síðast en ekki síst fór Bridges nánast beint frá óskarsverðlaunahátíðinni í fyrra þar sem hann fékk óskarinn sem besti leikarinn fyrir Crazy Heart, í tökur á True Grit.
Spurningin er síðan hvort Bridges og Coen bræður hafi staðist álagið í fjölmiðlafárinu og svarið er já. True Grit er ekki besta kvikmynd bræðranna en fer tvímælalaust í topp tíu hjá þeim og ef við tökum þær þrjár kvikmyndir sem þeir gerðu á undan þá er No Country For Old Men betri kvikmynd enda ein allra besta kvikmynd Coen bræðra, en True Grit stendur framar Burn after Reading og A Serious Man, en sú síðastnefnda fór fyrir ofan garð og neðan hjá flestum.
Það sem aðgreinir True Grit frá flestum kvikmynda Coen bræðra er hversu einföld hún er, engar hliðarsögur eða persónur með margbrotna persónuleika. Myndin gerist í villta vestrinu og oftar en ekki eru sögupersónurnar á hestbaki. Við erum í fáum orðum sagt að fylgjast með Mattie Ross (Hailee Steinfeld) í leit að Tom Chaney (Josh Brolin) sem hafði myrt föður hennar. Hún fær gamla og útbrunna Texas löggu Rooster Cogburn (Jeff Bridges), sem þykir sopinn góður, til að aðstoða sig við að elta uppi morðingjann. Í leit að Chaney er einnig önnur kúrekalögga, LaBoeuf (Matt Damon) og rugla þau þrjú reitum saman. Og eins og vænta má er ekki óvæntur endir á myndinni.
Þegar miðað er við hvað í raun gerist lítið í True Grit þá er ótrúlegt hvað hún heldur manni við efnið og hversu spennandi það er að fylgjast með tríóinu í leit að morðingjanum. Þarna er að finna snilld bræðranna sem kunna manna best að gera mikið úr litlu. Ekki verður litið fram hjá þátt leikaranna og hjartað í myndinni er samband hinnar ungu Mattie og Roosters og er samleikur þeirra Hailee Steinfeld og Jeff Bridges sérlega góður og eftirminnilegur. Víst má telja að gæðablóðið Bridges hefur reynst byrjandanum Steinfeld góður kennari. Minna fer fyrir Matt Damon og Josh Brolin en þeir skila sínum hlutverkum með prýði.
Leikstjóri: Ethan og Joel Coen. Handrit: Joel og Ethan Coen eftir skáldsögu Charles Portis. Kvikmyndataka: Roger Deakins. Tónlist: Carter Burwell. Leikarar: Jeff Bridges, Hailee Steinfeld, Matt Damon, Josh Brolin og Barry Pepper. 108 mín.
Hilmar Karlsson