leita

 
 

The Fighter

The Fighter er dramatísk kvikmynd um stóra fjölskyldu þar sem svo vill til að tveir bræður eru hnefaleikarar sem er það eina sem þeir eiga sameiginlegt. Eldri bróðirinn Dicky Englund (Christian Bale) er fyrrum hnefaleikakappi, sem aldrei þreytist á að lýsa fyrir öðrum hversu stórkostlegur hann var og að honum hafi tekist að sigra heimsmeistara. Þegar myndin hefst er hann háður eiturlyfjum og er með lítið samband við raunveruleikann, sem lýsir sér kannski best í því að verið er að gera heimildarmynd um hann, sem Dicky heldur að fjalli um feril hans og endurkomu hans í hringinn, þegar raunin er að verið er að gera heimildarmynd um fyrrum boxara sem verður eiturlyfjum að bráð.

thefighter

4star

Yngri bróðirinn, Micky Ward (Mark Wahlberg) er af allt öðru sauðarhúsi. Hann er óframfærinn en upprennandi boxari, sem dýrkar bróður sinn, sem er því miður þjálfari hans. En með Dicky sem þjálfara og stjórnanda hefur Mark verið laminn niður í hverri keppninni á fætur annarri. Micky losnar ekki undan áhrifum frá honum fyrr en Dicky er dæmdur í fangelsi, en þá fara hlutirnar að gerast hratt. Þriðja aðalpersónan er móðir þeirra Alice (Melissa Leo), orðhvöss og stjórnsöm kona sem þolir ekki mótmæli gegn eigin skoðunum og stjórnar bræðrunum, sex systrum þeirra og ekki síst fyrrum og núverandi eiginmanni.

The Fighter er byggð á sönnum atburðum og eftir því sem mér skilst þá er lítið farið út fyrir það sem í raun gerðist, sem gerir söguna merkilegri en ella og sannast hér hið fornkveðna að sannleikurinn er stundum ótrúlegri en skáldskapurinn. Sérstaklega er fyrri hluti myndarinnar grípandi og áhrifamikill og þar á ekki sístan hlut Christian Bale í hlutverki Dickys. Eintal hans í upphafi er þvílík stórskotahríð á áhorfendur að Bale nánast á myndina eftir það, sem er kannski miður fyrir Mark Wahlberg, Melissu Leo og Amy Adams, í hlutverki unnustu Micky, sem öll eru mjög góð en mega sig lítið gegn ofurleikaranum Bale, sem í gegnum tíðina hefur margoft sýnt hversu magnaður hann er. Þegar haft er í huga hlutverk hans í The Fighter þá koma upp í hugann tvær mynda hans, The Machinist og Rescue Dawn, þar sem hann eins og í The Fighter umbreytir sjálfum sér bæði líkamlega og andlega.

Eftir því sem líður á The Fighter verða áhrif Dicky á Micky minni sem og vera hans í myndinni. Þá breytist myndin nokkuð og verður hefðbundnari hnefaleikamynd í anda Rocky, þar sem fátækur boxari klífur upp metorðastiganna og nær hæstu hæðum í lokinn. Ekki að myndini verði verri heldur minnkar krafturinn og hún verður öll jafnari. The Fighter heldur samt áhorfendum alltaf vel við efnið enda fjölskylda Micky öll hin sérstakasta. Myndin nær síðan upp sama krafti í lokabardaganum sem er svakalegur svo ekki sé meira sagt.

Eitt að lokum, væntanlegir áhorfendur ættu ekki að standa upp úr sætum sínum um leið og myndin endar þar sem á meðan kreditlistinn rennur í gegn eru hinir raunverulegu bræður í mynd í einu horninu að ræða málin, gera grín og brosa framan í myndavélina.

Leikstjóri: David O. Russell. Handrit: Scott Silver, Eric Johnson og Paul Tamasy. Kvikmyndataka: Hoyte Van Hoytema. Tónlist: Michael Brook. Leikarar: Mark Wahlberg, Christian Bale, Amy Adams og Melissa Leo. 115 mín.

Hilmar Karlsson

Share

01. október 2012| Djúpið

13. september 2012| Frost

13. ágúst 2012| To Rome with Love

12. júlí 2012| Intouchables

12. júní 2012| Prometheus

14. mars 2012| Svartur á leik

03. febrúar 2012| The Artist

30. janúar 2012| The Descendants

20. janúar 2012| My Week With Marilyn


20. október 2011| Borgríki

04. október 2011| Eldfjall

26. september 2011| Drive


   
Stundum finnst mér eins og slái út í fyrir mér. Það gerðist í morgun. Í dag er hvítasunnan og auðvitað held ég í það af minni barnstrú að taka hvíldardaginn hátíðlegan og sérstaklega hvítasunnudaginn. Ég reyndi að muna hvers vegna við höldum upp á hvítasunnuna og fann ekki



18. janúar 2013| Hægt á trúlofuninni (JGH)






© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is