leita

 
 

Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides

Fjórða kvikmyndin um sjóræningjana á Karabíska hafinu er nákvæmlega eins og ég bjóst við, sæmilegasta afþreying sem bætir engu við fyrri myndirnar þrjár og verður að segjast eins og er að vonandi lætur Johnny Depp sér segjast og setur endapunktinn á Jack Sparrow, því staðreyndin er að Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides hefði ekki verið gerð nema vegna áhuga hans á að setja sig enn eina ferðina í spor sjónræningjans knáa, sem við eigum oft erfitt með að átta okkur á en er yfirleitt alltaf heillandi persóna.

pirates

3star

Horfin eru á braut Keira Knightley og Orlando Bloom eftir að hafa staðið vaktina með Jack Sparrow í þremur kvikmyndum, Geofrey Rush í hlutverki hins slæga Barbossa er á sínum stað og Keith Richard bregður aftur fyrir í hlutverki föður Sparrows. Nýir leikarar eru Ian McShane og Penelope Cruz í hlutverkum Svartskeggs sjóræningja og dóttur hans Angelicu. Eru það ágæti skipti á Knightley og Bloom sem voru orðin frekar leiðinleg svo ekki sé meira sagt. Ian McShane er verðugur mótherji og ekki síður Penelope Cruz sem leikur tveimur skjöldum, er fyrrum ástkona Sparrows, sem tendrar neistanna hjá honum, en er einnig mikill blekkingarmeistari. Takmark allra er að finna Lind æskunnar og er myndin nokkuð skrykkjótt framan af þegar hlutirnir eru að taka á sig mynd, en tekur ágætleg við sér í lokin.

Ef hægt er að segja um framhaldskvikmynd að allt sé eftir bókinni þá á það svo sannarlega við um Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides. Tæknilega séð er hún fullkominn, tæknibrellur ekki allt of sýnilegar og eins og í fyrri myndunum er raunsæið látið liggja á milli hluta á kostnað yfirnáttúrlegra atburða. Johnny Depp bregst ekki aðdáendum sínum, en vonandi fer hann að leika í bitastæðari myndum, ekki vantar hæfileikana. Cruz er eins og við var að búast heillandi og best þegar skapið er mest, en þegar á heildina er litið þá er fátt sem uppúr stendur og leikstjórinn Rob Marshall sem þekktastur er fyrir dans og söngvamyndirnar Chicago og Nine hefur ekki erindi sem erfiði, öfugt við Kenneth Brannagh, sem einnig þótti á hálum ís þegar hann tók að sér að leikstýra Thor en gerði það með meiri glæsibrag en búist var við að honum.

Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides er auglýst sem stærsta mynd sumarsins þrátt fyrir að sumarið er varla komið, en það kæmi mér ekki á óvart þó þrjár til fjórar kvikmyndir aðra fengju þennan stimpil í auglýsingum kvikmyndahúsanna á næstu vikum.

Leikstjóri: Rob Marshall. Handrit: Ted Elliott og Terry Rossio. Kvikmyndataka: Dariusz Wolski. Tónlist: Hans Zimmer. Leikarar: Johnny Depp, Penelope Cruz, Geoffrey Rush, Ian McShane, Keith Richards og Kevin McNally. 114 mín.

Hilmar Karlsson

Share

01. október 2012| Djúpið

13. september 2012| Frost

13. ágúst 2012| To Rome with Love

12. júlí 2012| Intouchables

12. júní 2012| Prometheus

14. mars 2012| Svartur á leik

03. febrúar 2012| The Artist

30. janúar 2012| The Descendants

20. janúar 2012| My Week With Marilyn


20. október 2011| Borgríki

04. október 2011| Eldfjall

26. september 2011| Drive


   
Stundum finnst mér eins og slái út í fyrir mér. Það gerðist í morgun. Í dag er hvítasunnan og auðvitað held ég í það af minni barnstrú að taka hvíldardaginn hátíðlegan og sérstaklega hvítasunnudaginn. Ég reyndi að muna hvers vegna við höldum upp á hvítasunnuna og fann ekki



18. janúar 2013| Hægt á trúlofuninni (JGH)






© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is