leita

  
 
12. júlí 2012| Intouchables

12. júní 2012| Prometheus

14. mars 2012| Svartur á leik


 

Drive

Nicolas Winding Refn hafði gert garðinn frægan í heimalandinu Danmörku og öðrum Norðurlöndum með Pusher tríólógíunni þegar hann fór yfir til Englands og gerði hina eftirminnilegu Bronson, leikna kvikmynd um frægasta fanga Bretlands, sem tók sér nafnið Charles Bronson til að heiðra uppáhaldsleikara sinn. Bronson fékk mjög góðar viðtökur enda einstaklega sterk kvikmynd um manneskju sem lætur eðlið ráða og vill að því virðist, helst vera innan veggja fangelsisins.

drive

4star

Winding Refn lét ekki staðar numið og eftir að hafa gert Valhalla Rising, sem frekar lítið fór fyrir, hélt hann á vit draumasmiðjunnar í Hollywood þaðan sem Drive kemur og ekki veldur Winding Refn vonbrigðum frekar en fyrri daginni og fékk hann leikstjóraverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrr á árinu. Drive er sögulega séð ekta bandarísk sakamálamynd um áhættuleikara sem sérhæfir sig í áhættuakstri og tekur að sér aukaverkefni á nóttunni við að skulta glæpamönnum á milli staða.

Það er ekki aðeins sterk og hnitmiðuð leikstjórn Windings Refns sem skapar afburða spennumynd, hlutur Ryans Goslings í aðalhlutverkinu er ekki minni, en sagt er að Gosling, sem er á góðri leið með að verða eins stærsta stjarnan í Hollywood hafi fengið að velja leikstjóra enda hlutverkið skrifað fyrir hann. Gosling valdi Winding Refn eftir að hafa séð Bronson og það er engum blöðum um að fletta að þarna hittast á miðri leið leikari og leikstjóri sem líta sömu augum á hlutina.

Persónan sem Ryan Gosling leikur er nafnlaus og gengur undir nafninu Driver og fer hann mikinn í nokkrum æsispennandi akstursenum. Það er ekki að ósekju að upp í hugann komi frægar kvikmyndastjörnur sem hafa leikið slíka hluti fyrir framan kvikmyndavélarnar og þá helst Steve McQueen og  hafði ég á tilfinningunni að Ryan Gosling væri m.a í Drive að heiðra McQueen.

Allt gengur bílstjóranum í haginn til að byrja með, hvort sem er í dagvinnunni eða næturvinnunni, þar til einn glæpaforinginn kennir honum um misheppnað rán og til að flækja enn meira lífsbaráttuna kynnist bílstjórinn nágrannakonu sem hann verður hrifinn af. Þegar svona er komið þá fer hann að gera mistök og má hafa sig allan við að komast lífs frá þeim hildarleik sem fylgir í kjölfarið.

Drive býður upp á nokkur frábær áhættuatriði í bílaakstri sem fær áhorfandann til vera á iði í sætinu sem og blóðug átök, en myndin er einnig um samband bílstjórans við nágrannakonu sína sem er í hjónabandi með fanga sem er að losna fljótlega. Carey Mulligan leikur konuna og er alls ekki rétta leikkonan í hlutverkið útlitslega séð en samleikur hennar og Goslings er með miklum ágætum og trúverðugur og halda þau atriði vel í spennuatriðin.

Eins og áður segir er söguþráðurinn í Drive mjög amerískur en það er þó eitthvað kalt og heillandi við myndina sem gerir það að verkum að hún virkar evrópsk í úrvinnslu enda kannski ekki nema von, Nicolas Winding Refn er með evrópskan bakgrunn og lætur örugglega ekki segja sér fyrir verkum.

Leikstjóri: Nicolas Winding Refn. Handrit: Hossein Amini eftir skáldsögu James Sallis. Kvikmyndataka: Newton Thomas Segel. Tónlist: Cliff Martinez. Leikarar: Ryan Gosling, Carey Mulligan, Albert Brooks, Ron Perlman, Brian Cranston og Christina Hendricks. 101 mín.

Hilmar Karlsson

Share

   
Stundum finnst mér eins og slái út í fyrir mér. Það gerðist í morgun. Í dag er hvítasunnan og auðvitað held ég í það af minni barnstrú að taka hvíldardaginn hátíðlegan og sérstaklega hvítasunnudaginn. Ég reyndi að muna hvers vegna við höldum upp á hvítasunnuna og fann ekki



18. janúar 2013| Hægt á trúlofuninni (JGH)






© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is