
Að hafa atvinnu af því ferðast landshorna á milli og reka fólk úr vinnu ætti ekki að vera spennandi eða uppbyggjandi starf en Ryan Bingham (George Clooney) vill þó ekkert annað gera og sér ýmsa kosti við starfið sem aðrir sjá ekki, til dæmis á hann sér það markmið að verða sjöundi maðurinn sem ferðast 10 milljón mílur með sama flugfélaginu. Hvað varðar starfið sjálft hefur hann komið sér upp tækni við uppsagnirnar sem virkar vel og gerir það að verkum að hann tekur ekki inn á sig raunir þeirra sem hann segir upp. Bingham er því hæstánægður með lífið þar til tvennt gerir það að verkum að undirstöðurnar í lífi hans bresta.
Fyrst er að Bingham hittir fallega konu sem eins og hann er alltaf á ferðinni. Þau hittast á hótelum, eiga ástarfundi og skipuleggja næstu stefnumót. Bingham sem hefur ekki haft mikið álit á föstum samböndum og þar af síður barneignum finnur brátt að tilfinningar hans til bólfélaga síns eru meiri en hann vill viðurkenna. Hitt atriðið er að fyrirtækið sem hann vinnur hjá hefur ráðið sérfræðing sem breytir öllu ferli uppsagna, nú skal segja upp á Netinu og þar með engin ferðalög. Þetta leggst illa í Bingham sem fær vinnuveitanda sinn til að láta sérfræðingin, sem er ung stúlka, nýskriðin úr háskóla, til að taka uppsagnarúnt með honum til að kynnast ferlinu.
Up in the Air er á köflum fyndinn kvikmynd en varla er hægt að tala að um gamanmynd sé að ræða þar sem viðfangsefnið er grafalvarlegt og lýsir stundum á átakanlegan hátt viðbrögðum þeirra sem lenda í uppsögnum. Öllum sem sagt upp eru aukapersónur í myndinni þannig að meginþemað er samband og sambandsleysi Binghams við konurnar tvær sem tekur á sig ýmsar myndir og er leikur Clooney einstaklega góður og lýsir hann vel manneskju sem hingað til hefur ekki haft náið samband við neinn, hefur einangrað sig frá umheiminum og sannfært sjálfan sig um að hann sé í góðu sambandi við annað fólk vegna þess að hann er alltaf innan um fólk, er á flugi eða í flughöfnum. Clooney er sannfærandi og hefur mikla útgeislun og liggur við að hann sannfæri áhorfandann um að hann sé í draumastarfinu.
Jason Reitman sem gerði hina eftirminnilegu Juno hefur aftur fundið rétta púlsinn í Up in the Air, sem auk þess að vera dramatísk og fyndin er öðruvísi kvikmynd. Heilsteypt og heillandi úttekt á mannlegum tilfinningum, þar sem allir eru að hugsa um að gera rétt en hlutirnir æxlast á þann hátt að í lokin eru aðalpersónurnar aftur komnar á byrjunarreit.
Leikstjóri: Jason Reitman. Handrit: Jason Reitman og Shelton Turner. Kvikmyndataka: Eric Steelberg. Tónlist: Rolfe Kent. Leikarar: George Clooney, Vera Framica og Anna Kendrick. 109 mín.
Hilmar Karlsson