leita

  
 
01. október 2012| Djúpið

13. september 2012| Frost

13. ágúst 2012| To Rome with Love


 

Life as We Know It

Life as We Know It stendur ekki undir því að vera kölluð rómantísk gamanmynd. Fyrst og fremst er hún aldrei skemmtileg, hvað þá fyndin og söguþráðurinn sem á að heita rómantískur felst aðallega í því að við erum að fylgjast með tveimur sjálfselskum persónum sem kunna ekki að umgangast lítið barn. Það sem gerir það að verkum að hún fær þó tvær stjörnur eru aðalleikararnir, Katherine Heigl og Josh Duhamel og litlir þríburar sem fá það verkefni að leika eitt barn sem verður foreldralaust. Þrenning þessi hefur sjarma og útgeislun sem skilar sér til áhorfenda og breiðir yfir annars mislukkaða kvikmynd.

life-as-we-know-it

2star

Aðalpersónurnar eru Holly (Katherine Heigl) sem gerir út veisluþjónustu með góðum árangri og þolir illa hvers kyns óreiðu og Eric (Josh Duhamel) sem ætlar sér að ná langt í upptökustjórn á beinum íþróttalýsingum og er mikill slóði í einkalífinu. Þau eiga góða vini, hjón með litla dóttur, Sophie, vini sem árangurslaust hafa reynt að koma þeim saman á stefnumót. Þegar foreldrarnir deyja í umferðarslysi kemur stendur í erfðaskrá þeirra að komi eitthvað fyrir þau eigi Holly og Eric að sjá um uppeldi Sophie. Þar sem þau þola ekki hvort annað þá gengur eins og við er að búast mikið á í barnauppeldinu og þarf  ekki að hafa mörg orð um hver endirinn verður, allt samkvæmt bókinni og var ég þeirri stund fegnastur þegar myndinni lauk.

Það eru ekki margir leikarar sem koma úr sjónvarpinu yfir í kvikmyndirnar sem fullskapaðar kvikmyndastjörnur og hafa nokkrir slíkir farið flatt á því að hætta í vinsælum sjónvarpsseríum til að reyna fyrir sér í kvikmyndum, en Katherine Heigl og Josh Duhamel eru undantekningar. Heigl sem lék árum saman í Grey’s Anatomy og Josh Duhamel sem lék í Las Vegas í nokkur ár hafa á síðustu misserum verið að festa sig í sessi í kvikmyndaheiminum og þá aðallega í rómantískum myndum og þó ég hafi ekki séð þau áður í slíkum myndum þá ætla ég rétt að vona að árangurinn hafi verið betri en hér því annars verður leiðin brött niður á við. Heigl og Duhamel hafa útlitið og ágæta hæfileika og bjarga því sem bjargað verður í Life as We Know It en eiga þó land í land þegar frammistaða Söndru Bullock og Hugh Grant í slíkum kvikmyndum er höfð til hliðsjónar, svo leikarar séu nefndir sem hafa náð virkilega langt í rómantískum gamanmyndum.

Leikstjóri: Greg Berlanti. Handrit: Ian Deitchman og Kristin Rusk Robinson. Kvikmyndataka: Andrew Dunn. Tónlist: Blake Neely. Leikarar: Katherine Heigl, Josh Duhamel, Josh Lucas, Christine Hendricks og Alexis, Brynn og Brooke Clagett. 114 mín.

Hilmar Karlsson

Share

   
Stundum finnst mér eins og slái út í fyrir mér. Það gerðist í morgun. Í dag er hvítasunnan og auðvitað held ég í það af minni barnstrú að taka hvíldardaginn hátíðlegan og sérstaklega hvítasunnudaginn. Ég reyndi að muna hvers vegna við höldum upp á hvítasunnuna og fann ekki



18. janúar 2013| Hægt á trúlofuninni (JGH)






© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is