
Sagan segir að þegar Alexander Payne hafi verið með Sideways (2004) í undirbúningi, kvikmynd sem fjallar um tvo miðaldra menn sem fara í vikuferð um vínhéruð Kalifiorníu, hafi George Clooney haft samband við Payne og beðið um að fá að leika annað hlutverkið, en Payne hafi hafnað honum þar sem hann taldi Clooney of frægan fyrir myndina, en mundi hugsa til hans síðar. Og það gerði Payne því hann skrifaði aðalhlutverkið í The Descendants með Clooney í huga og Clooney brást ekki og er í hlutverki eiginmanns sem horfir upp á eiginkonu sína líflausa í öndunarvél alla myndina, líklegast í sínu besta hlutverki og er þegar búinn að fá Golden Globe verðlaunin og þykir líklegasti kandídatinn í óskarinn. Þetta er verðskuldað þar sem leikur hans í myndinni er frábær, látlaus en samt mjög tilfinningaþrunginn.
Í upphafi The Descendants þegar Matt King (Clooney) situr við sjúkrabeð eiginkonu sinnar, Elizabeth, sem hafði slasast alvarlega, er hann fullur iðrunar, telur sig hafa brugðist eiginkonunni og tveimur dætrum þeirra með því að hugsa fyrst og fremst um vinnuna, en hann er ríkur lögfræðingur og fasteignasali sem ásamt ætt sinni á verðmætastustu óseldu landeigina á Hawaii. Það stendur til að selja eigina og verður samþykki hans að liggja fyrir sölunni. King hugsar til eiginkonunnar meðan hann situr yfir henni og ætlar að taka sig á í hjónabandinu og skipta sér meira af dætrum þeirra, en greinilegt er að hann hefur lítið sem ekkert haft um þeirra mál að segja. Fljótt skiptast veður í lofti þegar hann sækir eldri dóttur sína á einkaskóla. Hún segist fyrirlíta móður sína og er sama hvað um hana verður og pabbi hennar ætti að hugsa eins þar sem hún hafi haldið fram hjá honum. Þessar upplýsingar eru mikið tilfinningaáfall fyrir King og á hann erfitt með að fóta sig áfram og hvað þá að koma dætrum sínum á rétta braut.
Þó George Clooney sé sá sem athyglin beinist að þá standa aðrir leikarar sig vel og er vert að geta frammistöðu Shailena Woodley, í hlutverki eldri dóttur Kings. Þetta er erfitt hlutverk sem hin tvítuga Woodley skilar af miklu innsæi. Einnig er gaman að fylgjast með fylgdarsveini hennar, Sid (Ted Krause), sem hún vill alltaf hafa með sér, segir hann róa sig, þó hann komi málinu ekkert við. Sid stígur ekki í vitið að því er virðist en léttir heldur betur á dramatíkinni sem er þungamiðja myndarinnar. Þá eru kostulegir ættingjar Kings með Beau Bridges fremstan í þeim hópi, ættingjar sem öfugt við King hafa eytt öllum arfi sínum í vitleysu og vilja ólmir selja. Öllum þessum góða leikarahópi leikstýrir Alexander Payne listilega og sýnir eins og í Sideways að leikarar eru í góðum höndum ef þeir fá hlutverk hjá honum.
Leikstjóri: Alexander Payne. Handrit: Alexander Payne, Nat Faxon og Jim Rash. Kvikmyndataka: Phedon Papamichael. Leikarar: George Clooney, Shailene Woodley, Amara Miller, Nick Crause og Beau Bridges. 115 mín.
Hilmar Karlsson